Fálkinn


Fálkinn - 13.07.1964, Síða 30

Fálkinn - 13.07.1964, Síða 30
MEIKl BANNSETTUR KVEIMNABÚSIIMIM Hansen forstjóri fór á fætur á hverjum morgni klukkan ná* kvæmlega fimm mínútur yfir átta, þvoði sér og rakaði sig, drakk morgunkaffið sitt og borðaði rúnnstykki með því, las Moggann, stakk matarpakk- anum í svínsleðurstöskuna, kyssti konuna sína kveðjukoss- inn og ók á skrifstofuna, Nákvæmlega klukkan hálf- fimm um daginn kom hann heim aftur, rak hausinn inn um eldhúsdyrnar, gaf konu sinni lítinn koss á kinnina, setti tösk- una frá sér í innbyggða skápinn í forstofunni, fór í inniskóna, las blöðin, borðaði, horfði á sjónvarpið, drakk kvöldkaffið, geispaði syfjulega nokkrum sinnum, bauð Alice góða nótt með kossi og fór að hátta. Einu sinni í mánuði fór hann með Alice í leikhús, einu sinni I mánuði spiluðu þau bridge með nokkrum vinum, einu sinni í mánuði heimsóttu þau vina- fjölskyldu sína og einu sinni á ári fóru þau í hálfsmánaðar ferðalag til Mallorca eða Costa del Sol. Hansen forstjóri var góður og löghlýðinn borgari hvernig sem á var litið, og góður og ástúð- legur eiginmaður. Öðru máli gegndi með Söfte- berg, nábúann í einnar hæðar húsinu við hliðina. Hann var allt öðruvísi náungi og ákaflega villtur. Alltaf var hann að finna upp á einhverri vitleysunni. — Nú hefur Söfteberg enn einu sinni verið á fylliríi! sagði Hansen stundum við Alice, þegar hann kom heim, á meðan hann setti svínsleðurtöskuna á sinn stað. — Hann varð mér samferða heim í bílnum og hann sagði að hann hefði „slett almennilega úr klaufunum“ á sunnudaginn. Það er nú meiri talsmátinn á manninum. Hann sagðist hafa rekizt á nokkra hressilega náunga og þeir hefðu „dottið almennilega í það“. Þeir hefðu orðið pöddufullir og „gengið á brauðfótum,“ svo þeir vissu tæplega, hvað þeir hefðu gert. En þeir mundu þó, að þeir — þeir voru fjórir — hefðu náð í sex bjórkassa og leigt 64 manna rútubíl og keyrt með nokkrum stelpum, sem þeir rákust af tilviljun á, um bæinn og það hefði verið ferðalag, sem vert væri um að tala. Manni leiðist svo sem ekki á meðán hann rausar, hann Söfteberg!, Eða þá að Hansen forstjóri kom æðandi inn í eldhúsið til Alice og dró hana með sér út á veröndina. — Guð má vita, upp á hverju Söfteberg hefur nú tek- ið. H-vað segirðu um þetta? Það er hestur bundinn við fána* stöngina hans! Hvar í skrattant um hefur hann náð í hann? Maður labbar sig nú ekki venju- lega út og kaupir sér stóran klumpslegan vagnhest eins og 30 FALKINN

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.