Fálkinn - 14.08.1959, Blaðsíða 11
FÁLKINN
11
lykkjunni og æfi Leslie Bottoms
vera lokið.
Meðan hann sat þarna og var að
hugsa síðustu hugrenningar æfi
sinnar, setti að honum nokkurn
trega, eins og skiljanlegt er. Því að
þetta er hlutur, sem maður gerir
ekki á hverjum degi — að farga
sér. Og nú vaknaði efi hjá honum
um, hvort Mary Hopkins væri í raun
og sannleika þess virði, að hann
færði henni svona mikla fórn. Því
betur sem hann hugsaði um þetta
því sannfærðari varð hann um, að
þetta tiltæki væri í rauninni mesta
flan.
Eftir þriggja tíma umhugsun
komst hann að þeirri niðurstöðu, að
jafn gleyminn maður og hann mundi
geta gleymt Mary Hopkins líka
þegar frá liði. Og þess vegna var
engin ástæða til að fara að hengja
sig út af henni.
Hann gladdist yfir að vera kom-
inn að þessari niðurstöðu og hopp-
aði niður af greininni með bros á
vörunum.
—-------Þeir fundu hann undir
kvöld. Hann hafði gleymt að leysa
spottann af greininni áður en hann
hoppaði.
-k £itt atf ktierju *
☆☆☆ litla bagan ☆ ☆☆
Gleymni Leslie
☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
Tvennt var einkum áberandi hjá
Leslie Bottom um þær mundir, sem
hann var að draga sig eftir Mary
Hopkins. Annað var ótrúleg
gleymska en hitt alveg dæmalaus
ást.
Gleymnin hafði verið fylgikona
hans svo að segja frá barnæsku.
Það varð ekki tölum talið. hve oft
hann hafði komizt í bölvun veg'na
gleymskunnar, og ekki hafði þetta
batnað með aldrinum. Þetta var
bagalegt, því að unga stúlkan, sem
hann elskaði svo heitt, var afar
stundvís og ábyggileg.
Afleiðingin varð auðvitað sú, að
eftir nokkra mánuði hafði Mary
sannfærst um, að Leslie væri ekki
rétti maðurinn til að tjóðrast við
í hjónabandi. Hann kom að jafnaði
of seint á stefnumótin vegna þess
að hann hafði gleymt tímanum, og
stundum kom hann alls ekki, því
að hann hafði gleymt hvar stefnu-
mótið átti að vera.
Það segir sig sjálft að Mary gat
ekki unað þessu til lengdar, og einn
góðan veðurdag lét hún í ljósi að
hún hefði enga lyst á að giftast
Leslie.
— Eg get ekki hugsað mér að
giftast manni, sem ekki man neitt
stundinni lengur, sagði hún þegar
hann kom á stefnumótið flibbalaus,
og auk þess hálftíma of seint. — Eg
slít þessari trúlofun!
Þetta kom náttúrlega eins og
spúttnikk yfir Leslie, eins og slíkt
kemur jafnan yfir aðra menn. Fyrst
átti hann bágt með að skilja að það
gæti verið alvara. Hann reyndi að
hlæja og slá þessu upp í gaman, en
Mary var ósveigjanleg: hún tók
ekki í mál að vera kærastan hans
lengur.
— Og þar að auki er ég orðin
skotin í honum Andy Hobbles, syni
bakarans á horninu, sagði hún að
endingu, um leið og hún rétti Leslie
hringinn.
Það var þessi setning, sem sann-
færði Leslie um að orrustan væri
töpuð. Hann hafði litið hornauga
til þessa bakarasonar í nokkrar vik-
ur.
— Nú er bezt að ég fargi mér,
tautaði hann við sjálfan sig þegar
Mary var farin, — ég get ekki
hug'sað mér að lifa án Mary.
Það skal sagt Leslie til hróss, að
hann brast ekki kjark. Það þarf
bæði kjark og dirfsku til að fyrir-
fara sér, og Leslie sýndi hvort
tveggja. Hann fór í næstu veiðar-
færaverzlun og keypti sér hæfilega
gildan kaðal. Og svo valdi hann
sér hæfilega stórt tré fyrir utan bæ-
inn.
Hiklaus og djarfur brá hann lykkj
unni um hálsinn á sér og' klifraði
upp í tréð og batt hinn endan á
spottanum um grein. Svo settist
hann á aðra grein, og af henni ætl-
aði hann að detta þegar tími væri
til kominn. Þá mundi herðast að
| Hoilywood er að verða brodd-
1 borgarabær,
Hollywood var öðruvísi en aðr-
ir bœir. Kvilcmyndin var einstæð
X nýung og góðir leikendur yfir-
£ gnœfðu hversdagsfólkið. Fjöldinn
X vissi auðvitað ekki að Valentino
var með magasár eða að Clara
:;j Bow átti við vandrœði að kljást:
:•: fólkið vísaði fyrirlitlega öllu því
X á bug, sem gat skert Ijómann af
•:• afguðum þess. Stjörnurnar voru
:•: höfðingjar Ameríku í tíð þöglu
X myndarinnar, og fólkið sá um að
•:• þœr sœtu öruggar í hásœtinu.
