Fálkinn


Fálkinn - 05.09.1962, Blaðsíða 30

Fálkinn - 05.09.1962, Blaðsíða 30
saman varirnar. Síðan varð andlitið al- varlegt, næstum eins og skorið í tré, þótt augun lýstu enn niðurbældri gremju. — Tony er alls ekki svo slæm- ur, sagði hún letilega. — Þér eruð miklu verri. — Þér megið aldrei sjá hann framar, heyrið þér það? Þér verðið að forðast Tony. — Ég geri nákvæmlega það, sem mér sýnist. — Já, en þér verðið að lofa því. Hún tók að hörfa frá honum. Hann greip í handlegg hennar og hélt henni fastri, þar til hún tók að streitast á móti, sparkaði í sköfnunginn á honum og barði hann miskunnarlaust með kreppt- um hnefum, eins og hún hataði hann meira en nokkuð annað í þessum heimi. — Þér vogið yður ekki að snerta mig, endurtók hún í sífellu. Hann snéri upp á handlegg hennar: — Þér verðið að lofa að forðast Tony! Hann fann, að hún var hætt að streitast á m’óti. Andlit hennar var hvítt, augun lukt, og allur iíkami hennar hristist í hljóðum ekka. — Leyfið mér að setjast, Ben, sagði hún. —- Ég ætlaði ekki að meiða yður. Hún settist örmagna á lítinn legu- bekk og hélt gamla sloppnum þétt að sér. Ben sat vandræðalegur við hliðina á henni og lagði handlegginn um öxlina á henni. Skyndilega vissi hann, að hann varð að kyssa hana. f fyrsta sinn þetta kvöld var hann ánægður með sjálfan sig, ánægður með hugsunina um, að hann átti aðeins eina ósk: að elska hana; þetta var einungis eðlilegur þátt- ur í þeirri tilfinningu, sem hafði gagn- tekið hann, þegar hann horfði á eftir henni ofan úr glugganum. í þjÓllBlstll . . . Framhald af bls. 10. mannsins, því að hann bjargar því, sem sýnilegar hendur geta ekki bjargað. — Þið boðið ykkar fagra erindi á mjög hljóðlátan hátt? Ólafur Tryggvason: Ég hef ekki trú á því að berja málefni fram með ofsa. Bylting er ávallt neikvæð. Tilgangurinn helgar aldrei meðalið, hversu góður sem hann annars er, vegna þess að lífið er eilíft og hver athöfn er innlegg til lífs eða hels, ljóss eða myrkurs. Við slitum talinu og gengum fram í stofu, þar sem húsráðandi sat ásamt nokkrum vinum sínum. Þarna var hlýtt og notalegt, eldur logaði á arni og menn ræddust við. Dr. Kristján Eldjárn, sem nýkominn var frá Nýfundnalandi, sat næstur glugganum. Hann spurði Ólaf Baldursson hvort hann sæi nokkuð með sér. Ólafur svaraði um hæl, að með hon- um væru tveir menn, sem væru mjög óvenjulega klæddir. Annar væri mikið fatlaður, en hinn myndarlegur maður í skartklæðum. Við urðum samferða út. Gestirnir kvöddu þá nafna og húsráðanda. Þeir Ólafur Tryggvason og Ólafur Baldurs- son voru senn á förum norður, þaðan sem þeir komu nokkrum dögum áður til þess að lækna sjúka og hugga sorg- mædda, sannir fulltrúar ogboðberarhins góða í þessum heimi. Sv. S. Eruð þlr áskrifandi að Fálkanum? n b □ oa Ef svo er ekki þá er sínanúnerið 1221o og þér fáið blaðið sent um hæ-1. LITLA SAGAN Framhald af bls. 24. Berglund. En reynið að líta á málið frá okkar sjónarmiði. Við höfum ekki efni á því að hafa afgreiðslustúlku í kjóla- deildinni, ef hún hefur ekki hæfileika til þess og er ekki starfi sínu vaxin. Við verðum að vera vissir um, að vinnu- kraftarnir séu 100% virkir .... og þá vissu fáum við með sálfræðiprófinu. Hvernig er svo þetta próf? ■—- Það er að mestu fólgið í því, hvernig menn bregðast við ýmsu og hve greindir og hugmyndaríkir þeir eru. Þetta er hið svokallaða Gitzbaum- kerfi, sem nú er notað um allan heim .... og er trygging yðar fyrir því, að þér komizt á rétta hillu í lífinu, ungfrú Berglund. — Hafið þér sjálfur gengið undir þetta próf, herra Filtenstein? — Já, hvers vegna ekki? Má ég trúa yður fyrir leyndarmáli? Þegar ég kom hérna í fyrsta skipti, var ég bara venju- legur gluggahreinsunarmaður. Þáver- andi aðalforstjóri stórverzlunar, herra Gitzbaum, hafði einmitt lokið við kerfið, sem dregur nafn af honum, og var ákafur í að reyna það. Ég hékk fyrir ut- an gluggann og pússaði, og hann veif- aði í mig um að koma innfyrir. Einni klukkustund seinna hafði ég lokið próf- inu .... árangurinn varð stórkostleg- ur. Ég var á stundinni ráðinn sem yfir- maður starfsfólks. Seinna þegar prófið fór að verða alls ráðandi hér í fyrirtæk- inu, fékk ég tækifæri til þess að láta Gitzbaum forstjóra ganga undir það .... og .... Það var bankað hæversklega á dyrn- ar. — Kom inn. Gamall sköllóttur maður með kúst kom inn. Hann var klæddur í bláan vinnugalla. Hann tæmdi öskubakkann og pappírskörfuna. Hann leit rannsak- andi til vindilstúfsins, sem Filtenstein hafði lagt frá sér á marmara bréfapress- una. — Má ég fjarlægja hann, herra Filt- enstein? Yfirmaður starfsfólksins kinkaði vin- gjarnlega til hans kolli og sagði: — Gerðu svo vel, Gitzbaum. 30 fXlkinn

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.