Fálkinn - 24.07.1959, Síða 7
FALKINN
7
mælin ein, sem réðu vali konung's-
ins, en ekki persónuleg kynni.
Peter Townsend var 29 ára, er
honum var vísað inn á vinnustofu
konungs einn kaldan morgun í fe-
brúar. Þetta var lítið, sólríkt her-
bergi með uppáhaldslitum konungs
— ljósgræn þil og dökkgrænn dúk-
ur á gólfinu. Peter var hjá konungi
hálftíma. Hann spurði hann margra
spurninga, um æviferil og ættingja
— en ættin hafði verið í konungs-
þjónustu kynslóð eftir kynslóð. Kon-
ungi leizt vel á Peter og frá hirð-
arinnar sjónarmiði var hann giftur
boðlegri konu. Mánuði síðar tók
hann til starfa.
Ef þessi saga hefði verið tilbún-
ingur, hefði verið freistandi að
leggja sérstaka merkinu í að Peter
hitti Margaret þegar hann kom á
konungsfund í fyrsta skipti. En
þetta var svo. Um það leyti bjó
Margaret með Elizabeth eldri systur
sinni í Windsor Castle. Þær komu
til London einu sinni í viku.
Eftir að Peter kom út frá kon-
ungi stóð hann um stund í gangin-
um og var að tala við mann, sem
hann þekkti. Elizabeth og Margaret
gengu framhjá. Peter var kynntur
þeim. Margaret var þá þrettán ára,
og fyrir hennar sjónum var Peter
ekki annað en einn af þessum ein-
kennisbúnu mönnum, sem alltaf
voru að flækjast í höllinni.
Og hvernig leizt Townsend á telp-
una?
Hún var lappalöng og fjörleg, og
hafði svo mikið að segja, að hún
kom því ekki út. Hún lét móðan
mása og röddin var miklu hærri
en venjulega muldrið, sem oftast
heyrðist innan konungsfjölskyld-
unnar.
Þau urðu hvorugt fyrir nokkrum
áhrifum við þessi fyrstu kynni.
PETER LÍKAR VEL.
Að starfa við hirðina er einkenni-
leg atvinna og gengur oft í ættir.
Aðalstarfið er að sjá um, að allt
gangi eftir ákveðnum reglum, sér-
staklega við gestakomur. Og að
ganga sem bezt frá öllum undir-
búningi, þegar það konuunglega
heimsækir aðra bæi eða kemur á
opinber mannamót. Starfsmennirnir
eiga að hjálpa til við ræðurnar,
halda á blómvöndum, sem afhentir
eru, en umfram allt mega þeir ekki
láta mikið á sér bera.
Peter Townsend þótti efnilegur
hirðmaður. Konungi líkaði miklu
betur við hann en ýmsa hirðmenn,
sem verið höfðu hjá honum í
mörg ár.
Konungurinn var ekki heill
heilsu. Hann var taugaveiklaður og
varð uppstökkur, ef hann hafði of
mikið að hugsa um. Peter var van-
ur þesskonar skapi. Hann hafði átt
við fjölda af þreyttum flugmönn-
um, sem höguðu sér alveg eins.
Konungur lét Peter og fjölskyldu
hans fá hús í Windsor Great Park.
Það hét Adelaide Cottage og var
þriggja metra há limgirðing fyrir
framan það.
Þetta var fyrsta heimilið, sem
Peter og Rosemary höfðu eignazt,
en þrátt fyrir sambandið við kon-
ungsfjölskylduna, var líf þeirra
fremur fábreytilegt. Húsið, sem var
með fallegum garði í kring, hafði
verið byggt handa Adelaide, drottn-
ingu Williams IV., og um skeið hafði
það verið notað handa óléttum hirð-
frúm, sem ekki máttu láta sjá sig
á almennafæri.
Rafmagnsleiðsla var lögð í húsið
frá Windsor Castle. En straumúrinn
var svo veikur, að hann þoldi ekki
nema ryksugu og lítinn rafmagnsofn
samtímis. Inni var húsið leiðinlegt,
með victoríönsku veggfóðri og ljót-
um húsgögnum frá victoríutímum.
Það hefur kannske haft nokkra
þýðingu, að konungurinn lét Towns-
end fá bústað, sem var svona nærri
konungsbústaðnum, Windsor Lodge,
þar sem hann, drottningin og prins-
essurnar dvöldu að jafnaði um
helgar.
VINUR KONUNGSFÓLKSINS.
