Fálkinn - 19.10.1964, Blaðsíða 38
■
• ■ :: ■ .
SSííííííSí:
'M ÉH
.. í«aÍ....*í’ iiPPm
•— Þakka þér fyrir.
— Illi andinn er farinn úr
henni, sagði Oasis við Nimrod
syngjandi röddu. Hann var
sterkur. Hann festi klærnar í
hjarta Likwezis.
Hvað hafði Rusty verið lengi
í burtu? Alice leit á úrið sitt.
Hún hafði sofið og klukkutími
var liðinn. Langt í fjarska
heyrðu þau dauft bílhljóð. Loks
kom bíllinn en þegar Alice leit
upp fannst henni hjartað stað-
næmast í brjósti sér.
Það var ekki Rusty sem sat
við stýrið.
Lítill, ógeðslegur apamaður
klöngraðist út úr bílnum.
— Hvar er Nkosi? spurði
hún.
Hann svaraði á máli sem hún
•kildi ekki.
— Nimrod, hrópaði hún. —
Nimrod. Þú verður — þú verð-
„r hvað sem það kostar að tala
við hann — og þú verður að
segja mér hvað hefur komið
íyrir Nkosi!
Alice virtist dagurinn óendan
legur. Og hún var heltekin
ósýnilegri hræðslu um hvað
hefði komið fyrir Rusty. Á
fingramáli hafði hún skilið að
Rusty var að elta fíl sem réðst
á fólk og drap.
Þegar þau stóðu uppi á hæð-
inni sá hún Nimrod hvað eftir
annað grípa um byssuna. Með
eyrum, augum og öllum
meðfæddum skilningarvitum
reyndi hann að átta sig á
hvaðan hljóðið kom.
— Dumela, hvíslaði hann.
Dumela.
Langt fyrir neðan greindi
hann húsbónda sinn, sem nálg-
aðist fílinn.
Fíllinn veifaði löngum eyr-
unum. Hann var á verði og
hann fann að menn voru í
nánd. Nimrod benti Alice og nú
sá hún Rusty sem lyfti byss-
unni.
Um líf og dauða var að tefla.
Fíllinn var hættulegur og það
gat maðurinn verið líka. Og
Rusty vissi að ekkert gat kom-
ið honum til hjálpar ef hann
miðaði ekld vandlega og/hitti
dýrið í fyrsta skoti. Hann varð
að hitta Dumela í heilann.
Hönd hans var styrk og hann
var fulkomlega rólegur. Núna,
núna skyldi Dumela verða að
deyja.
Framhald í næsta blaði.
KAFF
Katfisopmn indœll or,
eykur fjör og skapið kœtir.
Langbezt jafnan líkar mér
Ludvig David kaffibœtir.
0. J0HNS0N
R. KAARED II E
Kæri Astró!
Mig langar að vita eitthvað
um framtíðina. Ég hef nú skrif-
að áður en ekkirt svar fengið.
Ég er fædd klukkan 2 eftir há-
degi. Ég hef verið með strák,
sem fæddur er .. verður nokk-
Uð úr því? Hvenær giftist ég?
Eignast ég mörg börn? Á ég
eftir að fara til útlanda? Viltu
gjöra svo vel og sleppa fæðing-
ardögum og ártölum.
Með fyrirfram þakklæti fyrir
birtinguna.
M. J. V.
Svar til M. J. V.:
Það sem athyglisverðast er í
stjörnusjá þinni er að á hvirfil-
línu á fæðingarstundu þinni
eru Júpiter og Neptún í sam-
stöðu. Slík afstaða gefur hæfi-
leika á sviði íónlistar og þú
ættir ef þú hefur mögulega að-
stöðu til að læra á eitthvað
hljóðfæri, því slíkt yrði þér
mjög þroskavænlegt. Einnig
væri þér ráðlegt að ljá eyra
sem mest að góðri tónlist, því
þú býrð yfir hæfileikum til að
skynja innra gildi hennar.
Merki Sporðdrekans á geisla
fyrsta húss gerir þig nokkuð
hlédræga og í sumum tilfell-
um nokkuð leyndardómsfulla,
þrátt fyrir að þessi tilhneiging
trufli ekki daglegt samneyti
þitt við félaga þína. Það bendir
til þess að þú búir yfir tals-
verðum hæfileikum til að um-
gangast fólk og málefni þess
og gerir þér auðvelt að drífa
þig í gegnum erfiðleika.
Þú ert bardagafúsari og sýn-
ír meiri mótstöðu heldur en
Þá, sem umhverfis þig eru,
grunar og skyldi einhver not-
færa sér þig eða aðstöðu sína
gagnvart þér á ósanngjarnan
hátt þá verður hann eða þeir
mjög undrandi yfir þeirri at-
orku, sem þú býrð yfir til að
verja það, sem þú hefur áhuga
á. Þú býrð yfir hugrekki eigin
sannfæringar til að segja og
framkvæma hluti, sem að þínu
áliti eru réttir, og þú munt
ávallt reyna að framkvæma
hlutina eftir eigin leiðum og
þú munt ekki láta aðra segja
þér fyrir verkum gegn vilja
þínum. Þú hefur til að bera
þögla sómatilfinningu og ert
ákveðnust þegar þú hefur skap-
að þér ákveðið markmið eða
aðferð til að vinna að og eftir.
Þú ættir ekki að hika við að
kynna þér efni dulræns eðlis.
T. d. hjá Guðspekifélagi íslands
eða Sálarrannsóknarfélagi ís-
land.
Sporðdrekinn er flokkaður
undir „fast og vatns“ merki, en
það bendir til að þú auðsýnir
talsverða þrákelkni á stundum,
en samt er tiltölulega auðvelt
að hafa áhrif á þig ef talað er
til hins næma tilfinningalífs
þíns. Almennt sagt muntu vita
hvað þú vilt og ekki mun reyn-
ast auðvelt að telja þig af skoð-
unum þínum, þegar þú hefur
einu sinni mynduð þér þær.
Þú verður samt fyrir meiri
áhrifum frá þeim, sem þú berð
ástarhug til, heldur en þú gerir
þér grein fyrir, en í slíkum til-
fellum er þér nauðsynlegt að
beita nokkurri skynsemi.
Úranus í sjöunda húsi bendir
til þess að þér sé nauðsynlegt
að fara mjög varlega á sviði
ástamálanna því að þér hættir
/
til skyndihrifningar, sem oft
leiðir af sér jafn skjót vinaslit
og aðskilnað eins og til var
stofnað. Þeim sem eru með
Úranus hér er ráðlegt að vera
trúlofaðar lengi, því þeim mun
meiri von er til þess að hjóna-
bandið verði varanlegt. 22.
aldursár er mjög líklegt, sem
giftingarár.
Merki Neptúnusar á geisla
fimmta húss bendir til þess að
þú hafir mikið dálæti á börnum
og þau hafa mikið eftirlæti á
þér. Þau verða samt varla
fleiri en þrjú.
Afstöðurnar í níunda húsi,
sem stendur fyrir ferðalög tií
útlanda eru mjög hagstæðar og
því sterkari líkur fyrir því að
utanlandsferð eigi eftir að
liggja fyrir þér.
★
FALKINN