Fálkinn


Fálkinn - 13.07.1964, Side 6

Fálkinn - 13.07.1964, Side 6
FERÐAHAND- BOKIN er komin út Nýlega er komin út bók, sem er hverjum þeim manni, sem ætlar að ferðast um landið, nauðsynlegur ferða- félagi. Það er ferðahandbókin, en útgefendur hennar nú eru Örlygur Hálfdánarson og Örn Marinósson. Ferðahandbókin kom síðast út árið 1961 og eins og hvert mannsbarn getur séð, hefur margt það, sem upp- lýsingar þarf að gefa um í slíkri bók, breytzt á þeim tíma sem síðan er liðinn. Bók þessi þarf ávallt að flytja nýjustu upplýsingar, án þeirra nær hún á engan hátt tilgangi sínum. Erlendis tiðkast slíkar bækur mjög og er vel til þeirra vandað og þær taldar ómissandi. Við fljótlegan yfirlestur ferðahandbókar þeirra Örlygs og Arnar virðist hún búin þeim kostum, sem góð ferða- handbók þarf að vera búin. Satt að segja verður maður undrandi við lestur hennar yfir því, hve margt er hægt að telja upp í sambandi við þjónustu okkar við ferða- menn, sem okkur finnst oft með réttu næsta bágborin. Það er ef til vill erfitt að gefa tæmandi upplýsingar í svona bók, en þótt við leituðum með logandi Ijósi í bók- inni að einhverju, sem hægt var með sanngirni að kvarta yfir að væri ekki í henni, tókst okkur ekki að finna það. Flestir, sem eitthvað hafa ferðast á eigin spýtur um landið, kannast við það, þegar þeir koma í ókunnugt þorp, eða kaupstað. og þurfa að finna þar einhverja ákveðna stofnun. Ér hægt að fá gistingu, er hægt að fá mat keyptan? Er læknir á staðnum? Er lyfjabúð hérna? Er hægt að fá gert við það sem er í ólagi í bílnum? Eru verzlanir hér? Eru söluturnar opnir, eftir lokun? Er hægt að fá filmur keyptar? Og hvar er hægt að fá þessa þjónustu og hjá hverjum? Við öllu þessu eru veitt greið svör i Ferðahandbókinni. Að ógleymdum upplýsingum um öll þau fyrirtæki, ferðaskrifstofur, flutningafyrirtæki og þess háttar, sem annast skipulagningu fólksfiutninga og fiutningana sjálfa. Og Ferðahandbókin er ekki einskorðuð við byggðir og þjóðvegi. í bókinni er að finna ýtaxlega grein með uppdrætti eftir Sigurjón Rist um bifreiðasióðir hálendisins og er nafn hans eittf næg trygging fyrir því, að vel er fyrir þeim kafla séð.< Þá er að geta góðrar og ýtarlegrar leiðarlýsingar um Vesturiand, eftir Gísla Guðmundsson, og fylgir henni uppdráttur af svæðinu. Er ætlunin að birta smám saman leiðarlýsingar af öllu landinu. Þessi kafli er kærkominn öllum þeim, sem um þetta svæði fara, en einmitt núna eru Vestfirðirnir að ,,opnast‘‘‘ fyrir ferðamönnum, og flestir þar harla ókunnir. Ekki má gleyma grein, eftir Finn Guðmundsson um íslenzka fugla með teikningum af þeim og er hún vafa- laust kærkomin náttúruskoðendum öllum. Þór Guðjóns- son, veiðimálastjóri, skrifar um lax og silungsveiði í,, ám og vötnum, og þannig mætti lengi telja. Hér hefur verið getið um nokkur stór atriði, en í fáum orðum má segja, að þessi bók geymi upplýsingarj um allt mögulegt, sem ferðamaður þarf að vita á ferðum sínum um landið, og það er hiklaust óhætt að mæla með því að þeir sem ferðast festi kaup á henni. Þær krónur, sem hún kostar, munu koma margfaldar til baka í ferðalaginu, auk þeirrar ánægju, sem það veitir að vita, að hverju maður gengur á hverjum stað.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.