Fálkinn


Fálkinn - 03.05.1961, Blaðsíða 25

Fálkinn - 03.05.1961, Blaðsíða 25
 ■ mAs iW ,V«W * iV* ímí4M** . r#; PEYSA Á BÚNDANN Efni: Nál. 500 g kóngablátt og 250 g hvítt, fjór- þætt ullargarn. Prjónar nr. 3 og 3V2. 14 lykkjur og 14 umferðir eru 5 cm. Bakið: Fitjið upp 120 1. á prj. nr. 3 með bláu garni og prjónið 3 cm breiða brugðninga, 1 sl. og 1 br. Skiptið yfir á prjóna nr. 3 V2, aukið út jafnt um 18 1. á fyrsta prjóninum, byrjið strax að prjóna mynstrið (sjá skýringamynd). Prjónið beint, þar til stykkið er 58 cm frá fit, fellið þá af fyrir öxl 4X10 lykkjur hvoru megin. Prjónið 1 cm af mynstrinu með þess- um 58 lykkjum, sem eftir eru og því næst 4 prjóna 1 sl. og 1 br. með bláu garni. Fellt af. Framstykkið: Prjónað á sama hátt. Ermar: Fitjið upp 60 1. á prj. nr. 3 með bláu garni og prjónið 6 cm breiða brugðninga, 1 sl. og 1 br. Skiptið yfir á prjóna nr. 3y2, aukið út jafnt um 20 1. og byrjið á mynstrinu. Aukið út 1 1. hvoru megin á 6. hverjum prj. 17 sinnum (114 1.), og þegar ermin er 43 cm, er aukin í 1 1. á öðrum' hvorum prjón beggja vegna 11 sinnum (136 L). Þegar ermin er 51 cm, er fellt af. Frágangur: Saumið axlasaumana saman og hliðar- saumana að 34 cm. Saumið ermarnar saman, og saum- ið ermarnar við bolinn. Skýringamynd: X = endalykkjurnar. O = blátt. □ -- hvítt. £i)clítii uin ^cl^tep/íi Gólfteppin gera heimilin vistleg og hlýleg, en þurfa mikla hreinsun. Þótt þau séu ryksuguð dag hvern, þá er nauðsynlegt á vorin að hressa dálítið upp á þau. Og við verðum einnig að hafa í huga mölinn, sem á ekki að fá tækifæri til að klekjast út í hornunum. Áður en við hreinsum teppið, er mik- ils um vert, að allt ryk sé farið úr því. Bezt er að koma teppinu út undir bert loft og berja það vel. Fyrst er teppið barið á röngunni, síðan á réttunni. Áð- ur en það er borið inn, er það burstað með stífum bursta bæði langsum og þversum. Sé ló á teppinu, er að lokum burstað með lónni. Séu ekki aðstæður til að koma teppinu út, er það ryksug- að bæði á réttunni og röngunni. Við hreinsunina er ýmist hægt að nota salmiakblöndu eða sápufroðu af þvottalegi, sem freyðir vel og myndar stöðuga froðu. Sé t. d. notað þvol eða annar íslenzkur lögur, er hæfilegt að hafa styrkleika upplausnarinnar 1 á móti 5—10 hlutum af vatn. Þeytið í upplausninni þar til myndast þétt froða, líkust eggjahvítu. En það er froðan, sem við æflum að nota. Sé notað salmiak, er hlutfallið 1 á móti 2 af vatni. Ef froða er notuð, er hún borin á, síðan þurrkuð af með harðundnum, ylvolgum, hreinum klút, þess gætt að bleyta tepp- ið sem minnst, og að lokum er þurrk- að yfir með þurrum klút. Sé salmiak notað, er fyrst nuddað yfir með þeirri blöndu, síðan eins og fyrr segir. Athug- ið, að skola vel öll óhreinindi úr klút- unum og skipta nógu oft um skolvatn. Sé kögur á teppinu, er það einnig hreinsað. Þess skal að lokum gætt, að ganga ekki á teppinu, fyrr en það er orðið þurrt. Á sama hátt er hægt að lífga upp á flest ullaráklæði.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.