Fálkinn


Fálkinn - 13.07.1964, Qupperneq 18

Fálkinn - 13.07.1964, Qupperneq 18
Enn var klukkan ekki orðin sjö. Jön gaf sér góðan tíma til að kveikja á tækjunum, mögnurum fyrir grammó- fóna og hljóðnema. Síðan kveikti hann á fjarrita, sem veðurstofan sendir veður- fréttirnar á sunnan af flugvelii og stað- settur er í setustofu framan við þular- stofuna, tróð sér í rólegheitum í pipu og setti piötu á fóninn. Svo dró hann þjóð- vinafélagsalmanak upp úr vasa sínum og lagði það á borðið, ásamt dagskránni. Ekki ætlaði Jón að mæla tímann á almanakinu, eins og Pálína frænka hans kvað hafa verið gert á íþróttamönnum vorum í útlandinu, heldur kvaðst hann alltaf hafa það við hendina, þar eð í því væru ýmsar hagnýtar upplýsingar um daginn. sem væri að byrja, og er þar með fundin skýring ó hinni næstum ótrúlegu kunnáttu, sem Jón hefur ávallt á reiðum höndum urri dagatal vort og samtíð. Svo fór fjarritarinn að tifa, klukkan nálgaðist sjö. Eina mínútu fyrir sjö reif Jón veðurfregnirnar af^ íjarritanum, gekk inn í þularstofuna og lokaði. Ör- skömmu síðar heyrðist klukkan stóra slá i hátalaranum á veggnum og siðan kom kunnugleg rödd: Útvarp Reykja- vík, útvarp Reykjavík, Ríkisútvarpið býður 'yður góðan dag. í dag er mið- Framhald á bls. 39. Og í hádeginu fær hann sér ódýran og góðan málsverð í veitingastofu útvarpsins. Þetta borð hafa þeir, er við það sitja, sjálfir nefnt „Gáfumannaborð“. Frá vinstri: Thorolf Smith, Sigurður Sigurðsson, Jón Múli og Haraldur Ólafsson, fréttamaður (snýr baki í myndavélina). Svo sezt hann hann niður við skrifborðið sitt, athugar lengd laganna og raðar þeim saman, svo allt passi og athugar með kynningar. En hann skrifar þær ekki niður heldur mælir þær allar af munni fram, þegar þar að kemur.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.