Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.03.1999, Blaðsíða 6

Stúdentablaðið - 01.03.1999, Blaðsíða 6
6 St,U[Ma[ilatM Korterí fyrír kosningar Þegar ég var litil átti ég frænda sem vann sem háseti i millilandasiglingum. Þegar hann var i landi hossaði hann mér á hné sér og lofaói mér leikföngum, sem i þá tið fengust aðeins i út- löndum. Ég var þvi að vonum yfir mig spennt þegar við mamma tókum á móti honum eftir túra. Stóru pakkarnir komu samt aldrei. Hann henti í mig tyggjópakka eða blöðru og spurði hvort ég þyrfti ekki að læra þvi fullorðna fólk- ið ætlaði að tala saman. Þegar mér varð Ijóst að loforðin yrðu ekki efnd trilluðu tár niður vangana og vonbrigðunum var illa leynt. Mamma brást illa við volinu, sagði mér að vera þakklát fyrir það sem ég fengi, frænda 'bæri svo sem engin skylda til að ofdekra mig enda væri það börnum óhollt. Stjórnmálamenn lofa nú hver ofan i annan upp i ermar sínar og til að standa fyrri loforða- listum skil eru einstaka kosningabærum hóp- um sendir pakkar rétt fyrir kosningar, sem þrátt fyrir fallega innpökkun eru mun rýrari en loforðin gáfu til kynna fyrir fjórum árum. Við stúdentar fengum eina slíka sendingu ekki alls fyrir löngu og hana getum við bljúg þakkað okkar ástkæra menntamálaráðherra. Orð móð- ur minnar um vanþakklæti koma upp i hugann og Björn Bjarnason er henni vafalaust sam- mála. En þeir meina þetta ekkert ilLa, stjórnmála- mennirnir. Og þeir vinna gifurlega vanþakklátt starf á lágum launum. Þeir hafa t.d. unnið að miklum framförum hvað varðar kjördæmaskip- an á liðnu kjörtimabili. Atkvæði okkar borgar- búa munu nú nánast jafngilda atkvæðum landsbyggðarinnar. Fyrir þessa leióréttingu skulum við borga, en getur það varla talist annaó en réttlátt. Tveir mitljarðar eru varla mikið gjald þegar réttLætið er annars vegar, enda verður það aldrei of háu verói goldið. Og ekki er það ónýtt ef landsbyggðarþingmenn- irnir fá eitthvað örlítið fyrir sinn snúð. Göng í hvert einasta krummaskuó eru sjálfsögð Lífs- nauósyn i góðærinu mikla og við í borginni getum vel verið án stórkostLegra vegafram- kvæmda enda fáum við annað og meira í okk- ar hlut. Verum því þakklát fyrir það sem við fá- um. Korteri fyrir kosningar fer loforðamylLan í gang. Yfirboðin eru endalaus og nú skal loks greiða götu öryrkja og bótaþega, þegar við- kvæðið aLlt kjörtímabilið hefur verið að þeir skuli þakka fýrir það sem þeir hafa og muna eftir svöngu börnunum í Afríku og öðrum sem utan garðs liggja. Sómi stjórnmálamanna er enginn og tiltrú almennings minnkar dag frá degi. Hvaó hefur orðið um atvöru stjórnmála- mennina sem höfðu prinsipp, hugsjónir og eitthvað fram að færa? Fólk sem stóð fýrir mál- efni hvað sem skoðanakönnunum um einstök dægurmál liður. Hafa skal það sem betur htjómar, er viðkvæði þeirra stjómmálamanna sem við fáum að kjósa á milli í vor. GLamur auglýsingastofanna bergmálar úr munnum þeirra. Fólk í fyrirrúmi, endalaus uppspretta starfa og engin man að fjórum árum Liðnum hverju var logió í kapphlaupinu um þingsætin. Ég afþakka tyggjópakka og btöðrur og er hætt að taka á móti frænda full af tiltrú og vænt- ingum. Erna Kaaber Björgvin gagnrýnir Björgvin -iingir og upprennandi á netinu Ungpólitíkusar nota ýmsar aðferðir til að koma sannleiksboð- skapnum á framfærí. Nú hafa með stuttu millibili veríð settar á laggirnar tvær gróskumiklar vefsíður með frelsisboðskapn- um. Annars vegar vef- síðan groska.is sem ungt jafnaðar-og fé- lagshyggjufólk heldur úti og hins vegar ____________ frelsi.is sem Heimdall- ur, félag ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, hefur umsjón með. Umsjónarmenn þessara vef- síðna eru tveir háskólastúdentar sem standa framarlega í sínum hreyfingum. Þeir eru Björgvin eftir Döllu Olafsdóttur G. Sigurðsson, heim- spekistúdent og Grósku- maður og Björgvin Guð- mundsson, hagfræðinemi og Heimdellingur. Piltarn- ir hafa báðir látið til sín taka í Háskólanum, Björg- vin G. Sigurðsson sem dugmikill rítstjórí Stúd- entablaðsins og Björgvin Guðmundsson sem farsæll oddviti Vöku. Þeir kump- ánar eru báðir þekktir fyrír að