Fálkinn - 18.05.1964, Blaðsíða 20
Sakir þess að margir sjúklingar lifa ekki af fyrsta hjarta-
slag sitt, haía séi fræð: vf'ai' lengi verið á þeirri skoðun að eina
ráðið til að vinna bug á hjarta- og æðasjúkdómum sé í því
fólgið að koma í veg fyrir sjúkdóminn nógu snemma.
Vísindamenn nota árangurinn af áralöngu rannsóknarstarfi
á sjúkdómsorsökum til þess að fuilkomna sjúkdómsgreiningu
hjarta- og æðasjúkdóma áður en sjúkdómurinn hefur lamað
hjartað og starfsemi þess svo að ekki verður að gert.
Fulikomnari tækni hefur gert þetta kleift.
Til dæmis hefur tæki eitt, létt í meðförum, gert iæknum
möguiegt að fylgjast með starfsemi hjartans meðan sjúkling-
urinn er að sínum daglegu störfum við venjuleg skilyrði.
Tækið er borið í ól svipað og Ijósmyndavél og leiðslur
tengdar við hörundið á brjóstinu. Tækið er kallað hjartnemi
og sýnir á segulbandi allar breytingar á hjartslætti. Með
rafeindatækni getur læknirinn lesið á tíu mínútum 60 klukku-
stunda „upptöku“.
Þessi tæki og önnur svipuð hafa verið reynd og prófuð í
nýrri deild í ST Vincent-spítalanum í Portiand í Oregon. Þar
hefur komið í ljós að fóik sem hafði ekki minnstan grun um
að nokkuð væri bogið við starfsemi hjartans, hafði slæma
hjarta- og æðasjúkdóma á byrjunarstigi. Sennilega hefði verið
um seinan að hjálpa mörgu þessu fólki ef hjartneminn hefði
ekki komið til sögunnar.
Slíkar rannsóknir er ekki hægt að gera á iöngum tíma ef
sjúklingurinn þarf að sitja eða liggja allan tímann. En þetta
nýja tæki hefur þróast frá öðru tæki svipuðu sem notað var
til að fylgjast með hjartslætti geimfara úti í geimnum.
Þó dauðann beri brátt að hefur það venjulega tekið blóð-
tappann sem orsakaði hann langan tima að myndast, stundum
mörg ár. En fram að þessu hefur læknum yfirleitt reynst
ókleift að fylgjast með eða uppgötva slíka myndun.
Með því að beita nýjum aðferðum er hægt að ganga úr
Fuilkomnari tækni ■
sjúkdómsgreiningu
eykur llkur fyrir lækningu
skugga um hvort blóðtappi er að myndast. Geislavirku efni
er dælt í smáum stíl í blóðið. Siðan er næmum mælitækjum
komið fyrir nálægt hjartanu. Ef æðaþrengsii og samdráttur
dregur úr blóðstraumnum getur læknirinn á augabragði séð
hvað er um að vera með því að iesa úr þessum mælinga-
tækjum.
Og nú er notuð jafnvel enn fljótvirkari aðferð.
Hægt er að senda gegnum venjulegan síma hjartalínurit og
linurit er sýnir rafbreytni (electrical activity) hjartans til
rafeindaheila í Washington sem á augabragði framkvæmir
sjúkdómsgreiningu svo nákvæma að það tæki margar klukku-
stundir að vinna sama verk.
Þó vísindamenn hafi öðlast margvíslegan fróðleik um og
kunni orðið margar aðferðir til að finna hjarta- og æðasjúk-
dóma, þá vita þeir sáralítið hvaða vörnum verður við komið.
Fyrir um það bil 15 árum var sprautað kvenhormónum í
karlmenn í því skyni að leysa upp i blóði þeirra efni sem
kallað er cholesterol en það var taiið valda blóðtappa og
öðru slíku. Nýlegar tilraunir í Bandaríkjunum virðast sanna
þessa kenningu og um ieið skýra það fyrirbrigði að færri
konur en karlar skuli fá hjartaslag.
Ný lyf gegn háum blóðþrýstingi — sem tíðast leiðir til
Framhald á bls. 36.
Sjúklingurinn til vinstri hefur verið útbúinn með tæki sem
komið er fyrir undir hörundi hennar og örfar og stillir hjart-
sláttinn. Læknirinn til hægri heldur á „útvortis örfa“ sem
hafa má í vasa eða í ól um hálsinn eins og röntgenmyndin
að baki þeirra sýnir og eru þá leiðslur tengdar við hjartað.
■
, 1| !,ri\ r:
\
20 FALKINN