Peter varð brátt kunnugur prins-
essunum tveimur, sem vegna stríðs-
ins voru látnar vera í Windsor
Castle. Árið 1940 höfðu margir talið
konung á að senda prinsessurnar
til Canada, svo að þær væru óhult-
ari þangað til stríðinu lyki. En kon-
ungur neitaði því og drottningin tók
í sama streng og sagði: —- Ég læt
þær ekki fara án mín, og ég fer
ekki frá konunginum.
Margaret átti heima í Windsor
Castle frá 10 til 15 ára aldurs. Hún
fór frá London sem lítill stelpukubb-
ur, svo notuð séu hennar eigin orð,
og kom aftur til að fagna friðnum
sem lappalöng gelgjustelpa.
Rosemary og Peter höfðu eignazt
annan strákinn í febrúar 1945. Þó
að Peter hefði ekki verið stallari
nema eitt sár, féllst konungur á að
vera skírnarvottur að króanum.
Townsend var staðgengill konungs
við skírnina, 3. nóvember 1945, og
drengurinn var skírður Hugo Ge-
orge eftir skírnarvotti sínum.
Eftir skírnina komu prinsessurnar
í Adelaide Cottage og drukku te.
Þetta varð fyrsta sunnudagsheim-
sóknin þeirra af mörgum. Elizabeth
féll vel að tala við Rosemary, en
Margaret lék sér við börnin og Peter
lá í hægindastól og hvíldi sig.
Stundum komu konungshjónin til
að sækja dæturnar, en oftast skil-
aði Peter þeim heim sjálfur.
Margaret kom aldrei í Adelaide
Cottage nema með Elizabeth eða
drottningunni. Stundum ók Rose-
mary líka manninum sínum út að
hesthúsunum, svo að hann gæti
komið á hestbak með prinsessunum.
Eftir að Elizabeth var gift hertog-
anum af Edinburgh komu þau líka
oft og heimsóttu Townsendhjóniri.
En hvernig kom svo hertoganum
og Townsend saman? Fyrst, eftir að
Philip kvæntist, þótti honum gott
að eiga Peter fyrir kunningja. Phil-
ip átti fáa vini, og honum þótti gott
að geta talað við Philip í höllinni.
Þegar hertoginn fór að fá áhuga á
flugi leitaði hann oft til Townsends,
því að þar var ekki komið að tóm-
um kofunum hvað flug snerti.
En samt urðu þeir aldrei nánir
vinir. Þeir voru mjög ólíkt skapi
farnir. Vinur þeirra beggja hefur
sagt um þá: — Philip er karlmenni
út í æsar, en það er Peter ekki.
Og svo var hitt, að Townsend var
þjónandi maður við hirðina, en
Philip fjölskyldumeðlimur.
HJÓNABANDIÐ RAKNAR.
Að fráteknum konunglegu heim-
sóknunum var fátt um gesti hjá
Townsendhjónunum. Rosemary var
oft ein heima með drengina tvo og
vinnufólkið.
Peter vann venjulega tvær vikur
samfellt, og.fékk svo hvíld á milli.
Á daginn var hann í skrifstofu sinni
í Buckinghham Palace, stóru gamal-
dags herbergi á neðstu hæð, með
dökkgrænum þiljum, marmaraarni
og gömlu mahogniskrifpúlti við
gluggann, sem vissi út að garðinum.
Á nóttunni hafði hann svefnher-
bergi í höllinni. Ef hirðin dvaldi í
Balmoral í Skotlandi, hafði Towns-
end herbergi í einum hallarturnin-
um þar. Á Sandringham hafði hann
skemmtilegt herbergi með nýtízku
húsgögnum.
í höllinni snæddi hann með hirð-
dömunum og einkariturunum. Borð-
stofan var kringlótt með málverk-
um í loftinu. Þar hafði einhvern
tíma verið bókastofa, með innskot-
um, sem bókahillurnar stóðu í.
Þær vikurnar sem hann vann,
kom hann alls ekki heim. En svo
fékk hann sex vikna frí, og var
heima allan þann tíma. Þessi vinnu-
tilhögun var ekki hentug kvæntum
manni. Rosemary var ýmist ,,hús-
Þegar biskup Ögmundur var nú
mjög hniginn á efra aldur og upp-
gefinn maður, sjötugur eður vel
svo, því mest gekk að honum sjón-
leysi, kjöri hann annan sér til með-
hjálpara og í sinn stað eptir sig:
það var Sigmundur, systursonur
biskups Ögmundar, sonur Ásdísar
Pálsdóttur og Eyjólfs á Hjalla,
bróðir Þórólfs bónda Eyjólfssonar;
hann hélt Hítardal vestur, og þótti
vel að sér, var hann kjörinn á
prestastefnu til biskupsdæmis eptir
biskup Ögmund frænda sinn, sigldi
hann og vígðist, en lifði fá daga í
biskupsdæminu, ekki fleiri en 19,
liggur hann í Þrándheimi; hann
hafði fengið fótarmein og lysti upp
í líkamann; þetta skeði nokkrum
árum áður en Viðey var tekin.
