Fréttablaðið - 08.10.2009, Blaðsíða 2
2 8. október 2009 FIMMTUDAGUR
SPARAÐU!
SÖLU LEIKHÚSKORTA LÝKUR 9. OKTÓBER
Hringdu í síma 551 1200 eða smelltu þér á leikhusid.is
Fjögurra sýninga kort fyrir 25 ára og yngri
kostar aðeins 5.900 kr.
Þriggja forsýninga Forskotskort í Kassann
kostar aðeins 3.000 kr.
Fjögurra sýninga leikhúskort
kostar aðeins kr.9.900
ALÞINGI Samningurinn um Evr-
ópska efnahagssvæðið er ekki í
hættu þótt ekki takist samningar
um Icesave, að mati Össurar
Skarphéðinssonar utanríkis-
ráðherra.
„Ég tel fráleitt að EES-samn-
ingurinn sé í uppnámi ef við
göngum ekki frá þeim skuld-
bindingum sem við höfum axlað
gagnvart Hollendingum og Bret-
landi,“ sagði Össur á Alþingi í
gær. Þar svaraði hann spurn-
ingu Vigdísar Hauksdóttur, þing-
manns Framsóknarflokks.
Í Fréttablaðinu í gær var haft
eftir Eiríki Bergmann, for-
stöðumanni Evrópufræðaseturs
Háskólans á Bifröst, og Kristj-
áni Vigfússyni, forstöðumanni
Evrópufræða við Háskólann
í Reykjavík, að hætta sé á að
EES-samningnum verði sagt upp
náist ekki samkomulag í Icesave-
deilunni.
Össur segist ósammála þess-
ari niðurstöðu fræðimannanna. Í
grunninn snúist áhyggjur þeirra
um að gjaldeyrishöftin sem sett
voru í kjölfar hrunsins hamli
þátttöku Íslands á innri markaði
EES. Það eigi þó engu að breyta,
enda höftin hluti af samningi
sem Ísland hafi gert við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn, sem þjóðir
Evrópusambandsins eigi meira
og minna allar aðild að. Engar
athugasemdir hafi verið gerðar
við höftin.
Samkvæmt upplýsingum frá
Eftirlitsstofnun EFTA er engin
athugun í gangi á skorti á frjálsu
flæði fjármagns frá Íslandi, þrátt
fyrir að það gangi gegn ákvæð-
um EES, né hefur borist formleg
kæra vegna þess. - bj
Enginn mótmælt því að Ísland taki upp gjaldeyrishöft tímabundið segir ráðherra:
Fráleitt að EES sé í uppnámi
HÖFT Evrópuþjóðir hafa engar athuga-
semdir gert við tímabundin gjaldeyris-
höft hér á landi sagði Össur Skarphéð-
insson á Alþingi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Karlmaður og kona
voru flutt á gjörgæsludeild Land-
spítalans eftir líkamsárás í Hörða-
landi í Fossvogi snemma í gærmorg-
un. Karlmaðurinn lést síðdegis í
gær og konan var enn í öndunarvél
þegar blaðið fór í prentun. Hún var
þó ekki talin í lífshættu.
Konan hlaut þung höfuðhögg og
skurði á höfði. Maðurinn er talinn
hafa drukkið stíflueyði, eða annan
álíka ætandi lög, eftir að hann hafði
veitt konunni áverkana.
Eftir því sem Fréttablaðið kemst
næst höfðu maðurinn og konan verið
gift, en voru nýskilin. Hann hafði
nýverið misst atvinnuna. Þau eiga
saman tvö ung börn.
Maðurinn var fluttur að heiman
en hafði komið heim til konunnar
um morguninn til þess að sækja
börnin og fara með þau á leikskóla.
Eftir að því var lokið sneri hann
aftur í Hörðaland, þar sem harm-
leikurinn átti sér síðan stað. Það
var svo rétt fyrir klukkan hálfníu í
gærmorgun sem maðurinn hringdi í
lögregluna. Hann kvaðst hafa valdið
konunni miklum skaða, jafnvel svo
miklum að hún væri látin. Að því
búnu sleit hann símtalinu.
