Fálkinn - 28.08.1959, Qupperneq 3
FÁLKINN
3
Þetta er fyrsta sím-
senda myndin: Frið-
rik Danakonungur
heilsar íslenzku
landsliðsmönnunum
fyrir leikinn á Id-
rætsparken í Kaup-
mannahöfn. í fylgd
með konungi er
Björgvin Cchram,
formaður Knatt-
spyrnusambands ís-
Iands.
£.ímM\nJlar iJcAmifHífir
TÆKNINNI hefur fleygt fram á
síðustu árum, og það jafnvel svo að
nú eru menn farnir að tala um það
að ferðast til tunglsins og annarra
hnatta í fullri alvöru. Það virðist
aðeins tímaspursmál, hvenær þær
ferðir hefjast. En einhvern tíma
munu slík ferðalög ef til’vill vera
talinn jafn sjálfsagður hlutur og
ferðir á milli heimsálfa eru í dag.
Nú finnst engum neitt undarlegt
þótt menn geti ræðst við í síma eða
með loftskeytum héraða eða landa
á milli það er sjálfsagður hlutur.
Og svo verður um allar tæknifram-
farir, þegar þær hafa verið teknar
í þjónustu almennings.
Það er skiljanlegt að við íslend-
ingar höfum orðið á eftir með
margt, sem að tækinni lítur, þar
sem við erum fámenn og afskekkt
þjóð. Fyrst í stað eru allar nýjung-
ar mjög dýrar og oft ófullkomnar
hjá því, sem víðar verður. Við get-
um því tíðum ekki leyft okkur að
hafa hraðann á að taka þær í þjón-
ustu okkar.
Núna nýlega náði ein tækninýj-
ungin, sem víða erlendis þykir orð-
inn sjálfsagður hlutur, hingað til
okkar, en það er sending á ljós-
myndum með loftskeytatækjum,
eins undarlegt og það hljómar.
Morgunblaðið fékk þannig sendar
tvær myndir 18. þ. m. af landsleik
íslendinga og Dana í knattspyrnu,
sem fram fór í Kaupmannahöfn
það kvöld. Eru það fyrstu símsendu
myndirnar, sem koma hingað til
landsins. Héðan hafa hinsvegar ver-
ið sendar fréttamyndir með loft-
skeytatækjum og var það gert í
fyrsta skipti, er sænsku konungs-
hjónin voru stödd hér á landi.
í vor fékk landssíminn vandað
móttökutæki til að taka á móti sím-
sendum myndum, en fyrra tækið,
sem aðeins gat sent myndir, hafði
síminn að láni. — Úr þessu má því
búast við, að við látum okkur ekki
nægja frásagnir af heimsviðburðun-
um daginn eftir að þeir gerast held-
ur fáum myndir af þeim líka.
^§KRÍTLUR
— Yndislega rósin mín, hvíslaði
hann og þrýsti vanganum á henni
að kinn sér.
— Dásamlegi kaktusinn minn,
svaraði liún.
— Eg er kominn til að stemma
fyrir yður pianóið yðar, frú.
— Eg hefi ekki gert boð eftir nein-
um píanóstemmara.
— Nei, en nágrannarnir yðar hafa
gert það.
—o—
Filmudisin fór á lögreglustöðina
til að fá vegabréf.
— Ógift? spurði fulltrúinn.
— Öðru hverju, svaraði filmu-
dísin.
Hér birtist mynd af
aflaskipinu Víði II úr
Garði, sem nú er afla-
hæsta skip síldveiði-
flotans. Víðir kemur
inn til Siglufjarðar
drekkhlaðinn. — Skip-
stjóri á honum er Egg-
ert Gíslason, annálað-
ur dugnaðarmaður.
ÉIÍÉÍS
í . ;
ni
.
.wí'vý's,,