Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.03.1999, Blaðsíða 22

Stúdentablaðið - 01.03.1999, Blaðsíða 22
22 Stiidentiafilaifitf Eftir Helen Maríu Ólafsdóttur Ohælt er að segja um Islendinga að þeir séu sannir heimsborgarar. Mörlandinn flutti úr torfbæjunum og keypti sér farsíma. Island er af íslendingum álitið miðja al- heimsins en þrátt fyrir óbilandi trú á eigið ágæti leitar fjöldinn allur af ungu fólki út fyrir landsteinana á ári hverju í leit af ævin- týrum og nýjum tækifærum. Margir íslensk- ir námsmenn kjúsa að fara í nám erlendis og má kannski færa rök fyrir því að einmitt þar liggi útþenslustefna Islendinga. Upplýsingar og tungumálapróf Það getur tekið langan tíma að sækja um nám í erlendum skúhim og í flestum tilfell- urn þarf að taka tungumála- eða stöðupróf. Fullhrightstolnunin á íslandi heldur stöðluð próf með stuttu millihili og er hargt að skrá sig mcð stuttum fyrirvara. Það er þó ráðlegt að vera tímanlega því niðurstöður úr próf- unum berast oft ekki fyrr en mánuði eftir að próf vont tekin. Ef ekki fæst fullnægjandi níðurstaða úr prófunum getur sá sem prófið þreytir þurft að bíða í nokkra mánuði áður en hann fær tækifæri til þess að taka þau aftur. Oft fcr mikill tími í að alla sér upplýs- inga um álitlega skóla og námsgreinar í boði. I pplýsingar um erlenda skóla er auð- vt;lt að nálgast á internetinu í gegntun heimasíðu Háskólans og svo iná auðvitað leita aðstoðar hjá Alþjóðastofnun Háskól- ans. Best er að hafa samband strax við þá skóla sem kotrta lil greina og láta þá senda sér kennsluskrá enda bjóða flestir skólar upp á að senda kennsltiskrána endurgjalds- laust. Skólar fara fram á mismunandi inn- tökuskilyrði og umsóknarfrestur getur einnig verið mismunandi. I’ess vegna er ráð- legt að hefja leitina ári áður en fyrirhugað nám hefst. Hvað kostar námið? Áður en farið er af stað í leit af skóla eða nómi er gott að gera það upp við sig hvaða lönd korna til greina. Margir íslendingar stunda nám í Bretlandi, Bandaríkjunum og ó Norðurlöndunum. Áætlaður kostnaður ákvarð- ar gjarnan hvaða skólar og lönd koma til greina og kost- ar það yfirleitt minna fyrir íslendinga að stunda nám á Norðurlöndunum en t.d. á Bretlandseyjum og í Banda- ríkjunum. Margir nemendur fjármagna nám sitt með lán- um fró Lónasjóði íslenskra námsmanna og því er róð- legt að kanna hvort þaö nám sem sótt er um sé lónshæft því í umsóknum margra skóla er spurt hvemig nem- andi hyggst fjármagna náin sitt. Ilægt er að fó staðfest- ingu hjá LÍN um lánshæfni til að senda ineð umsókn. Nám í erlenduin skóla sem ekki veitir mastersgráðu eða harri gróöu er ekki lánshæft hjó LIN en í flestum tilfell- um veitir Lánastjóðurinn þó framfærslulán sem samsvar- ar allt að 75 þúsund krónum á mánuði (upphæð fer eftir svæðurn og borgum). Bétt eins og í Hóskóla íslands krefst Lánasjóðurinn full- nægjandi frammistöðu í námi og lánið er greitt eftir að einkunnir eða námsmat berst sjóðnum. Umsækjend- ur ættu að athugahvort þeir eigi rétt eða inöguleika á styrkjum. Upplýsingar um styrki er hægt að fá hjá Menntamólaróðuneytinu og erlendum sendiráðum. Brctland er spcnnandi