Fálkinn


Fálkinn - 28.12.1960, Síða 12

Fálkinn - 28.12.1960, Síða 12
* 21. MARZ - 20. APRÍL 21. APRÍL- 21. MAÍ 22. MAÍ 21. JÚNÍ 22. JÚNÍ 22. JÚLÍ 23. JÚLÍ - 23. ÁGÚST 24. ÁGÚST- 23. SEPT. 24. SEPT- 23. GKT. 24. GKT..— 22. NÓV. 23. NÓV. 21. DES. 22. DES. — 20. JAN. 21. JAN. — 1B. FEBR. 19. FEBR. — 20. MARZ ■iHiiiiiiiiiim lillllililllliigililliiljiiB STJÖRN USPÁIN Hrútsmerkið. Þeir, sem eru fæddir undir þessu merki, eru oft mjög sjálf- stæðir og viljasterkir menn, sem eiga erfitff með að lúta stjórn annarra. Þetta kann að koma sér illa í þessari viku, en ef aðgát er höfð í tíma, býðst gullið tækifæri. Nautsmerkið. Yður. berst mikilvægt bréf, sem opnar yður nýja leið, sem hingað til hefur verið harðlokuð. Dálítið meiri dugn- aður í starfi yðar er æskilegur hið bráðasta. Ef þér hafið augun hjá yður, býðst ljómandi gott tækifæri. Að sjálfsögðu gerið þér yður dagamun um áramtóin, og þá gerast mjög óvæntir atburðir. Tvíburamerkið. Allt gengur snurðulaust á vinnustað, en í einkalífinu geng- ur bæði upp og niður í þessari viku. Þér fáið óvænta upp- örvun frá manni, sem þér átt.uð sízt von á góðu frá. Gætið þess vel, að láta ekki framagirni yðar bit-na um of á öðrum. Krabbamerkið. Vikan eikennist af góðum hugmyndum, sem þér fáið og sem þér skuluð framkvæma á stundinni. Gætið þess að blanda yður ekki inn í deilu milli tveggja manna, sem þér þekkið báða mjög vel. Það verður óvenjumikið um dýrðir hjá yður um helgina — en pyngjan verður heldur betur mjóslegin á mánudaginn. Ljónsmerkið. Það er veikur hlekkur í áætlunum yðar. Reynið að finna hann, áður en allt er um seinan. Föstudagurinn verður mjög skemmtilegur dagur. Maki yðar kvartar með rét.tu yfir því, að þér sýnið heimilinu og börnunum tómlæti og áhugaleysi. Gætuð þér ekki kippt því í lag? J ómfrúarmerkið. Þetta getur orðið erfið vika og vissara að taka engar al- varlegar ákvarðanir í henni. Það er heldur dökkt útlitið í peningamálum yðar og verður það næstu vikur, en upp úr áramótunum ætti það að skána töluvert. Gætið þess að haga yður skynsamlega um áramót.in! V ogarskálairmerkið: Óvænt heimsókn eins eða fleiri manna, sem þér hafið ekki séð lengi, getur varpað ljóma yfir þessa viku. Þér hljótið harða gagnrýni á föstudaginn, en hún er að miklu leyti rétt- mæt, svo að þér skuluð ekki reiðast of mikið. Rólegt og þægi- legt gamlárskvöld. Sporðdrekamerkið: Alvarlegur misskilnigur kemur upp milli yðar og manns, sem þér eigið mikið undir. Þér takið yður þetta nærri, en misskilningurinn leiðréttist, áður en hann hefur haft illt í föi með sér. Annars brosir gæfan við yður með rósrauðri rómantík á hverjum fingri. Bogmannsmerkið. Yður líður bezt, þegar þér getið lifað í friði og samræmi við umhverfið. Þess vegna er hyggilegast að halda sér á mottunni, þegar vinir yðar vilja draga yður út í áhættusamt fyrirtæki nú um áramótin. Sumir hafa gaman af að taka á sig áhættu og standa 1 stríði, en þér eruð ekki maður til slíks. Steingeitarmerkið. Sá misskilningur, sem þér hingað til hafið látið sem vind um eyru þjóta, á sér dýpri rætur en yður grunar, og fyrir marga fleiri en yður verður það mikill léttir, ef þér gerið eitthvað í málinu. Þetta verður mjög hagstæð vika á sviði ástamálanna. VatnsberamerJcið. Ósk rætist, en eftir á að hyggja er ánægjan yfir því ekki í réttu hlutfalli við vonina og tilhlökkunina á undan. Þér eruð þá reynslunni ríkari og látið ekki blekkjast öðru sinni. Hjá ungu fólki er vikan rósrauð af rómantík og hinir eldri létta sér upp svo um munar. Fiskamerkið. Það er varásamt að leika sér að ástinni og hefnir sín ævin- lega. Þér skuluð áfram stefna hiklaust að takmarki yðar og yður verður vel ágengt í því í næstu viku. Vinum yðar finnst þér vanrækja þá, og þess vegna væri tilvalið að bæta úr því nú um áramótin. ::: i:: Verkamennirnir við höfnina í Pireus vinna baki brotnu fyrir lágu kaupi. En þeir eiga sér sameiginlega gleði: Hina fögru Ilyu. Hún er ekki götudrós í eig- inlegum skilningi. Hún selur ást sína einungis þeim; sem henni geðjast að, og hina glaðværu hafnarverkamenn elskar hún og deilir ást sinni jafnt og ríkulega á milli þeirra. Ilya hefur sett sér eina ófrávíkjanlega reglu: Engin viðskipti á sunnudögum! Þá býður hún öllum vinum sínum til sín í einu. Og hún á sér einn veikleika: hún elskar hina sígildu grísku harmleiki. Þegar leiklist- arhátíðin í Aþenu hefst, hengir hún upp skilti á dyrnar hjá sér með svohljóðandi áletrun: „Lokað vegna grísks harm- leiks“.- En hún túlkar hina gömlu harm- » leiki á sinn eigin hátt: þeir enda allir vel. Efst: Tilraun Homers til þess að breyta líferni Ilyu, gerir hana óham- ingjusama og leiða. Fyrir neðan: Þá fyrst tekur hún gleði sína aftur, þegar hún tekur upp fyrra lífemi sitt í glaumnum á kránni. Til hliðar: Á kránni dansa hafnar- verkamennirnir sólódansa undir á- hrifum absinth — gefa sig alla hrynj- andinni á vald.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.