Fálkinn - 20.07.1964, Síða 25
Og þannig var skilið við þennan á akrein
á Snorrabrautinni — og í þokkabót var
barn skilið eftir í bílnum! Skyldi foreldri
hafa verið þarna að verki?
Þessi mynd er talin tákn um það hirðu-
leysi, sem er gagnvart gangandi fólki. Það
er allt of algengt, að gangstéttir séu teppt-
ar, til dæmis við vöruaffermingu, eða
hreinlega með drasli. Eigandi þessa húss
í Túnunum var að láta gera girðingu í
kringum lóðina sína. í stað þess að setja
moldina úr skurðinum inn á lóðina gerir
hann sér lítið fyrir og teppir gangstéttina
og gerir þar með sitt til að eitt dauðaslysið
enn bætist við.
Þessa mynd þekkja sjálfsagt flestir. Alla daga er reiðhjólahrúgan undan Vestur-
veri, og iðulega liggja þau á götunni, svo ökumenn verða að beygja út í hina
akreinina til að keyra ekki yfir þau.
— Þú mátt bara ekki ljúga neinu í
þá og heldur ekki segja neitt ótrúlegt,
þótt það sé satt, því þá halda allir að
það sé lýgi! sagði Sigurður glottandi
um leið og hann fór út.
— Hvað eruð þið margir hérna í
umferðadeildinni?
— Við erum 14, þar af 9 á mótor-
hjólum.
— Eru þessi hjól útbúin talstöðvum?
— Enn sem komið er aðeins eitt
þeirra, það er númer 1, sem ég er á,
en sú talstöð hefur gefið svo góða raun,
að nú er von á fleirum. Það er alveg
ótrúlegt, hvað hún hefur reynzt vel,
þrátt fyrir allan hristinginn, sem fylgir
mótorhjólaakstrinum!
— Hvað draga þessar talstöðvar ykk-
ar langt?
—Ef við tökum til dæmis Þingvalla-
leiðina, þá heyrist ágætlega austur á
há Mosfellsheiði, þangað sem afleggjar-
inn að Stíflisdalsvatni liggur frá vegin-
um, en siðar fer að heyrast dau'ár í
þeim. Við heyrum ágætlega í þeim
austur á Kambabrún og inn með Hval-
firðinum. Þetta er sérbylgja, og við
getum ekki haft samband við Gufunes.
Það geta aftur vegaeftirlitsbílarnir.
— Þetta eru mjög kraftmikil hjól,
sem þið eruð á, er ekki svo?
— Jú. Þau eru flcst af gerðinni
Harley-Davidson. Þau ná miklum hraða
á ótrúlega stuttum kafla og eru mjög
góð farartæki fyrir þá, sem með þau
kunna að fara. Ég held að ökumenn geri
sér alls ekki grein fyiúr því oft, hve við-
bragðsfljót þau eru.