Fálkinn - 18.05.1964, Síða 32
,,MOORES“ hattarnir
eru komnir,
einnig mjög fallegt úrval
af dönskum og ítölskum
höttum.
Nýjar gerðir — Nýir litir
fallegir — vinsælir — ódýrir.
Gjörið svo vel og skoðið
í gluggana.
GEYSIR IIF.
Fatadeildin.
— Jæja, þú sagðist ætla að kyssa íyrstu
konuna, sem þú sæir!
HVAÐ GERIST f NÆSTU VIKU ?
* - ______úul____ . . .
Hrútsmerkiö (21. marz—20. avríl).
Þér ættuð að taka lífinu með ró þessa vikuna og
eini dagarounurinn sem þér ættuð að leyfa yður
er að fara í kvikmyndahús ef þar er eitthvað
merkilegt að s.iá. Annars ættuð þér að vera sem
mest heima við enda bezt fyrir yður.
Nautsmerkiö (21. avrxl—21. max).
Það getflr verið ákaflega gaman að fara út og
skemmta sér en það er líka hægt að gera of mikið
af slíkum hlutum. Þér ættuð því að hugleiða i
fullri alvöru hvort ekki væri rétt fyrir yður að
taka smá hvíld í þessum efnum.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. iúxú).
Ef þér ætlið yður að ná einhver.iu ákveðnu
marki verðið þér að sýna ákveðni og dugnað og
láta ekki smá erfiðleika á yður fá. Þér skuluð því
athuga vel ástandið og vita hvort ekki leynast
þar einhvefifr mögúléikar til árangurs.
Krabbamerkiö (22. júní—22. júlV.
Yður hættir til þess að gera fl.iótfærnislegar
vitleysur og þér ættuð ekkert að hafast að i mál-
unum nema að vel hugsuðu máli. Þetta á einkum
um vinnustaðinn og þetta ættuð þér að athuga
vel.
LjónsmerkiÖ (23. júlí—23. áaúst).
Það kann svo að fara ,að Þessi vika verði yður
nokkuð erfið en þér verðið að sætta yður við það
og hugsa sem svo að betri tímar komi á eftir. Þér
ættuð ekki að vera á miklu st.iái í þessari viku
heldur dvelia innan vegg.ia heimilisins.
Jómfrúarmerkiö (2U. áaúst—23. sevt.).
Það mundi vera heonilegra fyrir yður að treysta
öðrum sem minnst í þessari viku en legg.ia allt
traust á yður siálfan. Þér minnist þessa sérstak-
lega þegar líða tekur á vikuna.
Voaarskálamerkiö (2í. sevt.—23. okt.J.
Þér ættuð að fara í ferðalag um helgina ef
þess er nokkur kostur þvi Það mundi bæta skan
yðar og það er Þess sem þér þurfið við um þessar
mundir. Þrið.iudagurinn kann að reynast yður
nokkuð erfiður en þér verðið að taka því.
Svorödrekamerkiö (2h. okt.—22. nóv.).
Það er margt óvænt sem fyrir yður kann að
koma í þessari viku og þá er um að gera fyrir
yður að kunna að notfæra yður þau tækifæri
sem bióðast. Sérstaklega á þetta við um mánudag
og miðvikudag.
Boaamanxismerkiö (23. nóv.—21. des.).
Það er oft gott að eiga vini en þér megið ekki
ætlast til of mikils af þeim. Þér verðið að aðhafast
eitthvað á egin snýtur því annars getur farið illa
fyrir vður seinna meir.
Steinaeitarmerkiö (22. áes.—20. janúar).
Þér ættuð ekki að legg.ia út í mikla áhættu í
þessari viku því afstöðurnar til slikra hluta eru
ekki sem hagstæðastar um þessar mundir. Þér
skuluð því sit.ia og þíða því þess mun ekki langt
að bíða að betri tímar komi.
VatnsberamerkiÖ (21. janúar—18. febrúar).
Yður hættir stundum til Þess að vera of tilfinn-
ingasamur og þér ættuð að venia yður af slíkum
hlutum vegna þess að það kemur yður oft í vand-
ræði. Það væri miög athugandi fyrir yður að fara
í ferðalag um helgina.
Fiskamerkiö (19. febrúar—20. marz).
Þótt yður finnist lífið brogað um þessar mundir
er ekkert í því að gera annað en taka öllu með
ró sem að höndum ber. Minnist þess að þótt út-
litið sé stundum ekki gott stvttir udd um síðir.
32
FALKINN