Fálkinn - 24.07.1959, Side 4
4
FÁLKINN
búskap, eins og víðar í Rússlandi,
en eitt hefur þetta hérað til síns
sér-ágætis og það eru nœturgalar.
Kannske eru það þeir, sem hafa
verkað á hinn volduga Krustjev,
mildað lund hans, svo að hann segir
stundum eitthvað svo fallegt, að
allri veröldinni léttir. Og kannske
er það næturgölunum að þakka, að
hann er allra bezti söngmaður og
dansmaður. Það er sagt um þennan
volduga mann, sem getur valdið
skjálfta um víða veröld með fáein-
um orðum, að þegar hann kemur
af alvarlegustu fundum með stjórn-
arherrum sínum, bregði hann sér
í samkvæmi og láti þar verr en
nokkur kósakki — syngi ag dansi,
svo að glymur í salnum. Enginn
þarf að furða sig á því, að þegar
Krustjev var ungur og lífs- og
staupaglaður smiður, hafi hann orð-
ið ástfnaginn af skapmikilli ungri
kennslukonu, sem hafði sérlega
gaman af að dansa. Hún hét Nina
Nikolajevna, og þau voru gefin sam-
an einn fagran vordag 1923.
Margt bendir til þess, að Nina
hafi haft bendiprikið með sér úr
skólanum, og stundum sveiflað því
yfir höfðinu á Krustjev. Hún hefur
átt ríkan þátt í viðgangi hans, og
skæðar tungur fullyrða meira að
segja, að það sé henni að þakka eða
Nikita Krustjev giftist árið 1923 og hefur ekki skilið við konuna. En
honum kvað þykja vœnt um ,,stjórnmálakonuna“ líka.
KONURNAR
★
★
BAK VID
☆ ☆☆☆^☆ ☆☆☆
Mrú&týet?
Það ber ekki mikið á frú
Nínu Krusjev í Rússlandi, en
hún kvað hafa mikil áhrif á
manninn sinn, þótt hún skipti
sér ekki af stjórnmálum. En
Jekaterina Furteseva, fyrsta
konan í Æðsta ráðinu, er
stjórnmálagarpur, sem Krúst-
jev hefur tekið mikið mark á,
Hún berst mikið á og erskraut-
búin, þegar hún kemur í nátt-
klúbbana erlendis.
☆ ☆☆☆ ■'iér ☆☆☆☆
Nina 'Nikóíajevna, kennslukona, sem
giftist smiðnum Krustjev.
HÖFUÐPAURARNIR í Rússlandi
verða heimsfrægir undir eins og
þeir nálgast efsta þrepið, en kon-
urnar þeirra veit veröldin lítið um.
Kona Lenins varð ekki kunn úti
í heimi fyrr en eftir að hún var
orðin ekki, kona Stalins var sjaldan
nefnd og sama er að segja um
konur flestra annarra, sem frægir
hafa orðið — Malenkovs, Vorosji-
lovs o. s. frv. Sama er að segja
um konu þess manns, sem nú ber
ægishjálm yfir alla keppinauta sína,
Ninu Nikolajevnu, konu Nikita
Krustjevs.
Það er engin furða þótt hún sé
ekki nefnd í Austurstræti, því að
þeir þekkja hana varla, ráðstjórnar-
herranir í Moskva. Það eina, sem
almenningur í Rússlandi veit um
hana er, að hún giftist Krustjev
skömmu eftir byltinguna og að þau
hafa ekki skilið síðan.
Eins og mörgum er kunnugt, er
Nikita Krustjev ættaður úr Kalinka-
þorpi í Kursk. Þarna lifa flestir á
kenna, að Krustjev situr í hásæti
Rússa í dag. Smiðurinn varð opin-
ber starfsmaður — en hann var
mjög metnaðargjarn starfsmaður í
USSR. Þó kvað hann hafa gleymt
sér stundum, ef hann tók sér full-
mikið neðan í því. Þá hljóp Nina
jafnan undir bagga. Þegar ofsi hljóp
í hann, var hún sá eina, sem gat
tjónkað við hann. Og þegar timbur-
mennirnir voru þungbærur, læknaði
frú Nina stjórnmálamanninn með
hráu súrkáli, súrum gúrkum og
léttu öli.
En frú Nina kenndi manninum sín-
um að meta fleira en hrátt súrkál.
Hún kenryii honum að meta bók-
menntir og listir. Nóg var til af
rússneskum bókmenntum frá því
fyrir stríð — þótt margir listamenn
týndu lífi á byltingarárunum, lifði
list hinna ágætu rússnesku skálda
áfram í verkum þeirra. Frú Nina
linnti ekki látum fyrr en Nikita inn-
ritaðist í háskólann í Moskva.
Kennslukonan réð — lærisveinninn
hlýddi. Hún lét hann meira að segja
læra að spila á píanó.
Annars hefur ævi þeirra Krust-
jevshjónanna alls ekki verið and-
streymislaus. Þau eignuðust mörg
börn, sem flest dóu ung. Og Nina
varð að þola allar þær áhyggjur
og efriðleika, sem móðir hefur við
að stríða. En aldrei brást hún mann-
inum sínum. Hún stóð við hlið hans
og studdi hann í baráttunni fyrir
æðstu völdunum í Kreml. Nina hef-
ur jafnan tekið því rólega, er ofsi
hljóp í Nikita, Og þó að hann hafi
skvett í sig, hefur hún tekið því
með þögn og þolinmæði. Líka hef-
ur hún skellt skolleyrum við sög-
unum, sem hvað eftir annað hafa
komizt á kreik, um að þau væru
að skilja.
Nú eiga þau tvær uppkomnar dæt-
ur, tízkudömur, sem nota andlits-
farða, en það er ekki algengt í Rúss-
landi. Þau eiga líka einn son, sem
Sergei heitir, hann er verkfræðing-
ur, giftur og á börn. Nina hefur
mikla gleði af barnabörnum sínum;
hún er orðin 56 ára, og síðan maður
hennar komst til æðstu valda, hefur
hún minna af honum að segja en
áður. Dæturnar heita Nadja og
Rakhu.
Fjölskyldan býr í sex herbergja
íbúð bak við Kreml og á sumar-
bústað við Svartahaf og auk þess
tólf herbergja bústað um 50 km fyr-
ir utan Moskva.
Vesturlandablöðin hafa oft haldið
því fram, að frú Krustjev sé systir
Beria lögreglustjóra. Það er ekki
Jekaterina Furteseva, eina konan
í Æðsta rá&i Rússlands.
rétt. Nina er fædd í Kurske, eins
og Nikita. Hún var eins og áður
segir, kennari við barnaskóla. Og
þar kynntust þau Krustjev og hún.
Þegar Nikita Krustjev var aðal-
ritari kommúnistaflokksins í Ukra-
ina, frá 1938—1949, hitti hann blaða-
mann frá Pravda í Kiew. Hann heit-
ir Arkadji Karakatenko. Þeir urðu
vinir. En í dag á Karakatenko heima
fyrir vestan járntjald. Hann segir
þannig frá samvistum sínum við
Krustjev:
„Meðan ég starfaði í Kiew, hitti
ég hann oft, bæði í sambandi við
starf mitt og sem kunningja, og ég
var oft með honum á ferðalögum.
En samt sem áður var mér ómögu-
legt að kynnast frú Krustjev. Undir
eins og hún kom inn í stofuna, bað
Nikita hana að fara út. Ég sá hana
ekki nema nokkrum sinnum, og þá
aðeins í svip. Hún var nokkuð þrýst-