Fálkinn - 22.06.1964, Qupperneq 36
Tvær lystugar
eplakökur
250 g hveiti
100 g smjör
ögn af salti
2 msk. sykur
Nál. 1 dl vatn
1 kg epli
Hveitið sáldrað, salti og sykri
blandað saman við, smjörlíkið mulið
saman við, vætt í með það miklu af
köldu vatni, að deigið verði meðfæri-
legt og auðvelt að fletja það út»
Deigið látið bíða vel til-byrgt um V>|
klukkustund, áður en það er flatt úti
og tertumót þakið að innan með því,; ■
Flysjið helminginn af eplunum
skerið þau smátt, setjið eplin ofan b
mótið, stráið vel af sykri ofan á, ef
vill er gott að krydda annað hvort
með kanel eða rifnum sítrónuberki.
Hinn helmingurinn af eplunum
flysjaður og nú eru þau skorin í báta,
sem raðað er fallega ofan á litlufl
eplabitana (sjá mynd). Örlitlum-V'
sykri stráð ofan á. Bakað við meðal
hita um 30—35 mínútur, þar til deig-
ið er gegnbakað og eplin fallega gul-
brún. '
Kaka.þessj er jafngóð, hvort held-
ur hún er borin fram heit, volg eða
köld. Sé hún heit eða volg er gott að
bera með henni ís.
Eplakaka mcð hlaupi.
Bakið tertubotn úr: 200 g hveiti,
140 g smjör, 70 g sykur og 1 egg.
Notið fingurgómana til að mylja
smjörið saman við sáldrað hveitið,
blandið sykri og sundurslegnu eggi
saman við. Deigið látið bíða um V2
klst. áður en það er flatt út. Hyljið
botn og hliðar á tertumóti með laus-
um botni útflöttu deiginu. Bakað vicj
200—225° í nál. V2 klst.
Flysjið 1 kg af eplum skiptið þeira
í 4 hluta langsum, takið kjarnahúsið
úr og skerið síðan eplafjórðungana í
smærri bita þversum.
Sjóðið eplin í það miklu vatni,
sem í er sykur og vanilla og Va
sítróna, að þau fljóti og sjóðið bara
eitt lag í einu. Gætið þess að sjóða
eplin ekki of mikið. Takið þau upp
með gataspaða, svo sígi vel af þeim.
Hellið eplasafanum í gegnum stykki,
takið 3 dl af saftinni og setjið út i
hana 5 blöð af útbleyttu matarlími;
látið kólna. Á meðan er eplabitunum
raðað í kalda tertuskelina, ásamt
rúsínum, sem hafa legið í bleyti yfir
nótt t. d. i' madeira eða eða sherry.
Flysjuðum og flöguðum möndlum
stráð yfir. Þegar saftin er orðin köld
og að því komin að hlaupa, er henni
hellt yfir. Kakan geymd á göldum
stað, þar til saftin er hlaupin.
Framh. á bls. 38.