Lögreglumenn úr umferðardeild,
sem voru á bifhjólum í nágrenni við
Hörðaland, fóru þegar á staðinn,
svo og þrír lögreglubílar og fjórir
sjúkrabílar. Fleiri bílar frá lögreglu
og sjúkraliði bættust svo við þegar
ljóst varð að harmleikur hefði átt
sér stað í íbúðinni sem hefði leitt
til þess að fólkið inni væri talið í
lífshættu. Að auki komu lögreglu-
menn úr tækni- og rannsóknardeild
fljótlega á staðinn.
Maðurinn og konan voru flutt á
Landspítalann í Fossvogi þar sem
þeim var haldið sofandi í öndun-
arvélum í gær. Innanmein manns-
ins drógu hann til dauða nokkrum
klukkustundum síðar. Konan gekkst
undir aðgerð á höfði og jafnframt
þurfti að sauma skurði sem hún
hafði hlotið.
Auk þess sem lögregla rannsak-
aði vettvang í gær var rætt við vitni,
sem kynnu að geta gefið einhverjar
upplýsingar.
Maðurinn, sem var fæddur árið
1971, hafði verið búsettur hér um
árabil og var íslenskur ríkis borgari.
Konan er fædd 1966. jss@frettabladid.is
Drakk stíflueyði og
lést eftir líkamsárás
Karlmaður og kona voru flutt á gjörgæsludeild í gærmorgun eftir líkamsárás í
Hörðalandi. Konan hlaut mikla áverka á höfði og gekkst undir aðgerð í gærdag.
Maðurinn er talinn hafa drukkið stíflueyði. Hann lést á sjúkrahúsi síðdegis.
LÖGREGLA OG SJÚKRALIÐ Fjöldi lögreglu- og sjúkrabíla fór í Hörðaland þegar ljóst varð að þar hefðu átt sér stað alvarlegir
atburðir sem jafnvel gætu leitt til dauða. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR
DÓMSMÁL Ákæra hefur verið gefin
út á hendur Guðmundi Jónssyni
í Byrginu fyrir skattsvik og að
draga sér tíu
milljónir af fé
Byrgisins þegar
hann var for-
stöðumaður
þess. Þetta kom
fram í fréttum
Stöðvar 2 í gær.
Efnahags-
brotadeild Ríkis-
lögreglu stjóra
hefur rannsak-
að fjármálaóreiðuna í Byrginu í
ríflega tvö ár, en Byrgið var að
mestu rekið fyrir opinbert fé.
Guðmundur Jónsson var í
Hæstarétti í desember í fyrra
dæmdur í tveggja og hálfs árs
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
skjólstæðingum sínum, sem
komið var upp um í fréttaskýring-
arþættinum Kompási. - sh
Guðmundur í Byrginu:
Ákærður fyrir
milljónasvik
GUÐMUNDUR
JÓNSSON
FÓLK Harpa Jónsdóttir sigraði
í keppninni Þúsund frábærar
húfur, eða „1000 Fabulous Knit
Hats“ sem útgáfufélagið Rock-
port Publishers hélt nýlega.
Húfa Hörpu, sem er úr þæfðri
ull með útsaumuðum blómum,
mun birtast í bók sem ber sama
heiti og keppnin en í henni verða
húfur úr keppninni og uppskrift-
ir að þeim. Bókin kemur út næsta
haust og verður dreift víða um
heim.
Harpa hlaut 500 dali í verð-
launafé. „En það sem er verð-
mætast er auðvitað kynningin,“
segir hún. - sg / sjá Allt
Alþjóðleg keppni um húfur:
Íslensk húfa í
fyrsta sæti
Anna Lilja, byrjaði þetta allt
með því að einhver fékk flugu
í höfuðið?
„Já, það byrjaði einmitt þannig.“
Félagar í Badmintonfélagi Hafnarfjarðar
héldu upp á það í gær að hafa slegið
flugur með spöðum yfir net í hálfa öld.
Anna Lilja Sigurðardóttir er ritari félags-
ins.
SVÍÞJÓÐ, AP Nóbelsverðlaunin í
efnafræði renna til tveggja banda-
rískra vísindamanna, þeirra Venkt-
ramans Ramakhrisnan og Thomas
Steitz, og ísraelsku vísindakonunn-
ar Ada Yonath. Þau fá verðlaunin
fyrir að hafa kortlagt ríbósóm, lítil
korn í kjarna frumu sem hafa það
hlutverk að framleiða prótín.
