Fálkinn


Fálkinn - 05.09.1962, Side 32

Fálkinn - 05.09.1962, Side 32
Heima í tveimur . . . Framhald af bls. 15. annan spítala. Hann hafði fengið sér- stakan áhuga á að læra almenna lyf- læknisfræði með tauga- og geðsjúk- dómum sem sérgrein. Hann nam þessi fræði á Hammersmith Hospital og þar var um sama leyti annar læknir íslenzk- ur, Þórarinn Guðnason. Þar voru sam- an komnir læknar víðsvegar að og þó einkum frá Ameríku, margir þeirra skipa nú virðingarstöður víða um heiminn. ¥ Þá um haustið tók Karl Strand til starfa á því sjúkrahúsi sem hann hefur starfað við síðan og helgað starf sitt að mestu leyti. West Park Hospital er geðveikraspítali í suðurjaðri Lundúna- borgar og þar er rúm fyrir 2400 sjúk- linga. Tvö fyrstu árin, sem Karl vann við þennan spítala, stundaði hann jafn- framt nám við aðalkennslustofnun Bretlands í geðfræði, The Institute of Psychiatry, Maudsley Hospital, London. Á því tímabili sem Karl Strand hefur starfað við West Park hafa orðið stór- stígustu framfarir í meðferð geðveikra, sem átt hafa sér stað í heiminum. Og ýmsar af þeim nýjungum má einmitt rekja til West Park, auk þess sem sá spítali hefur það að markmiði sínu að fylgjast sem gerst með öllu sem fram kemur nýtt á þessu sviði. Allt fram á okkar daga hafði geðfræði staðið í stað um aldaraðir og raunar ekkert ver- ið til sem hægt er að kalla því nafni. Til þessa höfðu geðveikraspítalar ekki verið annað en geymslustaðir fyrir geð- veika og lítil sem engin von var talin um að hægt væri að lækna geðveiki. Sjúkrahúsin voru í rauninni fangelsi þar sem geðveikt fólk var lokað inni og forðast allt samneyti við það. Meðferðin var naumast fólgin í öðru en einangrun sjúklingsins. Kenningar Freuds og Jungs urðu til þess framar öðru að farið var að líta á geðveikina sem hvern annan sjúkdóm. Síðan er farið að nota rafmagnssjokk og insú- línsjokk og þar með verða aldahvörf í meðferð geðveikra, á fimmta tug aldar- innar er fyrir alvöru hafizt handa um að finna leiðir til að ráða bót á þessum sjúkdómi. Reynt er að rjúfa einangrun lEruð þár áakrifandi að Fálkanum? I n 00 as Ef svo er ekki þá er sínanúraerið 1221o og þér fáið blaðið sent um hffil. 32 FÁLKINN sjúklingsins og tengja hann umhverfi sínu á ný. Einnig er reynt að veita hon- um eins mikið frjálsræði og unnt er. Og síðast en ekki sízt er farið að kynna almenningi þá möguleika sem fyrir hendi voru til að lina sjúkdóminn og uppræta þann ótta sem ríkti og ríkir víða enn í huga almennings við þenn- an flokk sjúkdóma. Önnur gagnbreyting er fólgin í þeim margvíslegu lyf jum sem tekin hafa verið í notkun á allra síðustu árum og mörg þeirra gefið góða raun. Þá hafa sjúkrahúsin sjálf breytt um svip. Þau eru ekki lengur fangelsi. Ég átti þess kost að fara um West Park spítalann í fylgd Karls Strands fyrir nokkru. Þessi mikla húsaþyrping gæti fullt eins vel verið sumarhótel eða skemmtigarður. Litskrúðug blóm og laufrík tré gróa nú á grænum völlum þar sem járngirðingar risu áður mann- hæðarháar. Flestar deildirnar, 40—50 að tölu voru upphaflega rammlega læst- ar og afgirtar. Nú er aðeins ástæða til að hafa 5 deildir lokaðar. Afstaða fólksins hefur gerbreytzt. Það gerir sér ljóst að geðsjúkir menn eru eins og hverjir aðrir sjúklingar sem þarfnast umönnunar á svipaðan hátt og þeir sem fá botnlangabólgu eða gigt. Þeir mörgu sjúklingar sem ég sé á West Park voru margir hverjir óþekkj- anlegir frá hjúkrunarfólkinu eða fólk- inu á götunum fyrir utan. Og þó voru margir sjúklingarnir farnir til vinnu sinnar utan spítalans. Þeir starfa við margvísleg störf í borginni á daginn, en búa á spítalanum eins og hverju öðru hóteli um nætur, nema hvað þeir fá sína læknishjálp. Mér var gefinn kostur á; að vera við- staddur er Karl Strand ræddi við einn sjúkling sinn er var að útskrifast þann daginn. Mr. Thompson var geðfelldur maður, rólyndislegur og íhugull og ræddi