Fálkinn


Fálkinn - 03.05.1961, Síða 7

Fálkinn - 03.05.1961, Síða 7
r stað, — hann er laus úr faðmi sand- kvikunnar. Stúlkurnar tvær eru skyndi- lega fullar af lífi. Bros þeirra, fjarræn og seiðmögnuð, vaka í skugga kvölds- ins langt austur á sandi. II. Samkomuhúsið á Kirkjubæjarklustri er rúmgott og vistlegt, en undirlagt bak- pokum og öðrum ferðabúnaði þessa stundina. Kokkurinn er á réttum stað og kann sitt verk. Eldhúsið ilmar af kaffi, brauði og öðrum kræsingum og mörg lagleg hnátan á þangað erindi áður en uppþvætti lýkur. Svefnhljóð fólksins eru margbreytileg, eins og mannlífið sjálft, — djúp og myrk, létt og hlý. Það er klukknahljómur í næturgjól- unni. Kirkjugólfið dunar af fótataki horfinna kynslóða. Séra Jón Steingríms- son er að messa. Eldmessan. — Hraun- flóðið stöðvast, — staðnum er borgið. Lengra í fjarska má greina bænatuld- ur nunna við Systrastapa. Uppi á stap- anum eru þrjú leiði, — tvær nunnur og einn smali. — Þær voru systur í guði, en ekki í syndinni. Önnur þeirra — menn vissu ekki hvor, — hafði hras- að með smalanum. Til þess að fullnægja þríeinu réttlæti, voru þau öll líflátin. Leiði þeirra seku eru síföl og visin, leiði hinnar saklausu er sígrænt. Eins og vindur um nótt.------- Eins og vindur um nótt flýgur hamingjan höggstokknum frá. Eins og vindur um nótt. Eins og vindur um nótt, fer þinn svipur með særða þrá. — Það er kominn morgun. Ung, ljós- hærð stúlka, með vor í grænum aug- um, fyllir húsið brosi. Við ökum heim að Skaftafelli. Þar er sagt, að sé eitt fegursta bæjarstæði á landinu. Bæjargilið er sérkennilegt og fagurt. — Djúpt, skógivaxið gljúfur. Svartifoss, lengra frá, fellur í stíl- hreinni stuðlabergsumgjörð. Ragnar bóndi gerist fylgdarmaður okkar inn í Bæjarstaðaskóg. Sandurinn er viðsjáll og grýttur. Níu stynjandi bílar mjakast áfram hægt en öruggir. Morsárdalur blasir við með hrikalegum snæviþökt- um fjöllum. Bæjarstaðaskógur er nakinn. Trén seil- ast eftir sólskininu með kræklóttum greinum. Þótt skógurinn sé enn ekki laufgaður er ilmur úr mold og berki. Hér er jörðin auð og klakalaus. Grænir lágvaxnir runnar þekja sums staðar skógarbotninn. Fólkið er glatt og hverf- ur í smá hópum masandi inn í skóginn. Niðri á sandinum bíða bílarnir í skipu- legri röð. Við erum stödd við Sandgígjukvísl. Þetta óstýriláta jökulfljót fellur nú und- ir þykkri ísbrynju, — strengur gígj- unnar þögull, — sandurinn frosinn. Bíl- unum er raðað á fljótsbakkann. Guðmundur tekur sér járnkarl í hönd

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.