Fálkinn


Fálkinn - 13.07.1964, Side 28

Fálkinn - 13.07.1964, Side 28
ÁBYRCÐP Me^ i>Vi Bfcyájiíí faér* ljSojt* eScjtcí' fcryígglí-iqa.-félaÆ} og ijScxy> eTojín h»cj| THyGGINGAFÉlAG BINDINDISMANNA laaqmql 133 . Sfcnl I745S og 1794? hann, eða hljóp til hans og spurði ráða, breyttist röddin. „Hefur yður nokkurn tíma dottið í hug, ungfrú Black, að við eigum ýmislegt sameigin- legt, ég og þér?“ „Ég sagði Riette, að það væri jafnt á með okkur komið, vegna þess að þér gáfuð okkur báðum húsaskjól og við erum munaðarleysingjar, sem lif- um á góðvild yðar.“ „Móðir mín var vön að kalla þetta lyktandi stolt,“ sagði hann annars hugar. „Ég er ekki sá, sem er stolt- ur.“ „Oh, jú, það eruð þér. Það lyktar af stolti yðar ungfrú Black, og gleymið því ekki eitt einasta augnablik. Hver er sá ósökkvanlegi? Þér vinnið fyrir mig, og af ásettu ráði fyrir ekki neitt, vinnið störf, sem þér haf- ið aldrei unnið áður og ég veit, að yður þykja erfið. Hvers vegna segist þér lifa á góðvild minni? Það er ég sem lifi á yður.“ Mig svimaði af reiði, þegar ég heyrði þessi stóru orð. Hvernig gat nokkur verið svona óþolandi? Sem betur fór birtist Pascale einmitt á þessu augnabliki, vafin inn í geysístóra svuntu eins og hvolpur í vasaklút, og sagði okkur, að kvöldverðurinn væri tilbúinn. Falin fortíð Framhald af bls. 15. ekki svona. Þér fyrirlítið mig alltaf. Ég er viss um, að yður finnst ég vera bjáni:“ „Hvað hefur komið þessu flóði af stað?“ „Jæja, ég sagði að þér væruð ómannlegur, það var dónalegt,“ „Og þegar þér hafið haft á röngu að standa verðið þér reiðar við þann, sem þér hafið móðgað?" „Alltaf.“ „Segið mér eitthvað um grimmdina," sagði hann, rins og honum þætti gaman að and- stöðu minni. „Mér þætti gaman að heyra álit yðar, ungfrú Black.“ „Þér mynduð ekki taka neitt mark á mér, þótt ég gerði það.“ „Að sjálfsögðu gerði ég það. En ekki ef þér gerið mikið úr þessu.“ „Mér finnst þér vera ómann- legur, en það hljómar eins og öfugmæli, þegar hugsað er um vinnuna, sem þér vinnið. En það er einmitt vegna þess að læknar eru alltaf að fást við manneskjur, að þeir eins og friósa sjálfir. Þeir vilja ekki blanda sér í mál þeirra. Þeir segjast ekki geta það. Það getur verið nauðsynlegt í starfi yðar. En hvers vegna þarf það að síj- ast úti líf yðar sjálfs? Það er hræðilegt að hugsa svona. Madame Prosper saknar auð- vitað yðar, og ekki hússins. Hvers vegna ætti yður að líða betur, ef þér hugsið yður það á hinn veginn? En af hverju er ég að tala um þetta? Læknum finnst þeir alltaf hafa á réttu að standa. Þeim verður ekki sökkt.“ „Finnst yður ég vera þann- ig?“ „Svo sannarlega." „Vilduð þér, að ég væri það ekki?“ „Ég tryði því aldrei, að svo gæti verið.