greindarlega við lækninn. Hann er miðaldra maður sem verið hefur gift- ur í 11 ár og til skamms tíma rekið tvær verzíanir. Hann hefur alla tíð verið fram úr hófi samvizkusamur og gætinn um sinn hag, ábyrgðarfyllri en títt er um fólk yfirleitt. Hann varð fyrir því óhappi að verzlanirnar tvær fóru á höf- uðið og hann sá fram á gjaldþrot. Um sama leyti varð það, að kona hans ól honum fyrsta barnið. Þau hjónin höfðu að vísu alla tíð þráð að eignast barn, en eins og nú var í pottinn búið, reið barns- fæðingin Mr. Thompson að fullu. Hann bilaði gersamlega, leitaði til heimilis- læknis síns og kvartaði undan tauga- þreytu og svefnleysi, en ekkert dugði. Loks kom þeim saman um að hann leitaði til geðlæknis. Þegar Mr. Thomp- son kom í fyrsta sinn á fund Karls Strand var hann ekki mönnum sinnandi og gat varla sagt nokkur orð í samhengi. Hann var lagður inn á West Park sjúkrahúsið og var síðan undir læknis- hendi í mánaðartíma. Á þeim tíma varð gerbreyting á honum, læknirinn gat snýt honum fram á hvað olli biluninni og ráðlagt honum hvernig bregðast skyldi við. Auk þess voru honum gefin lyf. Thompson hafði ekki þolað þá byrði sem fylgdi því er barn hans fæddist mitt í verstu efnahagsörðugleikum, ábyrgð- artilfinningin va rríkari en svo að hann gæti risið undir því og afleiðingin varð sú að hann varð hugsjúkur og missti allt vald yfir sér. — Þegar hann tók í hönd- ina á Karli Strand að skilnaði þennan bjarta júnímorgun var hann hress í bragði og óragur, tekizt hafði að útvega honum stöðu við hans hæfi og hann hafði nýtt húsnæði, þar sem hann gat byrjað nýtt líf ásamt konu sinni og nú var óblandin gleðin yfir barninu. Hin félagslega hlið geðsýkinnar er engu síður mikilvæg en sú meðferð sem sjúklingar njóta á sjúkrahúsunum. Oft er orsakir sjúkdómsins einmitt að meira eða minna leyti að rekja til þjóð- félagsaðstæðna og heimilisástæðna. Sjúkdómurinn kemur oft fyrst í ljós ein- mitt þegar hátterni sjúklingsins er orð- ið þannig, að þjóðfélagið afneitar hon- um. Þessvegna er þýðingarlaust að láta sjúklinginn í sama umhverfi og fyrr að lækningu lokinni. Annaðhvort verður að bæta úr misfellum umhverfisins eða finna sjúklingnum nýtt. Að þessu leyti er geðveikin ólík öðrum sjúkdómum, áð læknismeðferðin er ekki eingöngu bundin við sjúklinginn né þann tíma sem hann dvelur á sjúkrahúsinu. í þessu skyni er komið á fót svonefndu félags- legu eftirliti eða social service. Þannig er það hlutverk þeirrar starfsemi sjúkra- húsanna að bæta úr misfellum í fjöl- skyldulífi sjúklingsins, koma á betri samskiptum hans við vinnuveitanda sinn og þar fram eftir götunum. Oft kemur það í ljós að það er eigi síður fjölskylda sjúklingsins en hann sjálfur sem er í rauninni sjúk. Þetta félagslega eftirlit er stundum viðhaft um árabil og koma þá gjarnan sérfróðir starfs- menn sjúkrahúsanna á heimili sjúk- lingsins og ræða málin ellegar sjúkling- urinn heimsækir lækni sinn með vissu millibili og leitar hjá honum ráða. — Jafnan er reynt að koma sjúklingnum í sína gömlu atvinnu, þá er hann hafði áður en hann varð að fara á sjúkrahús. Að öðrum kosti er reynt að finna nýja atvinnu við hans hæfi. * Á sjúkrahúsunum sjálfum eru stund- uð margvísleg störf. ÁWest Park sjúkra- húsinu mátti sjá sjúklingana vinna við ýmiskonar störf sem valin voru í sam- ræmi við getu og heilsu hvers eins. Sumir voru aðeins færir um að raða saman nokkrum teygjuböndum í búnt, aðrir unnu að trésmíði og enn aðrir fengust við leirkeragerð. Eins og áður er sagt unnu all margir utan spítalans, á skrifstofum og í verksmiðjum. Þetta fólk er ekki haldið djöfullegu æði svo hafa verði gát á að það fari sér og öðrum ekki að voða. Þvert á móti er hugsjúkt fólk oft ljúfara í umgengni og viðmótsþýðara en þeir sem taldir eru heilbrigðir andlega. Það er ekki nema í sárafáum tilfellum sem geðsýkin knýr

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.