Fálkinn - 22.09.1964, Blaðsíða 4
AAaliftílytjanili
pwlskrar vefnadarvöru til fatnaðar
Sienkiewicza %, Lódz, Pólland
Sími: 285-33 — Símnefnl: CONFEXIM, Lódz
f
CONFEXIM'
HEFUR Á BOÐSTÓLUM:
★ Léttan sem þykkan fatnað
fyrir konur, karla og
börn.
★ Prjónavörur úr ull, bóm-
ull, silki og gerfiþráðum.
★ Sokka, allar gerðir.
★ Bómullar- og ullarábreið-
ur.
★ Handklæði „frotte“.
★ Rúmfatnað.
★ Hatta fyrir konur og
karla.
★ Fiskinet af öllum gerðum.
★ Gólfteppi.
★ Gluggatjöld.
Gæði þessara vara byggist á löngu starfi þúsunda þjálf-
aðra sérfræðinga og að sjálfsögðu fullkomnum nýtízku
vélakosti.
Vér bjóðum viðskiptavinum vorum hina hagkvæmustu
sölu- og afgreiðsluskilmála.
Sundurliðaðar, greinilegar upplýsingar geta menn fengið
hjá umboðsmönnum vorum:
ÍM I X/.K ERLGNDA
VERZLUNARFÉLAGIÐ H.F.
Tjarnargötu 18, Reykjavík eða á skrifstofu verzlunar-
fulltrúa Póllands Grenimel 7, Reykjavík.
Enn einu sinni.
Kæri Fálki!
Enn einu sinni hefur íslenzkt
knattspyrnulið verið sent á
erlenda grund til keppni — og
tapað. Ekki svo að skilja að
mér sé ekki sama þótt þessi lið
séu að fara utan til keppni
heldur hitt að mér datt í hug
hvort ekki væri heppilegra að
nota fé og tíma sem í slíkt
fer til að bæta knattspyrnuna
hér innanlands og reyna að
gera hana sæmilega úr garði.
Hér er mikið sem hægt er að
vinna fyrir þessa og aðrar
íþróttagreinar og ég held að
það væri heppilegra að hlúa
betur að þeim óður en við för-
um að hasla okkur völl á
erlendrum vettvangi. Eina
íþróttagreinin sem við stöndum
okkur sæmilega í miðað við
aðrar Þjóðir er handknattleik-
urinn og hvað gerum við svo
sem fyrir þessa íþróttagrein.
Það er heldur lítið. Við eigum
ekki boðlegt húsnæði fyrir
hana, við eigum ekki nægilega
stóran völl þar sem landsleikir
geta farið fram. Að vísu er til
hér eitt hús sem segja má að
sé nægilega stórt en það er í
eigu erlendra aðila og auk þess
í fimmtíu kílómetra fjarlægð
frá Reykjavík. Hins vegar skal
það játað að við höfum í nokk-
ur ár átt í byggingu hús hér
í Laugardalnum og eftir öllu
að dæma virðist svo sem við
munum eiga það í byggingu
nokkur ár enn þá.
Ég held að við ættum þvi
fyrst og fremst að hlynna að
íþróttunum hér heima, skapa
góðan grunn og senda síðan lið
til keppni á erlenda grund.
Spói.
Svar.
Þaö er margt rétt í bréfi þínu
Spói góöur en heldur mun þaö
erfitt aö skapa þann grunn fyrir
knattspyrnu aö viö getum náö
svipuöum árangri og stórþjóöirn-
ar. En viö eigum góöu handknatt-
leiksfólki á aö skipa.
Lítið minnst á
bakpokalýð í suniar.
Kæri Fálki!
Ef mig misminnir ekki stór-
lega var í fyrra sumar grein hjá
ykkur í Fálkanum um svokall-
aðan bakpokalýð. Þetta eru
flestir hverjir heldur leiðin-
legir ferðamenn þótt innan um
sé margt ágætis fólk. Ég minn-
ist þess ekki að hafa mikið
heyrt um þessa ferðamenn
talað í sumar og hef verið að
velta því fyrir mér hvort minna
hafi verið um þá en endranær.
Þó hefur maður heyrt að ferða-
mannastraumurinn hafi verið
meiri í sumar en mörg undan-
gengin ár. Kannski þið getið
gefið mér einhverjar upplýs-
ingar um þetta?
Með kveðjum.
Poki.
Svar. a
Eftir því sem okkur er taliö
af þeim mönnum sem fylgjasi
meö þessum málum og þekkja til
þeirra þá liefur veriö mun minna
um þess háttar feröamenn sem
þú minnist á í bréfinu. Og hegöan
þessara manna liefur veriö mun
betri en undanfarin ár. Hver
ástœöan kann aö vera skal ósagt
látiö en vera má aö feröaskrif-
stofurnar eigi hér einlwern hlut
aö máli og einngi gceti þaö átt
sér staö aö sendiráöin liér heföú
eitthvaö tekiö í taumana.
Um ferðaklúbba.
Háttvirta blað!
Það er oft talað um að ferða-
menning okkar íslendinga sé
ekki upp á marga fiska. Við
göngum heldur leiðinlega um
þegar ferðast er um okkar ást-
kæra land. Og sumar helgar
sumarsins hafa þótt heldur
hvimleiðar fyrir ólifnað ferða-
manna eins og t. d. hvíta-
sunnan og verzlunarmanna-
helgin. Það má vel vera að
þetta sé rétt en það sem sumir
hafa haldið fram í þessu máli
að eitthvað þurfi að gera til
úrbóta.
Hér eru starfandi nokkur
ferðafélög og ferðaklúbbar,
eins og d. d. Ferðafélag íslands,
Farfuglar, Litli ferðaklúbbur-
inn og templarar hafa einnig
haft ferðamál á sinni starf-
semi. Ég held að allir sem til
þekkja geti lokið upp einum
munni um það að þessi félög
og klúbbar hafi gert mikið til
þess að bæta í þessum málum
hjá okkur. Ferðafélag íslands
hefur t. d. víða komið upp
sæluhúsum sem eru ómissandi.
Ég hygg að félög og klúbbar
sem þessir geti gegnt mikils-
verðu hlutverki í uppeldi æsk-
unnar og mér finnst það frá-
leitt að það opinbera skuli ekki
fylgjast betur með þessum
félögum og veita þeim meiri
styrki.
Ferðamaður.
4 FÁLKINN