Fréttablaðið - 08.10.2009, Side 41

Fréttablaðið - 08.10.2009, Side 41
FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2009 1. Fantasy, st. 36–41. Fást í svörtu. Verð 34.995,- 2. Gladiator, st. 36–41. Fást í appelsínugulu, svörtu og snake. Verð 17.995,- 3. Studio London, st. 36–41. Fást í svörtu. Verð 10.995,- 4. Vagabond, st. 36–41. Fást í Camel. Verð 24.995,- 1. 2. 3. 4. Elísabet Heiðdal Vilhjálmsdótt- ur, verslunarstjóri Kaupfélags- ins í Kringlunni, spáir grófri og rokkaðri kvenskótísku í vetur. „Í vetur verður það gróft, svart, kamelbrúnt og látlaust.“ Þannig lýsir Elísabet Heiðdal Vilhjálms- dóttir hjá Kaupfélaginu skótísku kvenna í vetur og bætir við að jafnframt verði platform-skór og „wedge“ áberandi eftir því sem Vetur konungur breiðir úr sér. „Eiginlega má segja að tísk- an verði svolítið rokkuð á næst- unni. Við eigum eftir að sjá eitt- hvað af konum í fremur grófum og uppreimuðum leðurstígvélum með rúnnaðri tá eða í svokölluðum mótorhjólaskóm, sem eru svona tveir þriðju ökklaskór,“ útskýrir Elísabet og segir að sést hafi til þekktra kvenna eins og fyrirsæt- unnar Kate Moss í þannig skóm að undanförnu. Elísabet segir slíkan skófatnað henta við alls kyns fatnað. „Skórnir eru til dæmis flottir við niðurþröngar og götóttar galla- buxur. Einnig grófar sokkabuxur og prjónapeysur, en það getur komið vel út og sérstaklega á eldri konum, sem eiga að vera ófeimnar við að vera rokkaðar. Þær eru það nú oft enda stunda konur á öllum aldri viðskipti við okkur.“ Elísabet segir að þótt grófir skór verði áberandi, til dæmis í merkj- um eins og Bullboxer, verði ýmis- legt fleira á boðstólum hjá Kaup- félaginu. „Til dæmis dömulegir skór frá Fantasy, sem eru notaðir við fínni tækifæri. Eða falleg stíg- vél frá hinu sænska Vagabond, en frá því fyrirtæki fáum við einnig gott úrval af grófum skóm.“ Hún bætir við að eins fáist ódýrir og vandaðir skór frá Studio London, Studio 56 og fleirum. En hvers konar skór hitta alltaf í mark? „Alltaf er gott að eiga par af flugfreyjuskóm, þessa lát- lausu með lokuðu tánni. Hjá okkur fást slíkir skór í Logo 69-línunni úr smiðju íslenska hönnuðarins Mörtu Johnson. Þeir eru með sex og tíu sentimetra hælum, fáanlegir í mörgum litum og ganga við nán- ast hvað sem er.“ Flugfreyjuskór klikka ekki Elísabet segir gott skóúrval í Kaupfélaginu, en verslanir undir merkjum þess eru reknar í Kringlunni og Smáralind. „Svo má nú benda á að um þessar mundir stendur yfir útsala á vörum okkar í Smáralind og svo Kringlunni í tengslum við Kringlukast.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Allir þekkja sögunna af hinni ótrúlega léttstígu stúlku Öskubusku sem dansaði á glerskóm. Margir muna eftir að hafa lært vísu í bernsku um kerlingu í stígvéli sem hófst svona: „Ein stór og digur kerling í stígvéli bjó …“ Rauðu skórnir hans H.C. Andersen. Sagan af rauðu skón- um er ógnvekjandi saga af því hvernig hégómi getur villt fólki sýn og gleði snúist upp í hrylling. Fallegar stúlkur í skóm sem geyma galdur eru algengt minni í ævin- týrum rétt eins og prinsar og bræður í álögum. Skór gegna oft miklu hlutverki í ævintýrum. Stund- um eru þeir þeim eiginleikum gæddir að fara sjö mílur í hverju skrefi, í sumum má búa og enn aðrir geta leitt þann sem þá dregur á fætur sér til æðstu hamingju eða til glötunar. Galdur og ævintýri Dórótea sem við þekkjum úr sögunni af galdrakarlinum í Oz gat notað skó vondrar nornar til að komast aftur heim til Kansas. M YN D IR /N O RD IC P H O TO S G ET TY

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.