Fálkinn - 22.06.1964, Síða 12
Anna María skrifaði Kon: tantín ekki oft, hún notaði heldur símann.
Þegar Anna María prinsessa giftist Konstantín Grikkjakonungi
í september næstkomandi, verður hún yngsta drottning í heimi.
Stutt er síðan hún kvaddi skólasystur sínar í kvennaskóla í Sviss,
þar sem hún eyddi yndislegustu dögum æsku sinnar.
r
Þegar Páll Grikkjakonungur lézt,
breyttist líf Önnu Maríu prinsessu
gjörsamlega. Hún hafði þá um nokk-
urt skeið verið á kvennaskóla í Sviss
og lifað glaðværu og áhyggjulausu
lífi skólastúlkunnar. En allt í einu
blasti alvaran við: Hún hafði verið
trúlofuð Konstantín Grikkjaprinsi og
var aðeins beðið eftir að hún yrði
myndug og þá gæti brúðkaup þeirra
farið fram.
Raunar hafði Anna María verið
send í kvennaskóla í Sviss. Uppeldi
hennar og menntun hafði í engu
verið frábrugðið því sem stúlkur frá
hinum beztu f jölskyldum í Danmörku
fá, en þegar Páll Grikkjakóngur lézt
var hún á 18. ári og á aðeins sex
mánuðum varð hún að læra það sem
erfiðast er allra hlutverka í lífi kon-
unnar: Það að vera drottning.
Önnu Maríu hafði liðið vel í skól-
anum, þótt hann væri strangur.
Kennslustundir hófust kl. 7 og vinnu-
deginum var ekki lokið fyrr en 11
um kvöldið. Dagurinn byrjaði með
kennslustund í frönsku, en þar fékk
Anna María mjög háar einkunnir,
Konstantín og Anna María þegar þau
kunngjörðu trúlofun sína.
12
FALKINN