Fálkinn - 25.04.1962, Síða 35
BAUER
REIÐH JÓLIIM
WINTHER
þríhjólin vinsælu
Alls konar varahlutir
í reiðhjól sendir í
póstkröfu um land allt.
ÖRIMINIM
Spítalastíg 8 — Sími 14661, Box 671.
HrútsmerkiÖ (21. marz—20. apríl.).
Að öllum líkindum munuð þér fá gott tilboð í þessari
viku, og þér getið búizt við því, að eitthvert skyld-
menna yðar styrki yður og æt.tuð þér ekki að þurfa
að hugsa yður lengi um, áður en þér takið því.
Nautsmerkið (21. april—20. maí).
Þessi vika verður eins konar prófraun fyrir yður,
ef þér standist hana, þá mun það hafa mikla þýðingu
fyrir yður í framtíðinni. En talið ekki margt um
málið, fyrr en því er lokið. Það getur spillt öllum
gangi þess.
Tvíburamerkiö (21. maí—21. júní).
Þér ættuð að reyna að komast hjá því að taka
einhverjar ákvarðanir eða skipuleggja áform yðar
í smáatriðum. Svo er mál með vext.i, að á þessu tíma-
bili skiptast á skin og skúrir og það ríður á, að kunna
að haga seglum eftir vindi.
Krabbamerkiö (22. júní— 22. júlí).
Þér ættuð að gæta þess vandlega að efna loforð
þau, sem þér hafið gefið upp á síðkastið. Innan tíðar
mun þér fá mörg góð tilboð og vissulega eigið þér úr
vöndu að velja. Upphringing á föstudag eða laugar-
dag mun koma yður í mjög gott skap.
Ljónsmerkiö (23. júlí—22. ágúst).
Framtíðin brosir yður í mót og þér eigið von á
viðurkenningu frá vinnuveitendum yðar fyrir frábær
störf. Hæfileiki yðar til að laga yður að mismunandi
umhverfi og aðstæðum gefur yður kost á mörgu sem
þér hefðuð annars misst.
Jómfrúarmerkið (23. ágúst—23. sept.).
Fyrstu daga vikunnar munu berast mjög gleðilegár
fréttir, sem gera það að verkum, að lundin verður
léttari en nokkru sinni fyrr. Undanfarið hefur fjár-
hagur yðar ekki verið nógu góður, en ef þér hafið
betra taumhald á útgjöldunum, ætti þetta að lagast.
Vogarslcálarmerkiö (23. sept.—22. okt ).
Það gætir nokkurs kala í samskiptum yðar við
nokkra fjölskyldumeðlimi. Sökin er yðar og þér skul-
uð kippa þessu í lag hið fyrsta. Eðlileg samskipti fólks,
sem þér umgangist er yður nauðsynleg. Sýnið alúð
og vingjarnleika, þá mun allt verða gott aftur.
Sporðdrekamerkiö (23. okt.—21. nóv.).
Það kann að vera að fyrstu dagar vikunnar verði
dálítið erfiðir, en ef þér reynið allt sem þér getið til
þess að komast yfir erfiðleikana, spá stjörnurnar
góðum árangri. Óttist ekki að framkvæma nýjar hug-
myndir, því að þær verða til góðs.
Bogamannsmerkiö (22. nóv.—22. des.).
Þér hafið verið alltof eirðarlaus og léttlyndur í
öllu, sem þér hafið komið nálægt. Reynið að bæta þetta
og grípa hlutina réttum tökum. Lífið er ekki spaug
eitt. Alvaran bíður við næsta leiti.
Steingeitarmerkiö (23. des.—20. jan.).
Blómleg framtíð virðist bíða yðar, og þér munuð
öðlast hjálp frá mörgum mönnum og það persónum,
sem þér bjuggust við, að enga aðstoð mundu veita
yður. Forðist allar deilur og rifrildi í næstu viku. Það
getur eyðilagt allt saman.
VatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. febr.).
Stjörnurnar segja, að þessi vika verði mjög hag-
stæð á öllum sviðum. Yður er þess vegna óhætt að taka
djarfar ákvarðanir og skeytið því engu um fjárhag-
inn. Áhættan borgar sig alltaf. Tilveran verður af-
skaplega leiðinleg, ef maður reynir ekki sjálfur að
fegra hana.
Fiskamerkiö (20. febr.—20. marz).
Ef þér látið það vera að ergja yður yfir smámun-
um, er útlit fyrir, að þetta verði mjög hagstæð vika.
Einkum mun föstudagurinn verða til heilla. Þér ættuð
að gæta varúðar í umgengni við hið fagra kyn.
FÁLKINN 35