Fálkinn


Fálkinn - 13.07.1964, Side 38

Fálkinn - 13.07.1964, Side 38
VARIÐ YKKUR A „ÞRENNINGUNNI“ Hvöi-á vegna eltir þú mig? spurði Alfreð prins og steig fram úr k.iarrinu. „Ég hef áriðandi skilaboð til yðar hátignar," svaraði Ottó rólegur. „Ég er Ottó frá Arnarkastala.“ Prinsinn horfði undrandi á riddarann unga. Grunsemdir hans hurfu óðum. Ottó skýrði frá hinu alvarlega ástandi, sem skapast hefði vegna að- gerða Fáfnis og Norðmannanna. Þegar hann hafði lokið máli sk" kinkaði prinsinn kolli. „Þetta styður minn versta grun,“ stundi hann. „É hef aldrei treyst Fáfni. En til allrar ógæfu hefur faðir minn gert það.“ Og nú varð Ottó þess áskynja, að hann og Klængur höfðu verið boðaðir til hirðarinnar og að faðir hans væri að öllum líkindum þegar kominn þangað. „Hví kemur þú ekki með mér?“ spurði prinsinn allt I einu. „Saman getum við vonandi komið föður mínum í skilning um hvernig ástandið sé i raun og veru.“ Næsta dag slógust Ottó, Ari og Danni í för með prinsinum og fylgdarliði hans. Danni var tortryggnari en Ottó og Ari. Hann hafði því gert sínar varúðarráðstafanir. Húfa og fleiri hjálpar- tæki gerðu hann torkennilegan þeim mönnum, sem kynnu að mæta þeim. Þeir komust til hallarinnar án nokkurra erfiðleika. Sn—'-væmt skipun prinsins voru þeim fengin herbergi og þjón- ustufólk í einni hallarálmunni. Fáfnir, sem var í uppnámi vegna hinnar skyndilegu ákvörðunar Sigurðar víkings, fylgdist með þessum atburðum með mikilli tortryggni. Á meðan tókst Ottó að laumast í stutta rannsóknarferð um höllina. Hann komst að tvennu athyglisverðu: Faðir hans var ekki í höllinni, en hins vegar gamall kunningi: Rut frá Hrafnabjörgum. , Ottó sá á eftir Rut fyrir horn og kallaði til hennar eins hátt og hann þorði. Stúlkan staðnæmdist og leit við „Ottó?“ spurði hún undrandi og veikur roði færðist í kinnar hennar. „Hvernig vogarðu þér að koma hingað í sjálfa ljónagryfjuna? Veiztu ekki að Fáfnir er hérna?“ MÉg veit það,“ sagði Ottó, „Rut... ég þarf að tala við þlg.“ Hún opnaði dyr og dró hann inn um þær. „Það er hættulegt fyrir okkur bæði, ef við sjáumst saman,5* sagði hún. „Hér verðum við ekki trufluð." Stúlkan horfði eftir- væntingarfull á Ottó. „Jæja,“ sagði hún skipandi röddu. FALKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.