Fálkinn - 22.09.1964, Blaðsíða 23
Kl. 3.45. Nú er hún komin í öll undirfötin, þau hafa verið
brotin hæfilega upp yfir beltið. Kimonoinn er með víðu háls-
máli svo mátulega mikið sjáist af hinu hvítmálaða baki,
en brjóstin eru gerð lítt áberandi. Nú er obin, skrautbeltið
eftir, en það er fjögurra og hálfs metra langt vírofið silki-
belti og svo þykkt að það vegur meira en kíló. Því er vafið
tvisvar um mitti Chiyoha og svo er hnýtt á það falleg slaufa
í bakið. Loks tekur aðstoðarmaðurinn síðasta fatið, svert
silkiband, sem heitir obidomen, og það er hnýtt um mittið, svo
að allt haldist í skorðum. Það er langt frá því að klæðnaður
geishunnar sé þægilegur. Um mitti hennar eru klæðin marg-
föld og hún er reirð. Þrátt fyrir þetta á hún að hreyfa sig
þokkafullt og dansa í margar klukkustundir.
FALKINN
23