Fréttablaðið - 08.10.2009, Blaðsíða 60
44 8. október 2009 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Yoko Ono er enn í dag sennilega þekktust fyrir að vera ekkja Johns
Lennon. Og það er misjafnt hversu mikla virðingu menn bera fyrir
tónlistarferli hennar. Staðreyndin er hins vegar sú að Yoko hefur gert
fullt af flottum hlutum á tónlistarsviðinu. Hún hóf tónlistarferilinn
í tilraunakenndri nútímatónlist áður en hún kynntist Lennon og
vann meðal annars eitthvað lítillega bæði með John Cage og Ornette
Coleman. Eftir að hún kynntist Lennon vann hún sína tónlist að mestu
leyti í samvinnu við hann, en eftir að hann féll frá hefur hún smám
saman verið að sækja í sig veðrið á tónlistarsviðinu aftur. Fyrir tveim-
ur árum komu út tvær mjög áhugaverðar plötur þar sem ungir tónlist-
armenn endurgerðu lögin hennar (Yes, I’m a Witch og Open Your Box)
og nú í haust kom svo út platan Between My Head & The Sky sem inni-
heldur fimmtán ný lög eftir Yoko.
Nýju plötuna vann Yoko náið með syni sínum, Sean Lennon,
og tónlistarmönnum bæði úr rafpoppgeiranum og af
spunadjasssenu New York-borgar. Til fyrri hópsins
teljast m.a. meðlimir úr hljómsveitinni Cibo Matto
og hinn japanski Cornelius ásamt hljómsveit en
til þess seinni Erik Friedlander, Shahzad Isma-
ily, Michael Leonhart, Daniel Carter o.fl. Það er
skemmst frá því að segja að Between My Head &
The Sky kemur virkilega á óvart. Þetta er hreint
frábær plata. Tónlistin rambar einhvers staðar
á mörkum rokks, danstónlistar og spunadjass,
hljóðfæraleikurinn er oft tilþrifamikill og það
er mikil innlifun og tjáning í söng Yoko. Yoko,
sem er orðin 76 ára, slær þar með mörgum
samferðamönnum sínum við hvað ferskleika
og framsækni varðar.
Framsækin Yoko
76 ÁRA TILRAUNATÓNLISTARMAÐUR
Yoko Ono er í toppformi á nýju
plötunni.
Það er kominn október og
tónlistarspekúlantar eru
farnir að velta því fyrir sér
hvaða plötur verða á listan-
um yfir plötur ársins. Þar
á meðal verður væntanlega
fyrsta plata The XX frá
London.
Hljómsveitin The XX hefur verið
að vekja mikla athygli síðustu
vikurnar fyrir fyrstu plötuna
sína sem heitir einfaldlega XX.
Tónlistarlega sækir bandið stíft
í fortíðina, greina má áhrif frá
nýbylgjuböndum eins og Young
Marble Giants, The Slits og The
Cure á fyrstu árum sínum, það er
síað í gegnum Bristol-bylgjuna frá
sirka 1995 og ofur nútímalegt R&B
í anda Timbaland. Þótt áhrifin séu
forn er niðurstaðan fersk og platan
hefur fengið skínandi góða dóma.
XX verður eflaust ofarlega víða
þegar spekingar gera upp árið.
The XX er skipað fjórum Lund-
únakrökkum um tvítugt, tveim-
ur stelpum og tveimur strákum.
Romy Madley Croft spilar á gítar
og syngur og Oliver Sims spilar á
bassa og syngur. Að hafa söngvara
af báðum kynjum skapar skemmti-
lega breidd og þau syngja oft á móti
hvort öðru í Gainsbourg/Birkin eða
Sinatra/Hazlewood-fílingi. Þau eru
þó ekki kærustupar. Baria Qureshi
spilar á gítar og Jamie Smith
spilar á trommuheila með mikilli
fimi eins og sjá má á netinu í tón-
leikaupptökum. Platan var tvö ár í
vinnslu og á tímabili voru upptöku-
mennirnir Diplo og Kwes með putt-
ana í henni. Að lokum tók bandið
sjálft við hljóðvinnslunni.
Bandið varð til þegar meðlim-
irnir kynntust í Elliott listaskól-
anum, en þaðan eru líka bönd eins
og Hot chip, Burial og Four Tet.
The XX er hluti af nýrri óform-
legri bylgju Lundúnasveita, sem
telur bönd eins og Florence and
the Machine og Micachu and the
Shapes (sem væntanleg er á Air-
waves).
