Fálkinn - 01.03.1961, Blaðsíða 4
VIÐSKIPTASKM!
ER í UNDIRBÚNINGI.
Þeir, sem ekki eru skráðir,
láti vita í síma 17016.
ENGINN, sem rekur viðskipti
í einhverri mynd, má láta sig
vanta í
VIÐSKIPTASKRÁNA.
EKKERT starfandi félag má
heldur láta sig vanta.
Tjarnargötu 4
Sími 17016
¥•11 • FRA
I ilkynning bilasolu
GUÐMIJNDAR
Um 'leið og við þökkum viðskiptavinum okkar um land allt
heillarík viðskipti á liðrium árum, höfum við þá ánægju að
tilkynna, að bílasalan er f lutt að Bergþórugötu 3, þar sem við
getum boðið upp á betri þjónustu m.a. meðrúmgóðu bílastæði.
Höfum ávallt á boðstólum flesta árganga og tegundir bíla.
Tökum í umboðssölu. — Örugg þjónusta.
Bílasala Guðmundar
Bergþórugötu 3 . Símar: 19032, 36870
ttlilHÍÍ
GÖMLU DANSANA
á laugardags- og sunnudagskvöldum
—i—
Skemmtið
ykkur þar
sem fjörið
er mest
BINGOIÐ
á fimmtudagskvöldum
BRÖÐFIRÐINGABÚÐ
Franska dægurlagasaöngkon.
an, Edith Piaf, hefur að und-
anförnu legið þungt haldin
á sjúkrahúsi, en er nú kom-
in til fullrar heilsu aftur og
hefur sungið við frábærar
undirtektir á Olympiavariaté
í París. Og Parísarbúar hafa
beitt ímynduarafli sínu til
hins ítrasta til þess að finna upp nýjar og
nýjar aðferðir til þess að hylla þessa vin-
sælu söngkonu.
Þegar hún hafði sungið lagið MilorcL, (sem
mikið hefur verið leikið hér á landi að und-
anförnu) á hljómleikum fyrir nokkru, stóð
einn karlmaður upp á stól og kallaði yfir
salinn:
— Allir karlmenn gjöri svo vel og standi
á fætur!
Þeir gerðu það allir sem einn, og það er
skiljanlegt, að Edith Piaf skyldi vatna mús-
um yfir heiðrinum.
Hinn 66 ára gamli brezki rit-
höfundur, J. B. Priestley,
sem kunnur er hér á landi
af leikritum, sem sýnd hafa
verið eftir hann, sagði nýlega
áhyggjufullur:
— Þegar ég var ungur, þá
var engin virðing borin fyrir
æskunni. En nú, þegar ég er
gamall, er heldur engin virðing borin fyrir
ellinni. Ég er auðsjáanlega fæddur bæði of
seint og of snemma!
Menn verða á margan hátt
vinsælir í þessum heimi, ekki
hvað sízt meðan kalda stríðið
er 1 algleymingi.
Nýlega átti að halda geysi-
mikla hljómleika í Austur-
Berlín, og þeir, sem sáu um
undirbúning hans, vildu
gjarnan leika hið fræga verk
Pvavels, Bolero. En til þess að eiga ekki neitt
á hættu, leituðu þeir fyrst til menntamála-
ráðuneytisins og spurðu hvort nokkuð væri
því til fyrirstöðu að flytja verk þetta, og
hvort hin hávelborna stjórn hefði nokkuð við
meistara Ravel að athuga.
Fulltrúinn, sem fékk málið til meðferðar,
kom eftir nokkra daga rannsókn, brosti út
undir eyru og sagði við formann undirbún-
ingsnefndarinnar:
—- Það er allt í himnalagi með Ravel. Hann
getið þér spilað með góðri samvizku. Hann
neitaði að taka við heiðurslaunum frönsku
ríkisstjórnarinnar á sínum tíma!