Fálkinn - 19.10.1964, Page 4
SJrvttl ntjiésku húscjnyntt
Httfgsíœit rcrð —
géö greiöslukjör
HXOTAÍV
HÚSGAGNAVERZLUN
Þórsgötu 1 — sítni 20820
Um unglinga.
Vikublaðið Fálkinn,
Reykjavík.
Það er talað um að ungling-
arnir séu mikið vandamál. Það
kann vel að vera. Auðvitað eru
því ýmis vandamál samfara að
ala upp fólk, þ. e. a. s. gott
fólk sem er hæft til að taka við
því fyrirmyndar þjóðfélagi sem
við lifum í. Oftast heyrir mað-
ur talað um þetta mál á þann
hátt að unglingarnir séu vanda-
mál að því leyti að þeir séu
fyrirferðarmiklir og stundum
kannski til trafala þeim sem
eldri érU. Aftur á móti er
sjaldnast á það minnzt hver
eru vandamál unglinganna og
ættu þeir sem eldri eru þó að
kannast við slíkt þar sem þeir
hljóta að þekkja þau af eigin
raun.
Nú er oft talað um að ungl-
ingarnir séu útsláttarsamir og
drekki kannski brennivín og
allt það. Ekki voru það þó þeir
sem fundu upp brennivínið og
þeir hafa heldur ekki innleitt
þá áfengis- og skemmtimenn-
ingu sem hér er hjá okkur. í
fléstum tilfellum geri ég ráð
fyrir að þeir séu henni and-
stíeðir.
Ef ungt fólk á aldrinum 17—
19 ára (ég tek bara sem dæmi)
ætlar út að skemmta sér þá
kemst það að því að það er
síður en svo velkomið á
skemmtistaðina. Það má ekki
þangað koma fýrr en það er
orðið 21 árs. Meira að segja
gift fólk sem ekki hefur náð
þessum aldri getur lent í vand-
ræðum. Svo broslegar eru þess-
ar reglur. Og hvað á fólkið að
gera þegar það kemst hvergi
inn, er alls staðar úthýst? Það
er nú það. Það er ekki nema
eðlilegt að það taki upp á hinu
og þessu sér til afþreyingar.
Nú er það mál flestra sem
til þekkja í þessum efnum að
aldurstakmarkið að skemmti-
stöðum sé allt of hétt. Það
ætti að vera 18 ára í stað 21.
Og þá kom um við að því sama
aftur. Hvað eiga þeir að gera
sem ekki eru orðnir 18 ára?
Hvar eiga þeir að vera? Auð-
vitað er þetta allt saman vanda-
mál. Hvað er ekki vandamál
nú á dögum?
Og nú væri fróðlegt að
spyrja. Hvað hefur verið gert
fyrir ungt fólk til að skapa
því aðstöðu til að eyða þeim
frítíma sem það á? Hvað hefur
ungu fólki verið kennt til að
eyða frístundunum sínum?
Hversu mikil og almenn er
kennsla í tómstundaiðju?
Og að endingu þetta: Hvað
ætla þeir sem fara með þessi
mél lengi að sitja áii þess að
gera nokkuð í þessu efni? Það
væri fróðlegt að vita? Og hvert
stefnir?
Með beztu kveðjum
M M. og K. L.
Svar:
Þaö vœri fróölegt aö fá bréf-
korn frá ungxi fólki þar sem þaö
segir álit sitt á þessurn málum.
Svar til Pésa: *
Líklega finnst þér þetta svar
vera heldur seint á feröinni en
þvi miður var ekki liœgt aö koma
því fyrr. Þetta mál sem þú ert aö
skrifa út af er heldur leiöinlegt
og merkilegt hvernig þér liefur
tekizt aö þvœla þér svona rcekilega
í þetta allt saman. Og hvaö á nú
til bragös aö takaf HvaÖ sýnist
þér sjátfum? Likiega steppur pú
ekki viö nokkur fjárútlát og þá
er spurningin hvernig þú sleppur
viö þau sem minnst. ÁreiÖanlega
getur þú fundiö einhverja niöur-
stööu í því efni. En eitt er víst aö
út úr þessu mdli sleppur þú aldrei
án þess aö ienda í útistööum viö
ýmsa þér nákomna. Nema þú sért
á sama hátt siyngur aö koma þér
úr málum og í þau.
Svar til T.:
Þaö er greinilegt aö strákurinn
vill ekkert meö þig hafa. ÞaÖ er
kannski skiljanlegt úr þvi aö þú
þurftir endilega að vera aö vesen-
ast þetta meö hinum strákunum.
Þú átt ekki aö vera meö tveimur
í einu nema þú kunnir meö þaö
aö fara. Og nú ertu búin aö missa
þessa báöa og reynsiunni ríkari
gétur þú farið aö svipast um eftir
þeim þriöja og kannski þeim
fjóröa.
Svar til Ránar:
Þú veröur aö fyrirgefa þótt
svariö komi ekki fyrr en þetta
því viö gátum ekki birt þaö fyrr.
Mál eins og þaö sem þú ert aö
skrifa um eru alltaf heldur erfiö
úrlausnar og ekki gott aö gefa ráÖ
i þannig málum. Menn veröa aö
gera þaö sem þeim finnst réttast
og eölilegast aö gera. Þaö fyrsta
sem þú ættir aö gera er að rœöa
þetta viö hinn aöilann aö mdlinú
og vita livort hann vill ekki ein-
hverju fórna. Ef hann vill ekkert
gera til aö bæta þetta og þér
finnst þetta óviöunandi er ekki
nema eitt aö gera og þd er ekkí
eftir neinu aÖ bíöa í þeim efnurn.
Þaö er miklu betra heldur en