Í heimi troðfullum af nýrri tón-
list sem hægt er að nálgast jafn
auðveldlega og að smella á mús,
er nauðsynlegt að vita hvað er
gott. Og The XX er gott band. Tón-
listin er mjög þurr á manninn og
alvarleg, þó gríðarlega svöl og allt
annað en leiðinleg. Þau fara spar-
lega með, það er mikið rými í lög-
unum og þau anda vel. Stundum er
ekkert í gangi nema bassi og söng-
ur eða trommuheili og söngur.
The XX er eiginlega tímalaust
band því platan þeirra hefði nán-
ast getað komið út hvenær sem
er á síðustu þremur áratugum. Ef
þú fílar Roxy Music, New Order,
Portis head og Interpol ætti gæða-
platan XX nú þegar að vera komin
undir geislann. drgunni@frettabladid.is
Fersk XX byggir á fortíðinni
GRÍÐARLEGA SVÖL The XX frá vinstri: Jamie, Baria, Romy og Oliver.
> Plata vikunnar
Skelkur í bringu - Húðlitað klám
★★★★
„Hressandi og skemmtilegt hrárokk,
sem minnir um margt á íslensk eðal-
bönd fortíðar, eins og Risaeðluna og
PPPönk.“ - drg
> Í SPILARANUM
Mumford & Sons - Sigh no More
The Clientele - Bonfires on the Heath
The Mountain Goats - The Life of the World to Come
Ego - 6. október
Built to Spill - There Is No Enemy
MUMFORD & SONS BUILT TO SPILL
Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir,
Lay Low, skellti sér síðsumars út
í Flatey í Breiðafirði. Með í för
voru leikstjórinn Denni Karls-
son, myndatökumaðurinn Víðir
Sigurðsson, hljóðupptökumaður-
inn Viðar Hákon Gíslason og Kári
Sturluson, umboðsmaður Lovísu.
Hópurinn dvaldi í Flatey yfir helgi
og rölti á milli staða í eynni með
mynd- og hljóðupptökubúnað í hjól-
börum og tók Lovísu upp spila og
syngja órafmagnaðar útgáfur sjö
laga sinna á sjö mismunandi stöð-
um. Veðrið, eyjan og eyjarskeggj-
ar tóku Lovísu fagnandi og lista-
konan fann sig í blíðunni.
Árangur helgarinnar má finna
á Lay Low - Flatey, 28 mínútna
mynddisk og 7 laga hljóðdisk, sem
kemur út á morgun, 12. október.
Á plötunni eru sjö lög; fimm af
plötum Lay Low, eitt nýtt frum-
samið á ensku og lag Lovísu við
ljóðið „Sorgin“ eftir skáldið Und-
ínu (Helga Steinvör Baldvins-
dóttir), sem hún samdi árið 1884.
Þessa dagana er Lay Low að hita
upp fyrir Emilíönu Torrini í Evr-
ópu. Þær verða í Köln í kvöld. - drg
Flateyjarævintýri
Lay Low koma út
Leikin kvikmynd um rokkbandið
The Ramones er í burðarliðnum.
Myndin verður byggð á bókinni I
Slept With Joey Ramone, sem er
skrifuð af bróður Joey Ramone,
Mickey Leigh, og tónlistarblaða-
manninum Legs McNeil. Allir
hinir upprunalegu meðlimir The
Ramones eru nú látnir, nema
trommarinn, og ræður móðir
Joeys söngvara yfir réttinum á
tónlist sveitarinnar. Hún hefur
þegar gefið leyfi fyrir því að tón-
list Ramones verði notuð í mynd-
inni.
Ramones á
hvíta tjaldið
ROKK! Strákarnir í Ramones.
Tom Smith, forsprakki bresku hljómsveitar-
innar Editors, segist ekki vera í herferð
gegn snillingunum í Radiohead, þrátt fyrir
að hafa sagt meðlimi hljómsveitarinnar
vera sjálfselska í viðtali á dögunum.
Þegar Radiohead gaf út plötuna
In Rainbows árið 2007 gaf hljóm-
sveitin aðdáendum sínum kost á að
borga hvað sem er fyrir plötuna –
eða borga ekki neitt. Smith sagði í
viðtali við breska NME-útvarpið að
útspilið hefði unnið gegn baráttunni
gegn ólöglegu niðurhali. „Ég er
ekki að ráðast á Radiohead,“
sagði Smith. „Mér finnst að
hljómsveitin eigi að hjálpa
til í baráttunni gegn niður-
hali, en hún gaf plötuna
sína og gjaldfelldi þannig
tónlistina.“ - afb
Ekki í herferð gegn Radiohead
EDITORS Vill stöðva ólöglegt niðurhal.
THOM YORKE Söngvari Radiohead
og félagar gáfu síðustu plötu sína á
netinu.
Í FLATEY Hænurnar voru hrifnar af Lay
Low.
g