Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.03.1999, Blaðsíða 19

Stúdentablaðið - 01.03.1999, Blaðsíða 19
19 )iað halda utan um menninguna. I ivemig sem það væri gerl. Hugs- anlega nieð menningarmálanefnd. En svo er það vandamálið með húsnæði, livar gæti svona nefnd haft athvarf fyrir uppákomur? Eins og málin eru í dag koma ekki margir staðir til greina, nenta cf til vill Stúdentakjallarinn. l’á vaknar sú spurning af hverju er hann ekki notaður meira? Jón: Eg tel að Stúdentakjallarinn va'.ri einmitt góður vettvangur til að brjóta niður þessa ósýnilegu deildarmúra sem eru í Háskólan- um. Það er nauðsynlegt fyrir alla að kynnast fólki úr ólíkum grein- um. Silja: Svo er líka gaman að sjá og heyra livað aðrir eru að hugsa og gera. • Svanur: Auk þessara landamæra inilli deilda þá er líka liræðsla við hið ókunna. Það eru líka landa- mæri ó milli inulendra og erlendra stúdenta sem eru algjörlega út í hött. Jón: Hugsanleg menningamefnd gæti staðið l'yrir tónleikum, npp- lestmm, leiksýningum, gjörning- um og liverju sem er. Svanur: .lá, ég held að |>að getí vel farið saman við rekstur Stúdenta- kjallarans. Það þarf að minnsta kosli ekki að stangast: á við haitn.Við emm kannski að tala um tvö kvöld í mánuði, og það getur ekki vcrið svo rnikið mál að skipu- leggja tveggja til þriggja kliikku- stunda dagskrá tvisvar í rnánuði. Jón: Svo má athuga hvernig þetta þróast og fjölga þó kannski uppó- komum. Svanur: Það sem er mikilvægast er að þetta geti farið af stað strax og skóliun byrjar, þannig að inenn geti gengið að því sem vísu að ein- hverjir viðburðir séu á dagskrá. Það á ekki að skipta höfuðmáli hvað er um að vera í hvert skipti bara að allir viti að það er eitt- hvað. Það va'ri svo til dæmis ha:gt að auglýsa einn mámið í einu. Það þyrft.i bara að passa að þessi nefnd væri algjörlega sjállstæð. Að- gönguverði væri haldið í lágmarki en samt þannig að j>að myndi standa að mestu straum af kostn- aði. Stúdentakjallarinn myndi án efa lifna mikið við. Og |>að er kannski umhugsunarefni fyrir rekstraraðila lians að fara í bull- andi samkeppni við aðrar menn- ingaruppákomur í borginni. Það væri eflatíst liægt að fá tills konar fólk til að koma. Silja: Mér finnst líka ótvíræður kostur þessarar hugmýndar, að hafa faslít viðburði, að þeir séu eitthvað sem |>ú getur gengið að, |>ú veist að |>að er eitthvað unt að vera annan livern fimintudag og getur bara mætt. Mér finnst brenna svolítið við núna uð sé eitt- livað um að vera |>á sér maður ckki auglýsinguna fyrr en daginn eftir. Svanur: Eg er sannfærður um að |>etta er vel gerlcgt og |>að sé mik- ið af fólki sem væri (ilbúið að starfa í svona nefnd og skipuleggjá menningardagskrá. Og ég er sann- færður uin að jtetta va'.ri góð að- ferð til að brjóta niður múra á milli íslenskra og erlendra stiíd- enta sem og múrana inilli deilda. Þclta myndi koma uf sttið jókvæðn siniti milli fólks. Það inyndi líka læknast af menningarlegri nær- sýni.Ég hef olt sett mig í spor er- lendra stúdenta og það sem ég hef heyrt frá þeim er að þeint finnast Islendingamir ákal’Iega fáskiptir. Silja: Kannski er |>etta einhvers- konar hræðsla við jtað sem er framandi. Jón: En maður getur lairt af fólki sem er úr ólíkum meriningarheimi og hefur aðra reynslu en maður sjálfur. Silja: Það mætti hugsa sér að ef yrði komið á reglulegum meniiing- arkvölduin að þar inní yrðu landa- kynningar erlendu stúdentanna. Svanur: lig lield að |>að sé liægt að læra meira ttf |>ví að eyða einni kvöldstund með manni frá fram- andi landi en að fara í nokkrar sól- arlandaferðir. Lœkningamáltur listarinnar Haldið þió að />að vœri hœgt að halda svona dagskrá eingöngu með kröftum stúdenta? Jón: Eg held aö það sé nú ekki það sem mestu máli skiptir. Það væri æskilegt að þama væri góð blanda stúdenta og fólks úr þjóðfélaginu. Ég man eftir vel heppnuðum upp- lestri sem bókmenntafræðiskorin stóð fyrir um þar síðustu jól. Þar voru fengnir rithöfundar til að lesa úr verkuni sínum. Það gekk mjög vel að fá j>á til uð koma þannig að ég lield að jtað verði ekki vanda- mál að fá fólk úr þjóðlífinu sem er í þessum geira til að kynna sína starfsemi. Svanur: Já, ég held að j>að væri rangt að gera j>að að skilyrði að kraftarnir kæmu eiiiungis úr l lá- skólanum. En ég licld að þegar |>etta væri komið í gang |>á kæmi fólk