liggja ekki á skoðunum sínum og telj- ast ötulir talsmenn sinna hreyfinga. Hollt er þó hverjum manni að víkka sjóndeildarhrínginn. Því þótti tilvalið að fá þá nafna til að skoða vefsíð- ur hvors annars og gagnrýna með opnum huga. C-3 Björgvin Guðmundsson, ritstjóri frelsi.is, gagnrýnir groska.is: Björgvin G. Sigurðsson, ritstjóri groska.is, gagnrýnir frelsi.is: Eldheitum hugsjónamönnum hefur skotið upp kollinum á vefnum að undanförnu og er Björgvin G. Sigurðsson einn þeirra. A groska.is fær hann útrás l'yrir félagshyggjuhug- myndir sínar ásamt öðrum meðlimum í samtökunum. Það íyrsta, sem blasti við mér, var merki félagsins og þá vissi ég að ég var kominn á þennan stórhættulega stað félags- hyggjuhugmyndanna. Eg fylgdist mcð nokkrum svona síðum og leist vel á, að fá strax á upphafs- s í ð u n a texta til að lesa nýupp- f a: r ð a n . I'aö sparar tíma að þurfa ekki að Icita að því nýjasta og einfalt er að fylgjast mcð frá degi til dags.Á hcild- ina litið kemur síðan vel út. Ilún cr einföld, vinstri jöfnuð og svo skorðuð af með guluin borða hægra megin, þar sein birtar eru stuttar og oft skemmtilegar fréttir. Eirtnig eru engar myndir og auðveldar þaö fólki að sækja síðuna, hún hleðst fyrr inn og líklegra er að inaður nenni að taka frá nokkrar mínútur til að lesa bitrar frásagnir af stjórmnála- ástandinu. Efnið er reglulega uppfært, sem er grunnforsend- an fyrir því að fá fólk í heim- sókn aftur og aftur. Þó það sé skemmtilegt að fá litlar mynd- ir birtar í efsta borðann, þegar smellt cr á undirsíðurnar, eru þær þó ekki eins skemintilcg- ar. Þarna er annað hvort sama efni og birtist á forsíðu cða ít- arlcgri umfjölhin um böl hcimsins. Einnig eru þar nauð- synlegar upplýsingar um stjórn, miðstj órn og forvitni- legt er að lesa verk- efnaskrá ríkisstjórn- ar grósku- m a n n a fyrstu 100 dagana, en þar lýsa þeir hvcrnig aðgerðir þeirra muni í raun skerða lífskjör almennings. Síðan lítur vel út. Er stílhrein, reglulega uppfærð og alls ekki þung í hleðslu. Uppbyggingin er rökrétt og hægt er að flakka á milli undirsíða án þess að fara alltaf á foreíðu á milli. I fins vegar er gagnrýni á efnis- tök síðunnar efni í fjórar til fimm svona greinar. Eg vil byrja á því að taka það frain að ég er afskaplega ósammála flestu, þó ckki öllu, því sem stendur á vefnum frelsi.is og Heimdallur, fclag tingra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, lieldur úti. Enda sannfærður félagshyggjumað- ur. En ckki ætla ég að láta tak- markalausa andúð mína á pólitík þ e I lci rndel 1 - inga glepja mér sýn og dæma vef- inn óháð því. Vefir sem eru uppfærðir daglega eru kærkomin viðbót í flóruna en gróskan í stjórnmála- vefum er að v e r ð a nokkur á Islandi oe er frelsi.is góð viðbót við í flóruna. Hann er aðgcngi- legur og skýr, í miðjunni er það nýjasta sem inn á hann hefur verið sett sem oftar cn ekki er lengra mál uni hvaðeina sem þeim dettur í liug að fjalla um. Til hliðar eru slóðir sem þeir Heimdellingar mæla með að lýðurinn kíki á. Frelsi.is er í þyngri kantinum. Til að endast sem lesandi verðtir þú að vera afar sannfærður um útópíu þeirra um stjórnvaldslaust ríki. en sem skilaboðaskjóða fyrir öfgakemida frjálshyggju er vefurinn fínn og útlitið ágætt. Það er völlur á mönnum og a u g I j ó s metnaður hjá ritstjór- unum og óska ég nal'na mín- um og vini til ham- ingju með það. Gall- inn cr sá að sjónarhorn- ið er þröngt og efnistök þessa daga síðan vefur- inn hóf göngu sína n o k k u ð k e i m 1 í k . Það vantar frjálslega skrifað léttmeti í bland við þyngri pælingar sein eiga að sjálfsögðu áfram að vera uppistaðan, enda niark- miðið að cfla púlitíska umræðu og koma skoðiinum sínum á framfæri. "Það fyrsta, sem blasti við mér, var merki félags- ins og þá vissi ég að ég var kominn á þennan stór- hættulega stað félags- hyggjuhugmyndanna." „Til að endast sem les- i r r a andi verður þú að vera af- ar sannfærður um útópíu þeirra um stjórnvaldslaust ríki, en sem skilaboða- skjóða fyrir öfgakennda frjálshyggju er vefurinn fínn og útlitið ágætt."

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.