námsland. Margir nómsmenn kjósa að l'ara til Bretlauds fyrst og freinst vegna tungumálsins en oft liggja þó aðrar og dýpri ástæður að baki. Fjöldan allann af háskólum er að finna í Bretlandi og áðnr en lengra er haldið er |iví gott að velja viðeigandi nám og skoða skól- ana út frá því. Á tneðan sumir kjósa að búa í iðandi stórborgum velja aðrir hæglátari staði. Nokkr- ar borgir s.s. Catnbridge, Ox- ford og Edinborg eru þekkt- ar háskólaborgir en flesta háskóla er þó að finna í Lundún- um. Það er ekki erfitt að finna nám við sitt hæfi í Bret- landi enda er fjöl- breytnin næstum því yfirþyrmandi. Með því að fara inn á upplýsingaveitur á heimsíðu Háskóla íslands er hægt að fó yfirlit yfir næst- um alla háskóla í Bretlandi í stafrófs- röð. Það getur tekið langari tíma að renna í gegnum allan listann en það er vel þess virði. Skólagjöld eru að irieð- altali 700-900 þúsund krón- ur ó ári og áætlaður fram- færslukostnaður er uin 600- 800 þúsund krónur ó ári. Læknisfræði, verkfræði og viðskiptanám getur þó kost- að allt frá 1.5 milljónum króna. Erlendir stúdentar geta oftast fengið herbergi á heimavist og í sumum tilfell- um aðstoðar skólinn nem- endur við að finna sér hent- ugt leiguhúsnæði. Að búa á heimavist er ódýrara en að leigja íbúð á almennuin leigumarkaði. I stórum borg- um getur verið dýrt að leigja íbúðir og dýrast er að leigja í Lundúnum.Þegar íslenskir nárnsmenn eru spurðir um kosti þess og galla við að læra í Bretlandi, utan náms- ins, telja flestir að fjölbreytt afþreying og menningarlíf sé helsti kosturinn. Auðvelt er að ferðast innanlands þó að lestargjöld séu í dýrari kantinum. Þá er matur ódýrari en á íslandi og stór bjór kostar einungis 220 krónur. Skólarnir eru misstórir en margir þeirra bjóða upp á frábæra aðstöðu og ríkt menningarlíf. Þeir sern leigja húsnæði benda á að dýrt er að kynda það, vatnið er dýrt og oftar en ekki tekur langan tíma að hita vatn til afnota. Til þess að hfa veturinn af er því ráðlegt að hafa með sér föðurlandið. Banka- stofnanir og aðrar þjónustustofnanir gcta verið svifaseinar og það tekur þrjá daga að leysa út eina ávísun. Bretar kunna reyndar að mynda einfalda röð sem vegur upp á móti seinagangi í ávísunamálum.Þegaröllu er á botninn er hvolft fær Bretland ágætis ein- kunn sem nómsland og má búast við að sí- fellt fleiri nemendur lari í náin til Bretlands í náinni framtíð. Því miður veitir aðild Is- lendinga að Evrópska efnahagssvæðinu ekki sömu réttindi og aðihl að Evrópusam- bandsins, svo sem lægri námsgjöld. Fyrir nóm í Bristol háskóla borga nemendur Iró ESB ríkjunum aö meðaltah 300 þúsund ís- lenskar krónur fyrir eins árs nám en nem- endur frá löndum utan ESB borga rúmar 800 þúsund krónur fyrir sama nám og lilýt- ur þessi inunur að skýra hvers vegna fleiri leita ekki eftir námi þar. Nokkrir skólar í Bretlandi sem vcrt er að skoða: Cambridge, Oxford. Balh. Bristol. Goldsmith, City, Westminister, London School of Ecnonomics, Manchester Metro, Kent, Edinborg og Belfast. Flafa skal í huga að margir hóskólar sérhæfa sig í ókveðnum greinum.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.