Fálkinn - 20.07.1964, Blaðsíða 4
— Ég myndi í yðar sporum
ekki ónáða nágrannann. Hon-
um er svo assgoti illa við alla
sölumenn!
Er hún þess virði?
Kæri Fálki!
Ég skrifa ykkur hérna bréf
til þess að leita hjálpar ykkar
og ég vona að þið snúið ekki
út úr þessu bréfi fyrir mér
heldur reynið að hjálpa mér í
þessu máli. Það kemur nefni-
lega þannig fyrir að þið snúið
út úr bréfum og mér finnst
það ekki rétt.
En svo að ég segi ykkur nú
hvernig stendur á þessu þá er
málið þannig að ég er svolítið
hrifinn af stelpu. Hún hefur til
þessa veitt mér frekar litla at-
hygli heldur virðist hún hafa
meiri áhuga fyrir öðrum strák
sem á heima hérna líka. En um
daginn voru nokkrar stelpur
hér að tala saman um stráka
og svoleiðis og þá sagði þessi
stelpa sem ég er skotinn í að
strákarnir yrðu að sýna eitt-
hvað af sér til þess að stelpurn-
ar gætu verið hrifnar af þeim.
Hann yrði að sýna að hann væri
karlmaður og þyrði t. d. að
kasta sér í sjóinn fram af
bryggjunni eða eitthvað svo-
leiðis. Nú er ég að hugsa um
hvort ég eigi að kasta mér í
sjóinn svo hún sjái og vekja
þannig athygli hennar á mér
og sýna henni að ég geti verið
karlmaður eins og hver annar.
Mig langar aðeins til að leita
ráða hjá ykkur. Mér var líka að
detta í hug hvort ég ætti að
sýna henni að ég þori að
stökkva niður af tunnuhlaðan-
um. Ég er nærri tiibúinn að
gera hvað sem er bara ef það
er nóg til þess að vekja athygli
hennar á mér. En mér er illa
við að standa í slagsmálum
enda mun ég vera lítt góður í
þeim efnum.
Svo vonast ég eftir svari hið
allra fyrsta.
' Steini.
Svar:
Steini minn, þetta er ekki svo
auOvelt viOfangs. Þetta hefur vaf-
izt fyrir fleirum en þér. Sumir
liafa orÖiO skáld út úr öllu saman
og látiO kvenmanninn lönd og
leiO. Kannski œttir þú aO reyna
þá leiOina. Hver veit?
Þú skalt ekki fara aO stökkva í
sjóinn. ÞaO eyOileggur fötin þín
og hefur kannski ekki neitt upp
á sig. Þú skalt lieldur ekki fara
aö stökkva niöur af tunnulúaöan-
um þvl þú gœtir hreinlega stór-
slasaö þig og kannski jafnvel dáiö
og þá hefur þú litiö meö kven-
manninn aö gera. Aö vísu vœrir þú
búinn aö vekja athygli hennar á
þér en þá er þaö um seinan. Þú
segist ekki geta staöiö f slagsmálU
um en þaö veeri nú kannski hezta
leiöin til þess arna. En þaö er þð
aldrei aö vita. Þótt þú rotaðir
þann sem veitir þér liaröasta
keppni gæti þaö eins vel oröiö
til þess aö ást hennar á honum
yröi enn þá heitari. Þetta er sem
sagt ekki auövelt mál en viö von-
um aö þú getir ráöiö fram úr
þvl.
Önugheit í síma.
Virðulega blað.
Það er furðulegur hlutur
hvað fólk getur stundum verið
önugt við mann þótt manni
verði það stundum á að hringja
í vitlaust númer. Um daginn
sátum við nokkrir að sumbli og
þurftum nauðsynlega að ná í
einn kunningja okkar. Við
hringdum þegar klukkan var
rúmlega hálftvö um nótt en
vorum svo óheppnir að hringja
í vitlaust númer og sá sem þar
svaraði var bæði önugur og af-
undinn og hafði hreinlega í hót-
unum við okkur. Nú gerðum
við þetta ekki með vilja og
marg báðum hann afsökunar
á þessu en hann æsti sig bara
meira og meira upp. Svona-
lagað finnst mér ekki hægt.
Jói.
Svar:
Hvaö mundir þú segja ef þú
vœrir nýbúinn aö festa blundinn
og einhver hringdi svo í þig sem
heföi ekkert viö þig aö tala i raun
og veru og heföi aöeins liringt l
skakkt númer. Segium nú svo aö
þú œttir erfitt meö svefn. Og svo
þegar þú vilt fara aö leggja á þá
heldur hinn áfram aö taia og er
stööugt biöjandi afsökunar á þessu
leiöinda atviki. Þaö er ekki nema
mannlegt aö bregöast svona viö
þessu. Og kannski hefur mann
aumingjann langað til aö koma l
samkvœmiö til ykkar. En meöal
annarra oröa. Var þetta algjör
„óheppni“ eöa var þetta reglulega
gott samkvcemi?
Svar til E.
Þótt ilta hafi tekizt hjá þér núna
er elcki ástæöa til þess aö láta þaö
á sig. Svona lagaö getur alltaf
komiö fyrir og viö þvi er ekkert
aö segja. Þú skalt því óbugaöur
byrja aö nýju og vera viss um aö
nú muni þér ganga betur en áöur.
Svar til P. E.
Þessi náungi sem þú ert aö
skamma l bréfinu haföi fullan rétt
til aö gera þaö sem hann geröi.
Þaö varst þú, sem varst í órétti
og þú mátt þakka fyrir aö hann
4
FALKINN