Eptir það kjöri biskup Ögmundur
í sinn stað síra Gizur Einarsson sér
til meðhjálpara, því biskupinn
hafði látið menta hann austur hjá
abbadísi Halldóru; höfðu þessir þrír
verið í Skálholti nokkur ár: Gizur
Einarsson, Gísli Jónsson og Oddur
Gottskálksson; höfðu þeir allir
fengið nokkurn smekk utanlands
af réttum evangeliskum lærdómi,
en þorðu ekki láta biskup Ögmund
vita. Sendi biskup síra Gizur utan,
og kostaði hann að öllu og fékk
honum reiðupeninga sem hann
þurfti, og sigldi hann það sama ár
sem Viðey var tekin. Ekki hafði
biskup neina grunsemd um annað,
en hann mundi vera sér trúr og
hollur, svo sem sjálfum sér, en hefði
nokkur þengt annars, þá hefðu
prestar aldrei samþykt að láta hann
sigla, en hann launaði honum ei
betur en fleiri aðrir, sem biskup
Ögmundur hafði mart gott og mik-
ið til góða gjört. Næsta sumar þar
ekkja“ eða þá að maðurinn var hjá
henni að staðaldri. Það síðara reyndi
eins mikið á taugarnar í báðum eins
og að vera ein. Þessi óreglulega til-
högun reyndi á hjónabandið. Peter,
sem að eðlisfari var starfsmaður,
leiddist þegar hann hafði ekkert fyr-
ir stafni heima. Hann hafði allt of
rnikið frí. Og til þess að ráða bót
á því, starfaði hann sem vátryggj-
andi hjá Lloyds inni í London í frí-
unum. En þegar frá leið, varð sam-
band hans við konunginn nánara,
og að sama skapi dró úr samband-
inu við konuna. Rosemary kvartaði
undan, að Peter væri aldrei heima.
Hjónabandið hefið kannske þolað
þetta, ef þau hjónin hefðu verið
skaplíkari. En það fór versnandi.
Peter kunni vel hirðstarfinu. Hann
var skyldurækinn og hugsaði mest
um að þjóna konungi sínum.
eftir kom herra Gizur út með þeim
Hafnfirðingum, því hann sigldi með
þeim; reið hann strax heim í Skál-
holt frá Görðum við fjórða mann,
tók biskup Ögmundur honum vel,
afhenti honum staðinn strax, en
hafði sig burt; var það í vikunni
fyrir fardaga að herra Gizur kom
út, en biskup Ögmundur kom til
Hjalla miðvikudaginn í fardögum,
og hafði þá farið alfarið með öllu
úr Skálholti. Litlu síðar kom kóngs-
skip í Hólminn, þar voru þeir á sem
bífalning höfðu að sækja biskup Ög-
mund, því sagt er herra Gizur hafi
það fram borið fyrir kónginn og
ráðið, að hér mundi ekki neitt tak-
ast að framkvæma í evangelio með-
an biskup Ögmundur lifði, því var
riddarinn hingað sendur með ij c
fólks, hét hann Christoffur, og með
honum Otti Stígsson. Strax þá
biskupinn herra Gizur spurði, að
herra Gizur honum til að settu dag
með sér í Kópavogi, var sá dagur
riddarinn væri út korninn, skrifaði
á þriðjudaginn eptir fardagaviku,
voru þeir á eintali allan daginn, en
að því enduðu beiddust þeir hesta
inn í Hólm, og þaðan í Skálholt,
ekki fleirum en átta; kvað biskup
þeta upp þess erindis, að riddarinn
vildi gjöra sér umskipti, taka smjör
og vaðmál fyrir drykk.
★
— Það er aðeins ein leið til að
verjast fitu, og það er hreyfing og
leikfimi, sagði læknirinn við sjúk-
linginn.
—- Þetta er nú vitleysa. Konan
mín er með undirhöku, og ekki
þurfa kjálkarnir á henni þó að
kvarta undan hreyfingarleysi.
lim biskupa skipti (Drn. Llu)