X Allt gekk í lyndi í Hollywood;
X launin voru há og skattarnir lág-
•:• ir. Peningarinar streymdu út og
:;j inn. Douglas Fairbanks og Mary
:•: Pickford voru konungurinn og
X drottningin i Hollywood. Ef þau
•;: buðu fólki heim, var það eins og
konungleg náð. Og sá sem ekki
•:• hafði fengið slíkt heimboð gat
ekki talist til betra fólksins. '
„Nú er Hollywood að verða
•;: broddborgarabœr,“ segir Jayne
X Mansfield. Fyrstu árin voru
X skemmtilegust, trylltustu og
•:• ærslafengnustu árin í sögu kvik-
:•: myndanna. Þá var gullöld í
X Hollywood, stjörnurnar tindruðu,
•:• fólk varð ríkt og barst mikið á og
:< harmleikir og hneykslismál slcift-
X ust á.
•:• í dag standa húsin, sem sam-
X kvœmisfögnuðurinn hljómaði frá
X í fyrri tið, háalvarleg i mistruðu
•:• sólskininu í Sunset Boulevard,
X Flestum þeirra hefur verið breyit
;•: svo að þau eru nœr óþekkjanleg,
•:• en nokkur hafa verið rifin. Gilda-
X skÁlarnir frá gömlu dögunum eru
X horfnir. Sá eini sem eftir stendur
•:• er „Cocoanut Grove“, þar sem
:•: Joan Crawford dansaði charles-
X ton forðum daga. Hann er eins
X og minnismerki horfinnar aldar.
X. Gloria Swanson var í þá daga
X ímynd hástils-glæsimennskunnar.
X Móðursýkin sem greip Hollywood
þegar Gloria giftist laglega greif-
:•; anum Henri de la Falaise var
•:• hrœðileg. Þegar hún og greifin
X komu til baka frá Evrópu, voru
;•; aðalforstjórar allra kvikmynda-
X stöðva mættir, allir sem einn, og
:> fólk tróð sér eins og síld i tunnu
til að fá að sjá þessi frœgu hjón. •:•
Margar hljómsveitir léku, flögg- X
in blöktu um allan bœinn og x
þvert yfir Hollywood Boulevard •:•
voru þandir borðar með áletrun- X
inni: „Velkomin heim — Gloria X
og Hank“. •:•
Síðar stal Connie Bennett greif- ■:■
anum frá Gloriu. Gloria ríkti á- X
fram, sem drottning í ríki Para- •:•
mounts. Það er að segja þangað |:j
til Pola Negri fékk baðklefa við X
hliðina á henni. Þá varð styrjöld. •:•
Gloria vissi að Pola hafði mestu X
óbeit á köttum, og lét smala sam- X
an öllum köttum í nágrenninu og x
reka þá inn í híbýli Polu. Hörð •:•
rimma varð út af þessum hrekk. :j:
Síðustu árin fyrir 1930 varð x
tvennt til að gerbreyta stefnu j:j
kvikmyndasögunnar. — Hávaxin X
sœnsk stúlka sem hét Garbo kom x
til Hollywood, og Al Jolson söng j:j
hátt í kvikmyndinni „Jazzsöng- X
varinn“. Talmyndin hafði barið
að dyrum og hún breytti gersam- j:j
lega gangi himintunglanna, eða X
réttara sagt filmstjarnanna. Fólk :'■:
fór að sjá afguði sína í öðru Ijósi j:j
en áður. Þetta voru karlar og X
konur sem töluðu, skröfuðu og x
skvöldruðu alveg eins og aðrir •:•
menn og konur. Og dísirnar stigu X
niður af stöllum sínum og létu j:j
fúslega afmynda sig og skrifa um j:j
sig í kvikmyndablöðin. Nú' var X
skrifað um það, sem misjafnt eða x
miður heppilegt kom fyrir hjá j:j
þessu fólki — um ástafargan þess X
og hliðarhopp, og það var af-
myndað í allskonar óheppilegum j::
stellingum. Hinar ódauðlegu dísir X
urffu dauðlegar. j:j
-X I
Diana Dors,
enska „kynbomban“ dáist að X
nœrgætni og hugulsemi Ameríku- j:j
manna, sem horfa á sjónvarp. X
Hún segir að þeir séu „gáfaðir, x
samúðarfullir og nœrgœtnir.“ j:j
Hvernig stendur á þessu oflofi? X
Skýringin er sú, að fyrir nokkru :j:
kom Diana fram í sjónvarpinu og •:•
þá varð henni á að hnerra rösk- j:j
lega framan í áhorfendurna, enda X
var hún svo lítið klædd, að kann j:j
ske hefur slegið að henni. Morg- j;j
uninn eftir fékk hún 4000 bréf og :j:
spjöld frá áhorfendum, sem ósk- j:j
uðu henni góffs bata. X
„Eg get tárast yfir svona mik- :j:
illi hugulsemi,“ segir Diana. j:j
Vitið þér ...?
að meira en helmingur af þeim
2800 milljónum, sem lifa á
jörðinni, eiga heima í aðeins
fjórum löndum?
í Kína búa nefnilega 640 milljónir,
Indlandi 400 milljónir, Sovét-Rúss-
landi yfir 200 milljónir og í Banda-
ríkjunum yfir 170 milljónir. Þetta
verða samtals yfir 1410 milljónir.
að stærsta sundhöll heimsins er
í byggingu í Moskva?
Sundlaugin er 13.000 rúmmetra stór
og getur tekið á móti 2000 manns
í einu. Hitinn í lauginni er aldrei
minni en 24 stig, hverju sem viðrar.
Forsætisráðherra Breta hefur ný-
lega fengið nýjan haus, sem sam-
svarar kröfum tímans betur en sá
gamli. Hausinn á honum í vax-
myndasafni Madame Tussauds var
orðinn of unglegur og þessvegna
hefur hann fengið annan ellilegri.
Koma fram í svipnum áhyggjurn-
ar, sem MacMillan hefur af land-
helgisstríðinu.