Fálkinn - 18.05.1964, Blaðsíða 36
Gamli tíminn
Framhald af bls. 15.
— Víst er það. Ég kvæntist
þetta en hef engan krakka átt.
— Og hvernig var Ólafsvík
í gamla daga?
— Þetta var hálfgert hall-
ærispláss Hér sást varla maður
heima við, á sumrin mátti heita
mannlaust, hér var ekkert við
að vera. Og kvenfólkið fór líka
strax eftir sumarmál. Nú er
orðin breyting á, nú kemur það
hingað af fjörðunum. Já, þetta
var hálfgert hallærispláss ef ég
á að segja eins og ég meina.
Og það var voðaleg berklaveiki,
ég gæti trúað að ég myndi eftir
allt að 15—20 unglingum hér
sem dóu úr berklaveikinni árið
1925. Það var bara svona. Og
þrældómurinn, tómir árabátar
Og það var svoleiðis að ef ég
lagði inn fisk, gat ég ekki feng-
ið út á hann nema í þeirri
verzlun, aur sást varla.
— Og heldurðu að fólki líði
betur á sálinni nú á þessum
allsnægtatímum?
— Það hlýtur að vera, svarar
Jón sem orðinn er 72 ára, það
hlýtur að vera annað að horfa
fram á sæmilega ævi en vand-
ræðatíma. Þá var iðulega að
konan missti rnann sinn, þá var
komið til þeirra af oddvita og
heimilið tekið upp. Ég skal
segja þér eitt dæmi úr Staðar-
sveit, þar voru hjón sem hétu
Þórey og Árni og þau áttu fimm
börn. Hann deyr úr lungna-
bólgu, Árni, 45 ára gamall, eftir
því sem nútímarnir segja. En
ég veit bara þetta: oddvitinn
fer daginn eftir jarðarförina til
konunnar og ekki veit ég hvað
þeim fór á milli en elzta telpan
er send að Miðhúsum í Bx-eiðu-
vík og með henni fer önnur
kýrin og eitthvað af kindum.
Næsta stúlka hét Sólveig og
hún fór að Hólakoti til Jóns
Sigurðssonar og með henni fara
tveir hestar og eitthvað af kind-
um. Að Ytri-Görðum fer dreng-
ur sem Jón heitir og með hon-
um hin kýrin og eitthvað af
kindum. Hin dóttirin, Þórunn
fer að Lýsudal og með henni
hesturinn og það sem eftir var
af kindunum. Þá er eitt barnið
eftir, átta ára drengúr. Þeir
segja henni, konunni, hún verði
að sjá fyrir honum. Og á þriðja
degi fer hún í vinnumennsku
að Hofstöðum I Miklaholts-
hreppi með drenginn með sér
og pjönkurnar á bakinu og er
þar um veturinn og síðan í
Eyrarsveit.
— Hvar bjuggu þessi hjón,
Þórey og Árni?
— Það hét Lukka, smákot
eins og þetta voru. Og seinast
var hún með Nikulási þeim ...
Jökull.
FulSkomnari tækni
Framhald af bls 20.
hjartasjúkdóma — hafa orðið
til þess að dauðsföllum af
þeirra völdum hefur fækkað
um 44% á s.l. 15 árum.
í því skyni að koma í veg
fyrir og hindra hjarta- og blóð-
sjúkdóma hafa tilraunir verið
framkvæmdar um langt árabil
á sjálfboðaliðum.
Árið 1949 hófst ein slík til-
raun með 5000 heilbrigðum
konum og körlum. Sá hópur
gengst undir skipulegar rann-
sóknir á 20 ára tímabili. Vís-
indamenn eru með því að kom-
ast fyrir hugsanlegar orsakir
þessara sjúkdóma.
í sama skyni hafa 1500 konur
og karlar, allt heilbrigt fólk,
búsett- um öll Bandaríkin, heitið
því að haga mataræði sínu sam-
kvæmt ströngum fyrirmælum
lækna. Þannig gætu vísinda-
menn rannsakað áhrif ýmissa
fæðutegunda á starfsemi hjart-
ans.
