Fálkinn - 29.06.1964, Qupperneq 19
Þeir sem áttu leið hjá Breiðholtsréttinni um fjögur-
leytið mánudaginn 15. júní, anno domini 1964, ráku
upp stór augu. Ýmsir kunnustu borgarar Reykjavikur
stóðu á barmi malargryfjunnar miklu og ýmist
teymdu reiðhjól eða hjóluðu, — sumir svolítið var-
lega að vísu. Þarna voru samankomnir tíu mætir
borgarar á vegum Fálkans og nafni hans, verzlunin
Fálkinn lagði reiðhjólin til.
Eins og flestum er enn í fersku minni kom einn af
þekktustu hjartasjúkdómasérfræðingum heimsins
hingað til lands fyrir skömmu og hafði hann orð á
því, að nútímamenn hreyfðu sig allt of lítið. Hóglífið
er heilsunni hættulegt, ekki hvað sízt hjartanu, og
áðurnefndur sérfræðingur ráðlagði mönnum eindregið
Þetta er óneitanlega frítt
lið og föngulegt, búið
að taka sér stöðu á
Fálkahjólunum. Það er
víst óþarfi að telja nöfnin
upp en bezt að gera
það samt. Frá vinstri:
Séra Árelíus Níelsson,
Guðmundur Jónsson,
Kristín Anna Þórarins-
dóttir, dr. Páll ísólfsson,
Matthías Jóhannessen,
ritstjóri Morgunblaðsins,
Indriði G. Þorsteinsson,
ritstjóri Tímans, Sigurður
Sigurðsson, íþróttafrétta-
maður, Kristinn Hallsson,
Nína Sveinsdóttir og
Jón Múli Árnason.
„Þó maður sé alveg
klár í þessu
er ekkert verra að
æfa sig agnarlítið.
Nei, enga vitleysu,
þið takið enga
mynd af þessu ..
að selja stóru og fínu bílana sína, — og
fá sér reiðhjól x staðinn.
Ekki er okkur kunnugt um það, hver
áhrif orða þessa mæta manns hafa oxð-
ið, en ekki höfum við tekið eftir neinum
þekktum borgurum á hjóli að undan-
förnu. Líklega hafa þeir yfirleitt látið
sér nægja að hugsa um í’eiðhjólin — og
sitja áfram í makindum í dollaragrín-
inu sínu.
Því var það, að við leituðum til
nokkurra þekktra borgara hér um dag-
inn og stungum upp á því að þeir stigu
á reiðhjól og rifjuðu upp listir sínar á
því sviði. Er ekki að orðlengja það, að
þeir tóku málaleitan okkar með miklum
ágætum og sömu sögu er að segja af
verzluninni Fálkanum, sem lagði okkur
til hin ágætu Fálka-reiðhjól, sem vitan-
lega gegndu sínu hlutvexki af mestu
prýði.
Við ókum inn að réttinni í þremur
Steindórsbílum. í bílnum, sem fyrstur
var á vettvang, var einn af okkar mæt-
ustu klerkum, séra Árelíus Níelsson. Ég
vissi ekki af því, þegar ég talaði við
hann um að gera þetta, að hann gat
eiginlega ekki neitað (og er nú raunar