Fálkinn - 05.09.1962, Blaðsíða 27
réttir
úr
egfljum
og
Tómatar fylltir með osti:
Veljið jafna, fallega rauða tómata.
Skerið lok af þeim, þar sem stilkurinn
hefur setið. Fjarlægið kjarnana, en látið
skilrúmin halda sér. Leggið tómata á
hvolf, svo að renni úr þeim.
Hrærið smurost út með rjóma, svo
að hann líkist þykku smyrsli. Kryddið
hann með sellerisalti og pipar. Stráið
dálitlu salti og pipar innan í tómatana
og fyllið þá síðan með ostinum.
Fallegt. er að gera það með sprautu-
poka.
Berið tómatana fram til kvöldmatar
með smjörsteiktum rúgbrauðs- eða
hveitibrauðssneiðum og agúrkusneiðum.
Skreytið fatið með steinselju. Á mynd-
inni er notaður dill.
Hrá eggjarauða í tómat:
Skerið lok af tómötum, sem þurfa að
vera það stórir, að þeir geti rúmað heila
eggjarauðu. Holið tómatana út að hálfu,
stráið salti og pipar innan í þá og hvolfið
þeim síðan.
Látið með gát eina eggjarauðu ofan
í hvern tómat, búið til krans úr fínt
skornum graslauk kringum eggið. Ber-
ið tómatinn fram á smurðri rúgbrauðs-
sneið í hreiðri af niðurklipptum salat-
blöðum.
Egg í sinnepsmajones:
Sjóðið eggin í 6—7 mínútur, alls ekki
lengur, því að rauðurnar mega ekki
verða of harðsoðnar. Takið skurnina
utan af eggjunum og setjið þau í litlar
skálar. Hyljið eggin með majones, sem
krydduð hefur verið með salti, pipar,
ediki og það miklu af sinnepi, að það
bragð sé ríkjndi.
Skreytið með kaperskornum.