Fálkinn - 22.09.1964, Síða 38
Meðal helztu endurbóta má telja:
Sýningarbíll til sýnis hjá Bílaval Laugaveg
Leitið upplýsinga.
Einkaumboð:
INGYAR HELGASON
Tryggvagöfu 4 - Reykjavík - Sími 19655.
1. 26% stærri rúður.
2. 50% betri hitagjöf frá miðstöð.
3. Rúðusprautur.
4. Hljóðeinangrun með trefjamottum.
5. Gerbreytt útlit, þak lárétt með skyggni
að aftan.
6. Nýir glæsilegir litir.
7. Stuðari að aftan.
8. Tvö sólskyggni.
9. Fatasnagar og þrír öskubakkar.
10. 2 útispeglar og einn tvöfaldur innispegill.
11. Afturhluti bílsins lengdur, afturljós innibyggð.
12. Upphalarar á stórum hliðarrúðum.
13. Þægilegri sæti, og rýmri aftursæti.
14. Kistulok fest með lykli.
15. Húnar á hurðum gerbreyttir.
16. Stærri rafgeymir.
17. Miklu þýðari á vondum vegi.
18. Auk óteljandi annarra breytinga og endurbóta.
19. Hefur einnig alla kosti Trabant 600, á vél,
bremsum og gírkassa, sem reynst hefur afburða
vel hér.
HVERS VEGNA KAUPA BÍL FYRIR 130 40
ÞÚSUND KR. ÞEGAR HÆGT ER AÐ FÁ
nýjan TRABANT '65 módel fyrir
80 ÞÚSUND KR.
Trabant '65 módel er mí fyrirliggjandi með fjöl-
mörgum endurbótum og gerbreyttu útliti.
að gleyma áhyggjum sínum.
Þótt maiko-tímanum ljúki
við átján ára aldur heldur nám-
ið áfram. Það er eins með
geishurnar og listamenn vestur-
landa: Þær læra alltaf meira
og meira. Hvern morgun sezt
Chiyoha á skólagólfið til að
nema meira.
Kennslan stendur yfir marg-
ar klukkustundir á dag. Og
klukkan tvö er konúnn tími til
undirbúnings fyrir geishu-
veizlu kvöldsins.
Það er mikið um dans í lífi
Chiyoha, en það er enginn dans
á rósum. Samt fellur henni við
það líf, sem hún lifir, og hún
sér ekki eftir því að hafa valið
sér starf geishunnar í stað þess
að sitja á skrifborðsstól eða
standa bak við búðarborð.
Frítími hennar er lítill. I
Japan halda menn ekki hvíld-
ardaginn heilagan og frí eru
mjög lítil. Er Chiyoha getur
um frjálst höfuð strokið, klæð-
ist hún gjarna á vesturlanda-
vísu og fer út til að hitta vin
sinn sem er 24 ára gamall og
stundar nám við háskólann.
— Jæja, Chiyoha-San, ætlið
þið að gifta ykkur? spyr ég.
Hún hlær tvíræðum hlátri.
Það er undir ýmsu komið.
Fyrst og fremst því, hvort
hann vill. Vissulega er það
ekkert sjaldgæft að geishur
giftist, til dæmis stjórnmála-
mönnum, fjármálajöfrum, kvik
myndaleikurum og leikhús-
mönnum. Ein dætra Kyotos
hefur meira að segja haslað sér
völl á spjöldum sögunnar með
giftingu sinni, því eiginmaður
hennar er af hinni voldugu
Morgan-ætt í Bandaríkjunum.
En sem sagt, það er ekki gott
að segja. Það fer eftir því hvort
strákurinn vill. Og hvort for-
eldrar hans leyfa það. Og
hvort Chiyoha sjálf fær leyfi
hjá mamma-san sinni og sínum
eigin foreldrum.
Ef ekki? Jú, venjulega lausn-
in er sú, að hún verður sér úti
um danna, ríkan verndara úr
hópi fastagestanna.
Þetta hefur í för með sér
ýmsar flóknar efnahagsráðstaf-
anir, og í þeim er mamma-san
miðpunkturinn eins og öllum
mikilvægum ráðstöfunum í lífi
geishunnar. Unga stúlkan hef-
ur vissulega rétt til að hafna
tilboðinu, en efnahagurinn er
henni svo mikilvægur að það
þarf sterkan vilja til þess að
38 FÁLKINN