Fálkinn - 25.04.1962, Blaðsíða 4
séð & heyrt
Fræg moðir og barn
May Britt Wilkens var nýlega í heimsókn hjá foreldrum sínum
í Svíþjóð og auðvitað tók hún Tracey litlu með sér. Hún er að vísu
vanari heitari sól, en vitaskuld var hún strax klædd í falleg norsk
barnaföt.
Texti eftir buxnalengd
Ung móðir hafði keypt farmiða fyrir sig og
sjö ára son sinn á franskri járnbrautarstöð.
Eftirlitsmaðurinn Ieit efins á strákinn og sagði:
— Það er ekki hægt að aka fyrir hálft verð með
strák, sem er í svona síðum buxum.
— En monsieur, sagði móðirin brosandi, ef
fargjaldið fer eftir buxnasídd, þá kemst ég næst-
um . . . hm . . . ókeypis.
Eftirlitsmaðurinn lét þetta svar gott heita og hleypti frúnni og
syni hennar brosandi upp í lestina.
Finnska tónskáld-
ið, Sibelius, mundi
snúa sér við í gröf-
inni, ef hann gæti
lesið þetta.
Það eru ekki ein-
göngu Parísarbúar,
sem dýrka hinn
nýja dans, twist,
heldur hafa aðdáendur þessa dans á öðrum
stöðum þurft að feta í fótspor þeirra Parísar-
búa á ýmsum minniháttar næturklúbbum. Á
nokkrum slíkum stöðum hafa menn útsett
einn frægasta vals Síbelíusar í twist.
Og hljómsveitirnar hafa skírt hann upp á
nýtt, hér eftir heitir hann: — La walse twist.
★
Illkvittnin ríkir stöðugt í þeim fræga bæ,
Hollywood. — Ekki alls fyrir löngu, þegar
kynbomban Jayne Mansfield var stödd í hana-
stélsboði, sagði hún fagnandi og það var ekki
laust við gort í rödd hennar: — Vitið þið, að
ég hef nú grætt fyrstu tíu milljónirnar mínar.
— En hvað það var dásamlegt fyrir þig,
sagði ein af hinum fögru vinkonum hennar,
þá hefurðu efni á að fara í leikaraskóla.
★
í Belgrad gengur
ofurlítil saga meðal
manna um Nóbels-
skáldið Ivo Andric,
sem ber hæversku
hans fagurlega
vitni.
I loftárásunum í
fyrri heimsstyrjöld-
inni síðari, þegar Þjóðverjar réðust á Júgó-
slavíu, voru allar götur yfirfullar af fólki,
sem reyndi á allan hátt að komast undan
þessari hættu — en Ivo Andric sat bara
hinn rólegasti í stofu- sinni, og hélt áfram
að skrifa.
Seinna spurði einn vinur hans: — Hvers
vegna í ósköpunum reyndir þú ekki að flýja
líka?
— Það skal ég segja þér, hljóðaði svarið.
— Eg gekk út að glugganum og sá allt þetta
fólk á flótta. Allir voru að reyna að bjarga
einhverjum — kona, barni eða gamalmenni.
En ég gat engu bjargað, nema sjálfum mér,
og mér var þegar ljóst, að það var lítilmann-
legt að flýja aðeins til þess að bjarga mínu
eigin lífi.
4 FÁLKINN