Fálkinn


Fálkinn - 03.05.1961, Blaðsíða 15

Fálkinn - 03.05.1961, Blaðsíða 15
nema kannski fara í bíó. Óhjákvæmileg- ur fylgifiskur göturöltsins og sjoppu- rápsins er áfengið, og flest afbrot ungl- inga standa í sambandi við áfengis- neyzlu, líkt og hver lögreglumaður get- ur tjáð þeim, sem um það efast. Nú er það einu sinni svo, að þessir 14—18 ára unglingar, bera þó það mikla virðingu fyrir foreldrum sínum, að þeir dirfast ekki að neyta áfengis í heima- húsum, og ef eitthvað er aðhafst með það fyrir augum að halda þessum ungl- ingum inni á heimilunum á síðkvöldum, mundi trúlega draga úr næturgöltrinu á götum bæjarins, og áfengisneyzla ungl- inga minnka. Hér gæti sjónvarpið átt drjúgan þátt. Hitt er svo annað mál, að hvað sem allar siðferðisnefndir segja, þá er ekki hægt að halda unglingum Reykjavíkur fyrir framan sjónvarps- tæki á heimilum sínum með því að sýna fræðslumyndir um mannkynssögu o. s. frv. Skemmtiefnið má ekki afrækja, og það þarf víðsýna menn til þess að stjórna hinu íslenzka sjónvarpi þegar þar að kemur. Afbrot unglinga aukast, ef þeim eru sýndar spennandi sakamála-, skemmti- og ævintýramyndir, segja siðferðispost- ularnir. En gaman væri að fá einhverja ,,statistík“ um það, hvort sé líklegra til að ala á afbrotum unglinga, sakamála- myndir í sjónvarpi eða sjoppuráp og á- fengisþamb á síðkvöldum. Sú ,,statistík“ mundi trúlega fara á einn veg, enda er það reynsla t. d. Breta, að afbrot ungl- inga stórminnkuðu, er sjónvarpið tók til starfa þar í landi. Ekki hægt að byggja eingöngu á innlendu efni. Menn ræða á opinberum vettvangi um að hið íslenzka sjónvarp verði að flytja sem mest af innlendu efni ýmiss konar, leikrit, fréttir, sjónvarp frá í- þróttamótum, ýmsa þætti o. s. frv. En enginn virðist gera sér ljóst hversu geysilega dýrt það yrði að sjónvarpa slíku efni. Til þess þarf m. a. svonefnd hefur með grein þessari umræður um sjónvarp á ís- iandi. Hvert er álit yðar á því máii? Sendið okkur iínu. Video-Tape segulbandstæki, en það eru nánast segulbandstæki, sem ekki taka aðeins upp tón og tal, heldur einnig myndir. Sá er þó galli á gjöf Njarðar varðandi þessi tæki, að þau kosta 75 þúsund dollara, eða um þrjár milljón- ir íslenzkra króna, og nota verður sama upptökutækið til þess að sýna segul- bandið, þannig að nýting þess er ekki nema 50%. Þessu fylgja þó þeir kostir að hægt er að sjónvarpa efninu, þegar eftir upptöku, og ekki þarf að bíða framköllunar, eins og er um kvikmynd- ir. Framleiðslukostnaður sjónvarps- þátta er gífurlegur, og má þar til nefna að klukkutíma sjónvarpsþáttur kostar um 80—90 þúsund dollara vestan hafs, eða 3—4 milljónir króna. Það segir sig sjálft, að íslenzkt sjónvarp gæti aldrei staðið undir slíku. Þá er þess að geta, að sjónvarpsvélarnar sjálfar eru mjög dýrar í innkaupi og rekstri, og loks má minnast á að sjónvarpssendingin sjálf er skammdræg, þannig að ef sjónvarpa á frá einni stöð um allt landið, líkt og flestir álíta að beri að gera, verður að setja upp endurvarpsstöðvar á annan hvern fjallstind um land allt. Litlar, sjálfstæðar stöðvar. í vetur var hér á ferð bandarískur maður, Harry Engel að nafni, og vildi lána íslendingum fé til þess að koma upp sjónvarpi. Hann benti réttilega á, að vegna kostnaðar væri ógerningur að sjónvarpa frá einni lykilstöð með end- urvarpi. Hagkvæmast væri að reisa litl- ar stöðvar á heppilegum stöðum, og yrðu þær sjálfstæðar að nokkru leyti. Sjónvarpsefnið, á filmum, yrði síðan sent á milli þessara stöðva, þannig að þær sýndu ekki allar sama efnið sam- tímis. Vildi Engel fyrst láta reisa litla stöð fyrir Reykjavík og nágrenni, og FALKINN 15 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.