Þetta fólk neytir mjög lítillar
dýrafeiti en þess meir af græn-
meti og sjávarafla. Með því
móti er talin minni hætta á að
cholesterol myndist í blóðinu.
Skurðlæknar
Framh. af bls. 21.
alveg lokaðai'. Dr. Bernhard
opnaði æð nærri hjarta þessa
tólf klukkustunda gamla sjúkl-
ings og gat á þann hátt opnað
blóðinu aðgang að lungunum
þar sem súrefnið fékkst. Þessi
uppskurður bjargaði lífi barns-
ins en síðar meir, er því vex
fiskur um hrygg, er nauðsyn-
legt að gera annan uppskurð til
að lagfæra betur hina með-
faeddu galla.
í Rochester General Hospital
í Rochester, New York, lifði
örsmátt kornabai'n (sem aðeins
vó 1,4 kíló) af uppskurð sem
var í því fólginn að lag-
færa óeðlilega víðan samgang
tveggja æða nálægt hjartanu.
Telpan hafði fæðst fyrir tímann
og er talið að hún sé minnsta
barn sem nokkru sinni hefur
lifað slíkan uppskurð, lyf höfðu
verið reynd á henni árangurs-
laust. Hún var 54 daga gömul
þegar uppskurðurinn var gerð-
ur.
í dæmigerðri skýrslu frá
bandarískum lækningastöðv-,
um, segir frá því að skurðlæki-x-i
ir í Baylor University hafi gert
skui'ðaðgerðir á 500 ungbörn-
um síðastliðin fimm ár og 363
þeirra hafi vei’ið bjargað frá
bráðum bana. Skurðlæknarnir
lagfærðu meðfædda hjarta-
galla, meinsemdir í æðakerf-
inu, fjarlægðu hindranir og
komu fyrir bráðabirgðasam-
gangi milli æða.
Róttækasta hjartaaðgei'ðirv.
sem nú þekkist er þó sú að
fjarlægja með öllu sjúkt hjarta '
og græða í staðinn annað úr
dánum manni eða algert gerfi-
hjarta. Að þessu vinnur flokk-
ur skurðlækna í Stanford Uni-
versity í' Palo Alto í Kaliforníu.
Ef þessir brautryðjendur
hafa heppnina með sér er ekki
ósennilegt að stofnaðir verði
hjartabankar eins og augna-^
bankar, blóðbankar, og aðrir
slíkir þar sem geymd eru djúp-.
fryst mannabein, skinnbútar og
aðrir líkamshlutar unz til þarf^
að taka að græða þá á sjúklinga
sem þeirra þurfa með.
Lengst hafa þeir náð í því
að nema brott hjartað úr þrem-,
ur hundum og græddu sam-,
stundis sama hjartað í þá aftur,
Hundarnir lifðu þi'jú ár eftir
þetta við beztu heilsu og vaið
ekki meint af.
Hins vegar hafa slíkir hjarta-
,,flutningar“ til þessa strandað
á sömu hindrun og flutningur
annarra mikilvægra líffæra
manna á milli, nýrna, lifur og
lungna. En í flestum tilfellum
hefur þetta farið út um þúfur
nema helst þar sem náskylt
fólk á í hlut. Líkami sjúklings
bregst við hinu framandi líf-
færi eins og hálfgerðum sjúk-
Það er leikur einn
rnpiiai
POLYTEX #
PLASTMÁLNINGIN SEM ER
SÉRLEGA ÁFERÐARFALLEG
AUÐVELD í NGTKUN, ÞEKUR
MJÖG VEL CG FÆST í MIKLU
ÚRVALI FALLEGRA LITA
POLYTEX
PLASTMÁLNINGIN
SKER SIG ÚR i .
ÞVÍ LITIRNIR
HAFA ÓVENJU
MILDAN
OG DJÚPAN BLÆ
Gerið heimiiið hiýlegra og vistlegra með Polytex
30
FALKINN