Fálkinn - 05.09.1962, Síða 15
KARL STRAND
— Þá reyndi maður að rifja upp það sem Guðmundur Thoroddsen sagði manni.
í lækningum vefrænna taugasjúkdóma á
heimsfrægum spítala, National Hospital,
Queen Square. Þar voru menn saman-
komnir hvaðanæva úr veröldinni,
Afríku, Kína og Indlandi, enda megin-
landið lokað og Lundúnir því ein af
þeim borgum sem opnar voru.
Að lokinni dvölinni fór Karl Strand
til Oxford og starfaði á hernámsspítala
þar sem gert var að höfuðáverkum. Um
þetta leyti var nýlega komin til sög-
unnar svonefnd heilaritun, nýlunda í
læknisfræðinni. Átti Karl Strand kost á
því að fylgjast með þróun heilaritunar,
sem er í því fólgin að rafmagnssveiflur
heilans eru teknar upp og koma fram
á pappírsræmu. Vann Karl þar með
Dennis Williams sem var brautryðjandi
í þessum visindum. Með þessu móti er
hægt að staðsetja æxli og áverka á
heilanum og komast að raun um eðli
þeirra. Spítali þessi var tengdur flug-
hernum og má því nærri geta að ekki
hafi skort rannsóknarefni, flugvélar
voru skotnar niður unnvörpum og slys
tíð.
Eftir dvölina í Oxford flyzt Karl að
nýju til Lundúna þar sem hann tekur
til starfa á elzta spítala Bretlands, St.
Bartholomew Hospital, sem stofnaður
var á 12. öld. Þar dvaldi læknirinn ís-
lenzki í eitt ár og komst nú fyrst í al-
vöru í snertingu við styrjöldina og það
böl er henni fylgdi. Auk þess kynntist
hann ýmsum skuggahliðum Lundúna-
borgar sem ekki er flíkað í ferðamanna-
pésum.
Spítalinn er staðsettur í útjaðri City,
þar sem er miðstöð viðskiptalífs Bret-
lands og því eitt af eftirsóttustu skot-
mörkum Þjóðverja. Auk þess eru hafn-
arhverfi skammt undan þar sem býr
margt af snauðasta almúga og vesal-
asta fólki í Englandi.
Um þetta leyti náðu loftárásír Þjóð-
verja hámarki. Stundum virtist öll
borgin að sjá sem logandi haf þar sem
eldsúlur stóðu hátt í loft upp og eim-
yrjuna lagði um allt. Stórhýsin hrundu
bókstaflega eins og spilaborgir, nær
öll húsin byggð úr múrsteini og urðu
að rjúkandi grjóthrúgu á andartaki
þegar sprengja hitti í mark. Eins og
nærri má geta var ekkert lát á slösuðu
fólki sem flutt var úr rústunum á spít-
alann. Sumir höfðu legið mörg dægur
grafnir undir brennandi rústum og voru
þeir verst leiknir af öllum.
Sánkti Bartólómeus hélt þó verndar-
hendi yfir spítala sínum þótt bygging-
arnar í kring yrðu fyrir sprengjuregni
hver af annarri. Aðeins ein sprengja
hitti spítalann sem var ein þyrping húsa,
hún lenti á húsi sem notað var undir
kennslu og var enginn staddur í hús-
inu utan strákur einn í kjallaranum og
slapp hann með skrámu.
Þrátt fyrir ógnir stríðsins, skort á
nauðsynjum og langan vinnutíma, var
oft glatt á hjalla með starfsfólki spít-
alans og reyndi hver að gera öðrum lífið
létt.
Meðan Karl vann á spítalanum var
hann meðlimur í svonefndum Flying
Squad, en það var læknasveit sem send
var út í fátækrahverfin í kring til að
veita læknishjálp þegar á þurfti að
halda. Einkum var um að ræða fæð-
ingarhjálp og aðstoð við Ijósmæður.
Þar fékk Karl Strand að kynnast
verri örbirgð og meiri eymd en hann
hafði áður ímyndað sér að væri til.
Snauðustu kot á íslandi voru hátíð hjá
þeim híbýlum sem fólkið hírðist í og
kjör þess aumari en nokkurs fólks sem
Karl hafði áður kynnzt. Sumstaðar
urðu heilar fjölskyldur að kúldrast í
einu herbergi, auðsætt var á fólkinu,
að það bjó við matarskort og yfirleitt
var þrifnaður ekki upp á marga fiska.
Ýmsir íbúar fátækrahverfanna höfðu
ýmugust á sjúkrahúsum og sumum
jafnvel um og ó, að læknir kæmi inn
á heimilið. Þetta fólk hafði einhverja
hugmynd um að algengt væri að menn
dæu á sjúkrahúsum og því var ekki að
sökum að spyrja, þessar stofnanir hlutu
að vera stórhættulegar. Á þessum ferð-
um um fátækrahverfin urðu hinir ungu
læknar oft að framkvæma læknisað-
gerðir og nota ýmsar aðferðir sem þeir
höfðu ekki áður reynt og þekktu ekki
nema af lestri bóka. Karl kveðst á þess-
um tíma t. d. hafa neyðst til að nota
ýmsar aðferðir við fæðingar sem hann
hafði aðeins lesið um, en aldrei séð
gerðar. Þá þurfti oft að hafa hraðann
á og engin leið að fá aðstoð. „Þá reyndi
maður bara að rifja upp það sem Guð-
mundur Thoroddsen hafði sagt manni,“
segir Karl þegar hann rennir huganum
yfir starf sitt í aumustu fátækrahverf-
um Lundúna. — Nú er búið að jafna
flest þessara hverfa við jörðu og fólkið
hefur fengið betri húsakynni.
*
Sumarið 1943 flyzt Karl Strand á
Frh. á bls. 32.
FÁLKINN Y5