Fálkinn


Fálkinn - 22.03.1961, Qupperneq 26

Fálkinn - 22.03.1961, Qupperneq 26
Dollaraprinsessan- Framh. af bls. 11. Gregg var kaþólskur, og kaþólska kirkj- an leyfir ekki skilnað. Juarez hafði samt fengið skilnað frá tveim konum sínum . .. eða þær frá honum. Þegar hann var kynntur fyrir Bobo á ströndinni í Bahama var hann enn kvæntur þriðju konu sinni, en far- inn frá henni. Fyrsta kona Greggs var mexíkönsk og neitaði honum um skiln- að af trúar-ástæðum. Hann dvaldi þá hinar nauðsynlegu sex vikur í Reno og fékk skilnað. Það-var því ekki öruggt að skilnaðurinn væri löglegur. Síðar létu Boþo og Juarez gefa sig saman í þrem löndum til að vera alveg viss um að þau væru löglega gift. Frá þeirri stund er þau hittust fyrst á ströndinni voru Bobo og Juarez óað- skiljanleg. Hann fór með henni í nætur- klúbba, út að dansa og á spilavíti. Hún sagði mömmu sinni að hún væri úti með vinum sínum. — Hvít lygi — sagði Bobo. — Og allar ástfangnar, ungar stúlkur beita saklausri lygi. Innan viku hafði Juarez komið í kring skilnaði í Reno og bað Bobo. Með eld- heitum ástarjátningum, sem einkenna þá sem hafa suðrænt blóð í æðum, vann hann þessa feimnu, óreyndu stúlku með áhlaupi. En mamma Boboar komst að því að hún var í óæskilegum félagsskap. Og því miður urðu henni á mistök í fram- komu sinni við Bobo. Hún reyndi að loka dóttur sína inni. Hún leyfði henni ekki að dansa og skemmta sér með ungu fólki af því að faðir hennar var nýlát- inn. Auk þess réði hún tvo einkaleynilög- regluþjóna til að hafa auga með Bobo í öryggisskyni. Þeir tilkynntu samstundis um Juarez. En vissu þá ekkert um fortíð hans — eða framtíð ... Það eina sem þeir vissu var að hann umgekkst Bugsy Siegel, fyrrum glæpamann. Eins og kunnugt er fær fólk oft sama dóm og kunningjar þeirra. Og móðirin og leynilögreglu- mennirnir töldu vin Bobo ekki geta verið þekktan fyrir að vera með Bugsy Siegel. Bobo var skipað að hitta ekki Juarez. Og leynilögreglumennirnir heimsóttu hann og skipuðu honum að hafa sig burt hið snarasta. Annars . . . Oft er það allra versta, sem foreldrar geta gert að þanna ungri dóttur sinni að umgangast einhvern karlmann. Oft gremst henni slíkt bann og gerir þvert á móti af einskærum þráa. Þannig var það með Bobo. Sjö vikum eftir að þau hittust fyrst stakk Juarez upp á að þau skyldu gifta sig strax. Móðir Boþar neitaði að hitta Juarez eða yfirleitt ræða þetta hlægilega bónorð. Hún hafði fengið 26 FALKINN skýrslu frá Bandaríkjunum um fortíð hans og framtíðarhorfur. Hún kallaði Bobo til sín kvöld eitt í marz og talaði lengi og alvarlega við dótturina. Hún sagði henni allt um Juarez og endaði á því að 34 ára gamall maður, sem auk þess hafði átt þrjár konur væri enginn maður fyrir Bobo. — En ég er svo ástfangin í Gregg, sagði Bobo. — Ég ætla að giftast honum. Enginn getur komið í veg fyrir það. Á Bahama gilda brezk lög og enginn yngri en 21 árs getur giftzt án leyfis foreldra. Hin ástfangna Bobo gat alls ekki hugsað sér að bíða í fjögur ár eft- ir að giftast Gregg. Og hann hafði auð- vitað alls ekki hug á að bíða. En það voru litlar líkur til að þau gætu strok- ið til staðar þar sem þau gætu gift sig. Frú Sigrist hafði nú heilan flokk leyni- lögreglumanna til að hafa gætur á, að Juarez beitti engum brögðum. En Bahama er einmitt staðurinn fyrir rómantísk samsæri. Netið þrengdist um elskendurna. Juarez hafði fengið til- kynningu um það frá lögreglunni að landvistarleyfi hans væri útrunnið. Hafa varð snör handtök. Og hér kom Bugsy Siegel inn í leik- inn ... Hann kunni á