Sænska vísindaakademían segir
verk þeirra hafa skipt miklu máli
fyrir skilning manna á lífinu. Upp-
götvunin hafi einnig auðveldað vís-
indamönnum að þróa mótefni gegn
ýmsum sjúkdómum.
Á miðvikudag var skýrt frá því
að þrír Bandaríkjamenn fái Nóbels-
verðlaunin í eðlisfræði fyrir að
hafa fyrir fjórum áratugum lagt
grunn að ljósleiðaratækni nútím-
ans og stafrænni ljósmyndun.
Einn þeirra, Charles K. Kao,
gerði árið 1966 mikilvæga upp-
götvun þegar hann áttaði sig á
því hvernig hægt er að senda ljós-
merki langar vegalengdir gegnum
örmjóa glerþræði.
Hinir tveir, þeir Willard S. Boyle
og George E. Smith, fá hins vegar
Nóbelsverðlaunin fyrir að búa til
ljósnæma plötu sem er kjarninn
í stafrænum myndavélum. Þetta
tókst þeim árið 1969, fáum miss-
erum eftir að Kao var að prófa sig
áfram með ljósþræðina.
Nóbelsverðlaunin í efnafræði og
eðlisfræði verða afhent í Stokk-
hólmi 10. desember.
- gb
Nóbelsverðlaunin í efnafræði og eðlisfræði:
Frumkvöðlar nýrrar tækni
WILLARD S. BOYLE OG GEORGE E.
SMITH Þem tókst að búa til stafræna
ljósmyndavél fyrir nærri hálfri öld.
NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNMÁL Miðstjórn ASÍ lýsir
miklum áhyggjum af fjárlaga-
frumvarpi ríkisstjórnarinnar.
Segir í ályktun sambandsins að
ljóst megi vera að verði það að
lögum muni það hafa áhrif á alla
með samdrætti í þjónustu hins
opinbera. ASÍ hafi því lagt áherslu
á að byrðum hrunsins verði dreift
með sanngjörnum hætti.
Í ályktuninni er þess krafist að
frumvarpinu verði breytt, skatt-
byrði þeirra tekjulægstu verði
létt og barna- og vaxtabætur
hækkaðar. Enn fremur þurfi
strax að ráðast í framkvæmdir í
samstarfi við lífeyrissjóðina til
að efla atvinnu og hagvöxt. - sh
ASÍ um fjárlagafrumvarpið:
Vill breytingar
á frumvarpinu
EFNAHAGSMÁL „Allt er tilbúið
fyrir endurskoðun áætlunarinn-
ar,“ segir Franek Roswadowski,
fastafulltrúi
Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins á
Íslandi, spurð-
ur um ástæður
þess að endur-
skoðun áætlun-
ar sjóðsins hafi
dregist á lang-
inn.
Roswadow-
ski bendir á að margt hafi orðið
til þess að tefja fyrir endurskoð-
uninni, sem upphaflega átti að
fara fram í febrúar. Stjórnar-
kreppa hér hafi tafið málið um
nokkra mánuði.
Þá segist hann ekki vera í
aðstöðu til að tjá sig um milli-
ríkjamál. Stjórnvöld verði að
ljúka ákveðnum samningum til
að tryggja lánsfjármögnun svo
málið geti haldið áfram, líkt og
hann orðar það.
- jab
Nauðsynlegt að enda deilur:
AGS bíður eftir
málalokum
FRANEK
ROSWADOWSKI
SPURNING DAGSINS
SVEITARSTJÓRNIR „Skerðingin á þjón-
ustu Baldurs er aðför að byggðum
á Vestfjörðum sem mun hafa
afdrifarík áhrif á samkeppnis-
stöðu fyrirtækja og almenn
búsetuskilyrði á sunnan verðum
Vestfjörðum,“ segir í ályktun
bæjar ráðs Ísafjarðar vegna fyrir-
hugaðrar fækkunar vetrarferða
Breiðafjarðarferjunnar milli
Stykkishólms og Brjánslækjar.
Bæjarráð segist taka heils hugar
undir með bæjaryfirvöldum í
Vestur byggð sem lýst hafa þung-
um áhyggjum af yfirvofandi þjón-
ustuskerðingu. „Bæjarráð skorar
á samgönguráðherra að tryggja
daglegar ferðir skipsins þar til
viðunandi vegtenging kemst á við
sunnanverða Vestfirði.“ - gar
Bæjarráð Ísafjarðar:
Segir fækkun
ferjuferða aðför