Fálkinn


Fálkinn - 03.05.1961, Blaðsíða 13

Fálkinn - 03.05.1961, Blaðsíða 13
AR FÁLKINN spjallar við P&Ó í Austur- stræti, sem hafa ver- ið vinir og samstarfs- menn í 30 ár. Ólafur (til vinstri) og Pétur (til hægri) í verzlun sinni í Austur- stræti 14. — En hvernig stendur á því, að það er ekki eins mikið um erlendan klæðn- að og maður átti von á að sjá í búð- um eftir að allt var gefið frjálst? — Það er einfalt svar við því — pundið gerir hvorki meira né minna en 440 krónur út' úr búð! Við keypt- um t. d. enska frakka á 9 pund stykk- ið og þeir kostuðu ,,aðeins“ 3200 krón- ur með öllum tollum og eðlilegri álagn- ingu. Við höfum því miður ekki bol- magn til þess að hafa svo dýra vöru á boðstólum. Aftur á móti hefur ís- lenzki iðnaðurinn tekið ótrúlegum breytingum. Hann var alveg hörmuleg- ur til að byrja með, en nú er margt eins gott og það erlenda, t. d. skyrtur, föt og margt annað orðið alveg prýði- legt. — Við skulum hugsa okkur að nak- inn maður kæmi í búðina og hann bæði ykkur að klæða sig upp: nærföt, sokk- ar, skyrta, bindi, föt, frakki, hattur, trefill, skór, hanzkar og vasaklútur. Hvað myndi þetta kosta manninn? Það er Ólafur, sem leggur saman á blað. Við göngum út frá meðalverði á öllum hlutum og gerum ráð fyrir að skórnir kosti 400 krónur, þar sem þeir selja ekki skó. — Þetta verða 5263 krónur, segir Ólafur. — Er fatanður kannski hlutfallslega ódýrari nú en áður? — Við getum ekki betur séð, en hlut- fallið sé miklu betra nú. 1930 hefði áreiðanlega þurft þriggja vikna laun til að kaupa ein föt. Enda var það svo hér fyrir stríð, að það voru ekki aðrir en sæmilega efnaðir menn sem keyptu föt hjá Haraldi. Unglingar komu sjald- an til að kaupa föt; þeir gengu í upp- gerðum fötum og slitnum. — Þegar maður gengur um bæinn og horfir á unga stráka, þá tekur maður sér- staklega eftir því, hvað þeir eru vel til fara. Er það ekki rétt? — Jú, það er sérstaklega eftirtektar- vert. Þegar unglingar verzla við okk- ur eru þeir mjög nákvæmir í vali og gæta vel að því að fylgjast með tízk- unni. — Verðið þið ekki að hafa ýmislegt gamalt á boðstólum? — Jú, aftaní- og framaní-hnappa, sokkabönd, pípuhatta, mokkasíur og sitthvað annað. Við höfum fengið marga viðskiptavini úr Haraldarbúð, sem halda áfram að kaupa það gamla. Sum- ir geta ekki hætt að ganga með sokka- bönd, svo við verðum að eiga þau til. Aftur á móti hafa unglingar spurt okk- ur til hvers sokkabönd séu notuð — svona breytast tímarnir. — Nokkur bylting í karlmannatízk- unni? —- Nei, það er aldrei um neina gjör- breytingu að ræða í karlmannatízku. Ef nakiflit maður kæmi í fataverzlun og bæði um alklæðnað: nærföt, sokka, skyrtu, bindi, föt, frakka, hatt, trefil o. s. frv. — Hvað skyldi það kosta mikið allt saman? Buxur eru nú þrengri en áður og með skávösum, þrjár tölur í jakka í stað tveggja, en þetta eru allt smávægileg- ar breytingar. Erlendis eru gerðar til- raunir að gjörbreyta tízkunni, en það eru bólur, sem hjaðna niður jafnóðum. — Nú spyrja ungir menn t. d. eftir skyrtum með prjóni í gegnum flibbann, en það höfum við ekki til, því verk- smiðjurnar hafa ekki áhald til að gera Framh. á bls. 30. Sú var tíðin, að allir strákar gengu með hatta, en undanfarin ár hefur verið lítið um það. Nú eru hattar aftur komnir í tízku hjá strákum og fjölmargir kaupa nú hatta til að gefa fermingardrengjum. Nýjasta tízkan eru hattar með mjög litlum börðum., eins og myndin hér að neðan sýnir.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.