Fálkinn - 22.06.1964, Page 28
NILFISK
VGRXDAR COLFTEPPIN
því hún heíur nægilegt sogafl og afburða teppasogstykki, sem rennur mjúklega yfir tepp-
in, kemst undir iægstu húsgögn og DJÚPHREINSAR jafnvel þykkustu gólfteppi fullkom-
lega, þ. e. nær upp sandið smásteinum, glersalla og öðrum grófum óhreinindum, sem ber-
ast inn, setjast djúpt í teppin, renna til, þegar gengið er á þeim, sarga undirvefnaðinn og
slíta þannig teppunum ótrúlega fljótt. NILFISK slítur alls ekki teppunum, þar sem hún
hvorki burstar né bankar, en hreinsar aðeins með rétt gerðu sogstykki og nægilegu sog-
afli.
Aðrir NILFISK kostir: ★ Stillanlegt sogafl ★ Hljóður gangur ★ Tvöfalt fleiri (10) og
betri sogstykki, áhaldahilla og hjólagrind með gúmmíhjólum fylgja, auk venjulegra fylgi-
hluta ★ Bónkústur, hárþurrka. málningarsprauta, fatabursti o. fl. fæst aukalega.
★ 100% hreinleg og auðveld tæming, þar
sem nota má jöfnum höndum tvo hrein-
legustu rykgeyma, sem þekkjast í ryk-
sugum, málmfötu eða pappírspoka.
★ Dæmalaus ending. NILFISK ryksugur
hafa verið notaðar hérlendis jafn lengi og
rafmagnið, og eru flestar í notkun enn,
þótt ótrúlegt sé.
★ Fullkomna varahluta- og viðgerðarþjónustu önnumst við.
Úrval annarra
heimilistækja.
Sendum um
land allt.
O.KOR1ERIJPH4MSE1II
Sími 12606 - Suðurgötu 10 - Reykjavík
Sendið undirrituðum nánari upplýsingar (mynd, verð, greiðsluskilm.f
um:
Nafn
heimili:
Síðasta ferftin
Framhald af bls. 26.
Hann bauð okkur skipstjór-
anum að vera viðstaddir kvik-
skurð annars kvendýrsins.
Þetta skeði daginn áður en
skipstjórinn missti vitið.
Nú, við stóðum þarna og
horfðum á hann. Fyrst eftir að
við komum inn þyrptust dýrin
að rimlunum og ýlfruðu og
öskruðu.
Óþægilega hátt. Alveg eins
og þau væru að reyna að tala
við okkur.
Læknirinn firðflutti annað
kvendýrið — þau voru tvö og
tvö karldýr — yfir á skurðborð-
ið og ólaði það þar niður.
Svo hóf hann kvikskurðinn.
Fyrst í stað veinaði kvendýr-
ið afskaplega og mér finnst satt
að segja enn þá að læknirinn
hefði átt að gefa því eitthvað
svæfandi. Það er ekki skemmti-
legt að hlusta á dýr kveljast
svona.
En læknirinn benti mér á að
þetta væri aðeins skynlaus
skepna. Hann sagðist læra
meira á því að deyfa ekki neitt.
Smátt og smátt urðu hljóðin
í kvendýrinu veikari og veik-
ari.
Loks hættu þau alveg.
Skipstjórinn varð eitthvað
ókyrr. Hann er svo næmur fyr-
ir tilfinningum annarra. Það
fylgir með þegar menn eru
móttækilegir eins og hann.
Stundum hefur hann lesið
hugsanir dýra. Já, það er ótrú-
legt en engu að siður satt.
Ég trúi því að minnsta kosti,
þó enginn annar hafi fengist
til að trúa honum.
En hann hafði verið við-
staddur kviðskurði fyrr.
Ég skil þetta eiginlega ekki.
Ég á við, hvers vegna hann
sleppti sér daginn eftir.
Hann reyndi að kyrkja lækn-
inn. Hrópaði að hann hefði
myrt konuna sína.
Ég varð að slíta hann af
lækninum og við hjálpuðumst
að við að leggja karlinn í bönd.
Hann veinaði og grét alla
heimleiðina og mér skilst að
hann veini enn.
En læknirinn getur gefið ykk-
ur nákvæmari skýrslu um þetta
en ég. Hann er sérfræðingur-
inn.
Því ég segi þetta með svo
mikilli fyrirlitningu Hvort mér
sé illa við lækninn eða hvað?
Ja, mér er að minnsta kosti
ekki vel við hann. Ég veit eigin-
lega ekki hvers vegna, en mér
er ekki beint hlýtt til hans sem
stendur.
28 FÁLKINN