Fálkinn


Fálkinn - 13.07.1964, Síða 8

Fálkinn - 13.07.1964, Síða 8
SJÁLFSÆVISAGA hann minntist á að ég léti ame- ríska sérfræðinga skoða mig. Ég var fús að gera allt sem i mínu valdi stóð til að vernda hamingju okkar. Hið sorglega og skyndilega fráfall Ali Reza rétt fyrir brott- för okkar gerði málið enn erfið- ara viðfangs. Fram til þess tíma hafði lausn málsins verið kom- in undir vilja keisarans. Hann hafði alltaf haft þessa lausn — að útnefna Ali sem eftirmann sinn. En nú var enginn löglegur eftirmaður lengur. Allir hinir synir Reza keisara voru fæddir af Kadsharprinsessum og hann hafði kveðið á skýrt og skorin- ort að enginn sem væri af fyrri vaidhöfum mætti setjast í Pá- fuglsstólinn. || -H-fl.inn 8. desember 1954 komum við keisarinn á Pres- byterian Medical Center á Man- hattan. Var það álitin fullkomn- asta klínik borgarinnar. Fræg- Þegar honum var sýnd morð- tilraun 1949, sem hann slapp naumlega frá, reyndu ráðgjaf- ar hans að fá hann til að skipta um skoðun. Hirðmaður sem við- staddur var sagði mér eftir minni eftirfarandi: Ráðherra: Er yðar hátign ljóst að í dag hefði hásæti írans fullt eins vel getað verið autt? Keisarinn: Eins og þér sjáið er allt í lagi með mig. Ráðherra: Engu að síður held ég að yðar hátign ætti nú loks að útnefna hugsanlegan eftirmann sinn. Keisarinn var þá þrítugur að aldri og hafði verið skilinn frá Fawziu í tvö ár. Hann þótti all djarftækur til kvenna, en ekk- ert útlit var fyrir að hann hygð- ist festa ráð sitt í náinni fram- tíð. Keisarinn: Upp á hverjum viljið þér stinga? Ráðherra: Kannski er augljós lausnin fyrir yðar hátign að útnefna Ali, bróður yðar. Keisarinn: Ali? Ég vildi gjarna fá að hugsa málið. Ráðherra: Þetta þolir enga bið, yðar hátign. Hvenær sem þér leggið af sað í litlu flug- vélinni yðar flýtum við okkur að biðja fyrir yður. Keisarinn, brosandi: Hafið engar áhyggjur vinir mínir. Ég hef hugsað mér að vera hjá ykkur framvegis og guð mun gæta mín. Jafnvel þá gat enginn komið inn vafa hjá keisaranum um „köllun“ sina. Hann var sann- færður um að hann og hann einn gæti leitt þjóð sína götuna fram eftir veg. Og ekki verður því neitað að hingað til hefur hann reynzt því fullvaxinn. Honum þótti innilega vænt um Ali Reza, sem var eini al- bróðir hans og hann sagði oft: „Ali er miklu betri maður en ég.“ En bersýnilega áleit hann ekki unga prinsinn hæfan til að verða þjóðhöfðingja. Svo að allt var við sama og áður. Þó að heimsblöðin gæfu oft í skyn, að Ali væri sjálf- kjörinn erfingi krúnunnar hafði hann aldrei opinberlega fengið titilinn. Krúnan varð áfram að vera háð lífi keisarans, meðan hann átti engan son. Ég fann að þrá hans eftii; syni óx jafnt og þétt. Þar sem hann elskaði mig reyndi hann eftir beztu getu að dylja óþolinmæði sína. En í slíkum málum er ekki hægt að leika á konu, og ég þjáðist af innsta hjartans grunni að mér tókst ekki að uppfylla þessa ósk hans. Þess vegna hikaði ég ekki andartak að samþykkja það, er ustu læknar höfðu eftirlit með sjúklingum og jafnframt nutu þeir allra þæginda sem hugsan- < leg og óhugsanleg voru á lúxus hóteli. í þrjá daga vorum við rann- sökuð hátt og lágt. Og að þeim loknum var okkur tilkynnt að við værum bæði mjög hraust og kenndum okkur hvergi meins. „Og hvað um mitt sérstaka vandamál,“ spurði ég áköf. „Við finnum enga ástæðu fyr- ir því að yðar hátign geti ekki orðið móðir,“ var svarið. „Þér verðið aðeins að vera þolin- móð.“ „Ég þarf ekki að ganga undir neina læknisaðgerð, sem flýtti fyrir líkunum til að verða barnshafandi?" „Nei, þetta er aðeins spurn- ing um tíma.“ Þessi úrskurður gaf okkur 8 FALKINN

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.