úr felum. Silja: Um leið og það er kominn vettvangur fyrir þetta fólk j>á verður miklu auðveldara að koma fram. Svanur: Ég er viss um að það liafa allflestir áliuga á menningarstarfi en setja það kannski fyrir sig ef |>að kostar inikið og |>að væri frá- ba'rt ef liægt væri að koma ó lagg- irnar sjóði sem væri riokkurs kon- ar öryggisnet fyrir |>essa starfsemi. Hugsanlega eru einhver fyrirtæki sem vilja frekar styrkja stúdenta með því að borga í menningarsjóð í staðinn fvrir að bjóða þeim í vís- indaferðir. Svo er líka alltaf verið að tala inn að tengja Háskólann meira við atvinnulífið og J>að er mjög gott en við ættum líka að einbeita okkur að innbyrðis tengslum og j>að væri stórkostlegt ef liægt væri að gera það með að- stoð frá atvinnulífinu. Þetta yrði J>á einhverskonar Háskóladeild í menningu. Nú er Háskólinn sagður vera leið- andi afl í tœkni og vísindum. Ihið skýtur svolítið skökku við að hann skuli ekki lika vera leiðandi í hug- lœgurn efnum. Jón: Já, nú er heimspekideild fjöl- mennasta deild skólans og það sætir undrun hversu lítil óhersla er liigð á jtessi mál. En við verðum auðvitað sjálf að hafa trú á ]>essu framtaki okkar og J>á koma von- andi aðrir sem liafa trú á j>ví líka. Silja: Það verður að sýna fram ó að þetta sé framkvæmanlegt áður en fjöldinn keiiiur inn í |>ct(a allt sainan. Svanur: Eg ákvað að láta síðasta árið initt í Háskólanum ekki fara eingöngu í |>að að pirra mig á að- gerðarleysi annarra og efna því til menningarkvölds ásamt nokkrum kunningjum einhverntíma í byrjun aprfl. Við ætlum að lialda þetta í Stúdentakjalláranum og j>ó sýnum við fram á að |>að er liægt að gera þetta og |>að er ekki svo mikið mál. En hafa stúdentar kannski engan áhuga á menningu og hstum? Silja: Ég lield að allir geti notið góðrar listar. Svanur: Eg trúi á lækningarmátt listarinnar. Jón: Þegar öllu er á botninn livollt j>á snýst listín um mannlegt eðli og j>að er enginii midanskilinn því. Svanur: Sumir eru búnir að ótta sig á mikilvægi listarinnar en svo eru aðrir sein hreinlega eiga eftir að uppgötva það og ég held að við eigum að reyna að skapa j>að um- liverfi sein ]>arf til. Silja: Við getuni staðið fyrir menn- ingarlegu uppcldi, uiidirbúið fólk fyrir framtíðina. Jón: 1 Jér veröum við að ótta okkur á að við erum að tala unt menn- ingu í víðasta skilningi |>ess orðs, við erum ekki bara að tala um hó- menningu. Menningaruiiifjönun Sfúdentablaðsins / Ijósi ástœðu j>ess að þetta spjall átti sér stað þá vœri ekki úr vegi að fá skoðanir ykkar á menning- arumfjöllun Stúdentablaðsins í vetur. Svanur: Ástæða jtess að við erum hér er sú að fólki þóttí ónóg uni- ræða um menningarlíf í Stúdenfó- blaðinu. En í ljós kemur svo að menningarlíf innan Hóskólans er af mjög skornum skammti. Silja: En nú man ég ekki eftír að liafa séð umfjöllun um Háskóla- kórinn á síðum blaðsins, né lieldur lcikdóm um Drauin á Jónsmessu- nótt í uppfærslu enskunema. Leik- listargagnrýnin virðist bara ná til atvinnuleikhúsanna úti í bæ. Jón: Það eru nú einstaka sinnuni bókadómar í blaðinu. Svanur: Það er augljóslega eitt- livað í gangi sem liægt væri að tala um. En j>að þarf ekki bara að fjalla um nýjar bókmenntír. Það væri hugsanlega liægt að skrifa iim eldri bókmenntir. Jón: Hugsanlega væri |>á hægt'að laka fyrir einn höfund og hala smá þema um hann í einu blaði. Silja: Þetta er líka hugmynd sem hægt væri að nota á menningar- kvöldmmm. Bókinenntafræði- nemar gætu kynnt eitthvert bók- menntaverk og liöfund |>ess, heim- spekinemar ga'tu kynnt einhverja stefnu og svo li amvegis. Svanur: Þetta er líka lia'.gt að gera með tónlist. Það mætti kynna tón- skáld áður en spiluð er tónlist eftir ]>au. Það |>arf fjölbreyttari dagskrá og umfjöllun tnu viðburði þarf að vera nteiri. Vekjum hjuría Háskólans til Iífsins Svanur: Ég er sannfærður um j>að að ef nefndarhugmyndin kemst í framkvæmd |>á er vilji til að bæta aðstöðu fyrir liana seimia meir. Það mætti líta jiannig á að hjarta Háskólans, sem liefur verið tölu- vert í umræðtinni, lifni við ó jiví að liefja menningarkvöld eins og við erum búin að vera að tala um, og seinna meir væri svo kannski liægt að byggja ulan um |>að framtíðar- húsnæði. Fyrst þurfum við aö fá hjartað til að byrja að slá. Við þurfum að vekja það til lífsins.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.