Fálkinn - 11.09.1959, Síða 4
4
FALKINN
Winterthur í Wilmington, Delaware. Myndin ber með sér að barna eru
mörg hús sambyggð, enda hefur verið aukið við bygginguna hvað eftir
annað með aðfluttum húsum. Kringum safnið er skemmtigarður, 30 ekrur
að stærð.
komið fyrir húsgögnum frá sama
tíma og stofan var frá, svo að þarna
eru nú samankomin yfir 100 sýnis-
horn af húsakynnum amerískra
manna frá ýmsum tímum. Er safnið
fimm hæðir, og innanstokksmun-
irnir bera það með sér, að víða hef-
ur verið viðað að. Ekki síst hefur
kínverskt postulín verið í miklum
metum hjá þeim, sem höfðu efni
á að kaupa það.
Du Pont var orðinn meira en hálf-
áttræður er liann hafði komið safn-
inu í svo gott lag að hann taldi
fært að opna það almenningi. Hafði
hann þá byggt sér annað hús til að
búa í og flutt úr safnhúsinu, en
varla leið svo dagur að hann gengi
ekki þar um og liti á gripi sína,
sem hann hefur verið að safna síðan
1923. Og sjálfur sér hann um garð-
inn, sem fylgir safninu og er um
30 ekrur.
Gestir eru áminntir um að þurrka
vel af fótunum á sér áður en þeir
stíga á hina dýru gólfdúka og eru
beðnir um að snerta ekki á mun-
unum. En að öðru leyti er þarna
ekkert, sem minnir á safn heldur
líkjast húsakynnin stórfenglegu
heimili. Þarna eru engin bönd til
að sýna fólki hvar það megi ekki
ganga, og engir glerskápar og hill-
ur, eins og í venjulegum söfnum.
Framhaldsskólarnir í Delaware
njóta góðs af þessu safni og læra
þar meira um sögu Bandaríkjanna
en þeir gætu lært af mörgum bók-
um. Og safnstjórnin kostar tveggja
ára nám tíu stúdenta frá háskólan-
um, sem sérstaklega leggja stund
á byggingasögu Bandaríkjanna síð-
an hvítir menn byggðu landið.
Áherzla hefur verið lögð á að
láta allt líta út eins og þarna séu
lifandi manna bústaðir en ekki safn.
í setustoíunum eru blöð og bækur
frá sama tíma og húsgögnin, svo
og bækur, sem Ameríkumenn lásu
mest á 17. og 18. öld. í borðstofun-
WINTER THVR
Ameríkanskur iðjuhöldur hefur í
áratugi safnað ýmiskonar munum,
einkum húsgögnum, sem eiga að
sýna sögu byggðar hvítra manna
í Bandaríkjunum og komið þessu
safni fyrir á ættaróðali sínu. Er safn
þetta nú opið almenningi, og er tal-
ið að hvergi sé undir sama þaki
ið 1926 og hafði þá um nokkurt
skeið rekið þar bú á jörðinni, sem
er stórbýli. Fór hann þá þegar að
safna húsgögnum og innréttingum
úr gömlum húsum og jafnvel heil-
um herbergjum frá gömlum heim-
ilum frá árunum 1640 til 1840.
Stundum keypti hann heil hús
❖ MERKILEGT MINJASAFN *
Þetta svefnherbergi með húsgögnum er frá Maryland og er kallað „Cecil
bedroom“. I-Ierbergið er frá 1730.
„Shop Lane“ heitir 'þessi 200 ára gamla stofa með múrsteinagólfinu og
kynstrum af allskonar munum úr postulíni og málmi meðfram veggjum.
jafngott úrval sýnishorna af hús-
gagnatízku hvítra manna í Banda-
ríkjunum og þarna. Staðurinn heit-
ir Winterthur og er skammt frá
Wilmington í Delaware-fylki.
Henry Francis du Pont heitir mað
urinn, sem stendur að baki þessu
fyrirtæki. Hann erfði ættaróðal ár-
og notaði sérkennilegustu herberg-
in úr þeim í safnið í Winterthur.
Þannig bættist stofa við stofu en
þessum viðaukum var svo vel fyrir
komið að safnið myndar eina sam-
fellda heild og sá sem um það geng-
ur fær svipmyndir af tveggja alda
byggingasögu. Og í hverri stofu var
Myndin á þilinu er ófullgerð eftir Benjamin West, og sýnir undirskrift
friðarsamninga Bandaríkjamanna við Breta. Húsgögnin í borðstofunni eru
um 180 ára gömul.