Fálkinn - 01.03.1961, Síða 17
RLEIKURINN
fram hjá þessu húsi þarna í gærkveldi.
Allt í einu ruku tveir einkennisklæddir
lögreglumenn á mig, tóku sinn í hvora
öxlina á mér — og sögðu:
„Þú hingað. Hér er hlýtt, hér er hátíð
og hér er matur og gjafir. Allt til reiðu,
vinur. Gerðu svo vel.“ — Og ég, sem
ekki vissi hvaðan á mig stóð veðrið,
hrökklaðist inn í forstofuna og inn eft-
ir henni. Ég var rifinn úr frakkadrusl-
unni minni og síðan hrint inn í loga-
* gylltan speglasal svo að annan eins hafði
mig aldrei dreymt um og þar var allt
til reiðu. Nú, og á eftir hrökklaðist ég
hingað á heimilið með restinni eða rétt-
* ara sagt þeim, sem urðu eftir þegar
hinir fóru.“
Forstöðumaðurinn varð ekki lítið
hissa. Hann vildi þó ekki gera þetta
endasleppt við gamla manninn. Ef til
vill myndi hann muna þennan atburð
— og minnast líknarsamtakanna í arf-
leiðsluskrá sinni. Hann bauð honum til
miðdegisverðar með öðru utangarðsfólki
þennan dag. Og þar sat gamli maður-
inn, glaður og ánægður. Að miðdegis-
verðarboðinu loknu, gekk forstöðu-
maðurinn til bóndans ríka og spurði
hvernig honum hefði líkað.
„Jú, ágætlega. Þetta er gott fyrir
ferðamenn.“
Hann og forstöðumaðurinn fylgdust
að út í fordyrið. Það var eins og gamli
maðurinn ætti eitthvað ósagt. Allt í
einu greip hann lauslega í handlegg
forstöðumanns og sagði mjúkri innilegri
röddu og með bænarsvip í augunum:
„Heyrðu góði. Kannski ég þiggi ann-
ars frakkann.“
Sagan a'f þessu var sögð í samkvæmi
nýlega. Þar var forstöðumaður hluta-
félags nokkurs. Hann sagði:
„Hvað hét þessi maður?“
Sögumaðurinn mundi ekki nafnið.
„Hann hefur víst ekki heitið Jón
Jónsson frá Bsqjarbæ í Bæjarsveit?“
„Jú, einmitt. Það var hann.“
„Já, datt mér ekki í hug,“ sagði for-
stjórinn. „ Hann hefur nýlega verið bú-
inn að fá útborgaða vextina af 150 þús-
und krónum, sem hann keypti fyrir
hlutabréf í fyrirtæki okkar. Ég held
að hann hafi fengið þá útborgaða 21.
desember.“
Eftir guðsþjónustuna langaði mig til
að sjá hvernig umhorfs væri á þess-
um stað á stórhátíð. Allt í einu ruku
tveir lögreglumenn á mig ...