“ Hann stóð á fætur og hellti í glösin okkar eins og venju- lega, og settist svo aftur. ,Þegar ég talaði við hann, var eins og slaknaði á einhverj- um vöðvum í andlitinu, sem annars voru stífir. Einu sinni hafði ég haldið þetta vera upp- gerð. Nei, þetta gamaldags orð var stolt. Ég hafði haldið hann vera stoltan. En þegar ég talaði við hann eða varð reið út i Á meðan á máltíðinni stóð, talaði hann um sjúkling, sem hann hafði heimsótt um dag- inn. Þetta var gömul kona, sem bjó í hálfhrundu húsi við ströndina, í garði, þar sem pálmatrén voru öll dauð, en landareignin var tugfþúsunda punda virði. „Ég hef oft sagt henni að fara til einhvers tízkulæknis, það er það, sem hún þarf. En hún var svo tengd fyrirrenn- ara mínum. Ég er viss um, að henni finnst hún verða að vera hérna hjá mér.“ „Hvað er að henni?“ „Það, að hún er áttatíu ára. Einmana. Og vill ekki eyða peningum. Vill ekki neinar breytingar. Ég finn til sektar- tilfinningar, þegar ég ek eftir götunni, og nem staðar við hliðið. Það er stoppað af lauf- um. Ég hugsa, að ég sé eini maðurinn, sem ekur þarna inn og út. Samt var þarna allt fullt af gestum, þegar hún var ung — þeir komu hvaðanæva að af ströndinni til þess að heim- sækja hana, að því er mér hef- ur verið sagt. Ég vildi óska, að ég gæt.i gert meira fyrir hana.“ „Ég geri ráð fyrir, að hún vilji, að þér standið við svo 28 klukkustundum skiptir." Ég vissi, hvernig henni myndi verá innanbrjósts. „Já.“ „Flestir vina minna voru þannig. Læknisheimsóknin var lúxus. Þeir borguðu fyrir hana, og vildu njóta hennar.1' „Ég er ekki þess konar lækn- ir.“ „Þér þurfið ekki að segja mér það.“ Ég beið eftir tækifæri til þess að spyrja hann um málaralist- ina. Það kom eftir matinn, þeg- ar við fengum okkur kaffi, og hann tók upp tímaritið, sem hann hafði lagt á gólfið. „Madame Prosper sagði mér, að þér hefðuð verið listamað- ur.“ „Madame Prosper ætti ekki að vera að skipta sér af einka- málum annarra." „Hún sagði ekkert ákveðið. Hún sagði mér ekkert ef leynd- armálum yðar," sagði ég létti- lega, „en hún sagði nú samt, að þér hefðuð haft unun af mál- aralistinni og hefðuð alltaf vonast til þess að geta orðið málari ... og mér datt svona í hug, hvort þér mynduð eiga nokkrar myndir eftir, sem þér vilduð sýna mér." „Nei, ekki eina einustu," sagði hann og brosti undarlega. „Gáfuð þér þær allar?" „Ég brenndi þær.“ „En hvað það er voðalegt!“ „Ef til vill voru þær einsk- is virði." „En þér vitið þó, að það er ekki rétt.“ Hann horfði rannsóknaraug- um á mig um stund. „Já, þér hafið alveg á réttu að standa. Sumar þeirra voru ekki sem verstar. Hvernig vissuð þér það?“ „Ég veit ekki ... Ég dró þá ályktun af því, sem hún sagðl ... eða af- því, að þér máluðuð allan liðlangan daginn og hún sagði, að þér hefðuð séð sýnir, oh, mér bara fannst það ein- hvern veginn. Hvers vegna •— hvernig — gátuð þér hætt við þetta allt?“ > „Madame Prosper sagði yðúr hvers vegna." i „Það var ekki svarið." I Ég hafði aldrei komizt jafn langt inn á einskismanns land og núna, sem lá á milli mín og þessa manns. Ég var meira að segja komin svo langt, að mér lá við að skilja hann. Og hann var kominn á fremsta hlunn með að leyfa mér það. „Ef til vill get ég bezt skýrt þetta með því að minnast á þennan sjúkling aftur. Það er Framh. á bls. 40. FALKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.