Fálkinn


Fálkinn - 22.03.1961, Blaðsíða 9

Fálkinn - 22.03.1961, Blaðsíða 9
við erum búnir að ala hann í vetur og fyrravetur ogveturinn þarfyrir; mein- ið þér ekki; að hann muni þá vilja rífa undan oss hið andlega lærið?“ Til afbrigða af þessari ræðu, þar sem og er sýnt fram á hversu djöfuHinn leitast við að rífa undan mönnum and- lega lærið. „En við því eru ráð, krist- inn maður: taktu skónál skynseminnar og þræddu hana upp á þráð þrenníng- arinnar, taktu síðan leppdulu lítillætis- ins og saumaðu hana fyrir þína sálar- holu, svo að sá helvízki kattormur, djöf- ullinn, klóri sig þar ekki í gegnum, si sona og si sona“, og þar með hafði prestur krafsað fram fyrir sig með glenntum fíngrum. Eitt sinn færði séra Þórður það í tal í ræðu, hvað það væri að höndla hnossið: „Hnossið skyldi vera græna hettan hans Sturlaugs á Kothaugum. Það skyldi setja hana upp á Lúsíuhól. Og svo skyldu báðir hlaupa, hann Fjósa-Árni og hann Guðmundur á Kópsvatni. Hvor ætli yrði fljótari að ná henni? Ég held hann Guðmundur yrði fljótari; hann mundi höndla hnossið; ég held það. Hvað svo sem ætli yrði úr honum Árna kallinum hérna í Fjósaþúfunum? Séra Þórði var ekki hlýtt til Guð- mundar á Kópsvatni. Það sýnir t. d. þessi ræðustúfur; „Síðasti dagur, það verður mikið alls- herjarþíng. Þar kemur Adam, þar kem- ur Ragnar loðbrók og þar kem ég. Þá segir guð við mig: Þú ert þá kominn hér, síra Þórður í Reykjadal. Ertu nú kominn með allar þær sálir, sem ég trúði þér fyrir? Þá ætla ég að segja: Já, ég er kominn með þær allar nema þann eina glötunarinnar son, Guðmund á Kópsvatni. Þá mun guð segja við mig: Ég tek þá sálina þína fyrir sálina hans. Þá ætla ég að segja: Það máttu ekki, minn herra. Ég kenndi honum eins og öðrum.“ Hér er ein bæntekning séra Þórðar: „Skundaðu upp að Haukholtum, drottinn minn! og hjálpaðu gömlu hjón- unum, sem þar eru 1 innsta rúminu að norðanverðu, og hángir skóbótakippa á stagi uppyfir þeim. Komdu um leið að Skipholtskoti og miskunnaðu barn úng- anum sem þar er í laup á miðju gólfi. En varaðu þig á henni Kotlaugakeldu, hún hefur mörgum körskum á kollinn steypt.“ Önnur: Vér viljum ennfremur biðja fyrir ekkjunni Sigríði Magnúsdóttur hérna í bænum. Hún er þjáð. Hún er krossþjáð. Hana vantar allt: trúna, vonina, kær- leikann og þolinmæðina. Það brakar í henni eins og uglunni hérna í bæjar- þilinu, þegar of þúngt er heingt á hana. Biðjið þið með mér, börn, amen.“ Séra Þórður varð að lokum elliær, og er á frásögur fært, að þá hafi hann eitt sinn kveikt í rúminu sínu til að eyða úr því 'flónum. ★ Séra Einar Eiríksson prests Hallsson- ar var prestur í Grímstungum 1759-— 1785; dó 1810. Hann var dæmdur frá kjóli og kalli og eftir það kallaður Einar prestlausi. Hann var sagður gáfaður en kunnur að undarlegu tali, djarfmælum, uppnefnum á fólki o. s. frv.; jafnvel talinn illmenni á pörtum. Þetta skorinorða niðurlag á stólræðu eftir séra Einar hefur varðveitzt: „Hvar mundi það lenda á sínum tíma, ■ sá lifnaðarmáti sem nú yfirgengur í þessari sýslu, svo sem hórurí, lauslæti, agg, reiði, flokkadráttur, öfund, bak- mælgi, lygi, þjófnaður, drykkjuskapur og annað því um líkt? Hvar mundi það lenda, segi ég, þegar hann sá voldugi Framh. á bls. 28.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.