Fálkinn - 20.07.1964, Page 17
f eldri hluta
Kabúl.
heimsálfunni og sitt frá hvorri öldinni, var oft hið furðulegasta sambland og
ósjaldan heldur ræksnislegt á að líta.
„Þetta er ekki ósvipað því, sem mun áður hafa tíðkast í Síberíu,“ sögðu
Frakkarnir, sem voru nýkomnir þaðan, „þótt nú'sé fólk þar mannsæmandi
klætt.“
Ein orsök þessa sérkennilega klæðnaðar almennings í Kabúl og víðar í
Afganistan er bandarísk efnahagshjálp með nokkuð sérkennilegum hætti.
Vegna sárrar fátæktar hafa landsbúar lengstum verið illa klæddir. Var þá
fyrir milligöngu Bandaríkjamanna hafin innflutningur á notuðum
bandarískum fatnaði, sem seldur var fyrir sáralítið fé til Afganistan, líklega
ekki fyrir meira en flutriingskostnað. *
I gamallegum markaðnum í Kabúl fer sala þéssi fram og gengur líflega.
Þar kosta notuð jakkaföt um og rétt yfir eitt hundrað krónur og frakkar
lítið eitt meira. Er flest af þessu sterkar og hlýjar flíkur, og mun hafa komið
afgönskum almenningi betur en nokkur önnur efnahagsaðstoð, sem landið
hefur hlotið, hvað vera mun orðin geysileg upphæð og mest megnis fengin
frá Rússum og Bandaríkjamönnum. Þessi innreið vestrænnar tízku í
Bændur £ verzlunarerindum.
verðs. Þar settumst við að.
Hörð rúm og illa þvegin
sængurföt voru fyrir löngu
hætt að styggja svefn okkar.
Er við gengum út fyrsta
morgun okkar í Kabúl, var
ekki lengur um það að efast,
að við værum komnir langt
norður og upp fyrir Indland og
Pakistan. Þótt enn væri miður
október, var fólk samt dúðað
í jakka og frakka eða víða
langröndótta, síða serki, með
langan „sash“-stranga um
mittið og efnismikinn túrban
á höfði. Að gerð til var þessi
fatnaður ættaður sitt úr hvorri