ýmsu tök og átti auk þess vini, sem gjarnan vildu hjálpa Bobo og Gregg að flýja og fannst þetta bezta grín. Betty Shannon vildi líka gjarnan vera hjálparhella í þessu spennandi ævintýri. Hún sagði seinna. — Þessi indæla stúlka vakti strax meðaumkun mína. Hún syrgði föðurinn, sem hún hafði misst, var örvingluð vegna skilnings- leysis móður sinnar — og ofsalega ást- fangin í Gregg Juarez. Ein af hinum mörgu vinum hennar var Flor de Oro Trujillo, dóttir forset- ans í Dóminikanska lýðveldinu og fyrr- um kona Porfirio Rubirosa, Og sá kunn- ingsskapur varð síðar til mikillar hjálp- ar. Betty og vinir hennar komust að þeirri niðurstöðu að þau skyldu gifta sig á Haiti, þá væri ekkert unnt að gera þeim. En því miður voru þessar upplýsing- ar rangar. Það var líka erfitt að komast til Haiti. En Betty leigði á laun bát, sem átti að flytja þau þangað. Beita varð mikilli varkárni í öllu vegna leynilögreglumannanna. Bobo og Juarez ákváðu því að hittast ekki í tvo daga til að forðast grun. Úti fyrir Nassau lá hraðbátur og beið. Juarez leiddi lögreglumennina af sporinu og komst óséður um borð. Betty kom og bauð Bobo út. Og móðirin grunaði hina elskulegu Betty ekki um neina græsku. Og því sá hún eftir seinna. Leynilögreglumenn hafa sína veiku punkta. Þegar Betty og Bobo fóru inn um dyrnar, sem á stóð ..konur“ til að snyrta sig, gættu þeir dyranna vel. Tíu mínútum seinna kom Betty út ein. Þeir Framh. á bls. 30. Staðurinn, sem við lýsum að þessu sinni er snotur bær. Byggðin er reglu- leg, götur sæmilega breiðar og skipu- lega lagðar. Nokkrar stórar byggingar, sem eru vel staðsettar og stílhreinar, setja skemmtilegan og hreinlegan svip á bæinn. íbúðarhúsin eru flest einbýlis eða tvíbýlishús með rúmgóðum og vel hirtum lóðum og víða eru blóm og trjá- garðar umhverfis þau. Segja má, að bærinn verði fallegri með hverju ári sem líður vegna aukins blóma og trjá- gróðurs við húsin. Sýnilegt er, að flest- ir5 sem sezt hafa að í þessum unga bæ og reist þar bú, hafa fullan hug á að fegra umhverfi sitt með fögrum gróðri. Ýmsum þykir einkennilegt, að það fjölmenni, sem tekið hefur sér bólfestu á þessum stað, s'kuli hafa þar næga at- vinnu og spyrja: — Á hverju lifir eiginlegt allt þetta fólk? Spurningin er ekki óeðlileg sett fram af ókunnugum. ☆ Staðurinn stendur tólf kílómetra frá sjó og því ekki um neina útgerð að ræða eða atvinnu í sambandi við hana, sem í flestum bæjum hér á landi er undirstaða atvinnulífsins. En þrátt fyrir þetta er næg atvinna á þessum stað. Þarna eru nokkur iðn- fyrirtæki, verzlanir og opinberar stofn- anir. Við þetta hefur fólkið starf og einnig við byggingar, sem hafa verið að rísa af grunni á undanförnum árum. Meira að segja hafa margir utanhrepps- menn haft stöðuga atvinnu við þessar byggingar á undanförnum árum. ☆ En þungamiðja athafnalífsins er í sambandi við afurðir eins víðlendasta og blómlegasta landbúnaðarhéraðs á þessu landi. Þangað eru afurðirnar flutt- ar daglega og síðan fluttar á sölustað og seldar. Þróunin hefur sem sagt orðið sú, að á þessum stað hefur á fáum árum risið upp myndarlegur og fjölmennur bær, þar sem fólkið hefur nóg að starfa og unir hag sínum hið bezta. ☆ Þess skal að lokum getið, að Esjan, hinn glæsilegi farkostur Skipaútgerðar ríkisins, sem mun flytja hinn heppna vinnanda þessarar getraunar hringinn í kringum landið, — mun að öllum lík- indum eiga erfitt með að komast að þessum stað, nema þá í 1. apríl-frétta- auka hjá fréttamönnum Ríkisútvarps- ins!

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.