Fréttablaðið - 14.10.2009, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 14.10.2009, Blaðsíða 22
18 14. október 2009 MIÐVIKUDAGUR timamot@frettabladid.is Aldarafmælis séra Bjarna Þor- steinssonar var minnst þennan dag árið 1961 og voru vegleg há- tíðarhöld af því tilefni á Siglufirði þar sem hann þjónaði samfleytt í 47 ár. Hátíðarhöldin stóðu í tvo daga og voru haldnir tónleikar og guðsþjónustur í minningu hans auk þess sem ævisaga hans, Ómar frá tónskáldsævi, eftir Ing- ólf Kristjánsson kom út. Bjarni var prestur og tónskáld en er þekktastur fyrir að hafa safnað íslenskum þjóðlögum. Hann var brautryðjandi í íslensku tónlistarlífi og samdi fjölda al- kunnra laga. Hann hafði með messusöngvum sínum mikil áhrif á söngmennt í kirkjum landsins. Bjarni hóf að safna þjóð- lögum í kringum 1880 en þá tók hann eftir því að hann fann hvergi í söngvabókum ýmis lög sem hann hafði lært á uppvaxtarárum sínum. Hann mætti litlum skilningi þegar hann fyrst ljáði máls á mikilvægi þess að skrá þessi lög en á ár- unum 1906 til 1909 kom þjóð- lagasafn hans út með styrk úr Landssjóði og danska Carlsberg- sjóðnum. Síðar fékk hann prófessorsnafnbót fyrir verkið. DWIGHT D. EISENHOWER FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1890. „Einungis Bandaríkjamenn geta skaðað Bandaríkin.“ Eisenhower var forseti Bandaríkj- anna fyrir repúblikana á árunum 1953 til 1961. MERKISATBURÐIR 1201 Guðmundur Arason, prestur á Víðimýri, er kjör- inn biskup á Hólum. 1863 Fjórir Íslendingar, sem fluttust til Brasilíu, komu til Rio de Janeiro eftir þriggja mánaða ferð. Þetta var upphaf ferða til Brasilíu en þær urðu und- anfari fólksflutninga til Kanada og Bandaríkjanna um og upp úr 1870. 1953 Núverandi merki Atlants- hafsbandalagsins er tekið upp. 1964 Rafreiknir Háskóla Íslands kemur til landsins og þótti hann afkastamikið tæki. 1964 Martin Luther King, Jr. hlýtur friðarverðlaun Nóbels. 1981 Hosni Mubarak er kjörinn forseti Egyptalands. ÞETTA GERÐIST: 14. OKTÓBER ÁRIÐ 1961 Aldarafmælis Bjarna minnst Hafnar eru framkvæmdir við nýtt geymslu- og verkstæðishús við Sam- göngusafnið í Skógum undir Eyja- fjöllum. Húsið verður 1.380 fermetr- ar að grunnfleti en auk þess er gert ráð fyrir um 500 fermetra millilofti sem verður framtíðargeymsla fyrir safngripi Byggðasafnsins. Í húsinu verður komið upp aðstöðu til for- vörslu á safnmunum og til að gera upp bíla og vélar sem eru í eigu þess. Söfnin í Skógum hafa verið í örum vexti undanfarin ár. Árið 1995 var aðalbygging Byggðasafnsins tekin í notkun, þremur árum síðar var Skógakirkja vígð og árið 2002 var Samgöngusafnið í Skógum opnað. Þetta nýja hús mun leysa brýna þörf fyrir geymslurými sem er af skorn- um skammti í núverandi húsum. Geymsluhúsið verður stálgrindar- hús sem byggt verður með hefð- bundnum hætti, en ekki notast við tilbúnar einingar í þak og veggi. Þetta skapar meiri vinnu á staðnum. Vonast er til að þessi framkvæmd komi til með að skapa atvinnu fyrir heimamenn næstu misserin en áætl- uð verklok eru haustið 2012. Skógar er vinsæll ferðamannastað- ur og fær Skógasafn yfir 40 þúsund gesti árlega. Byggðasafnið í Skógum er stærsta byggðasafn landsins og Samgöngusafnið í Skógum hefur þró- ast hratt þótt ungt sé og stöðugt ber- ast því munir til varðveislu. Um 250 þúsund gestir hafa skoðað Sam- göngusafnið frá opnun þess í júlí 2002. Framkvæmt í Skógum FYRSTA SKÓFLUSTUNGAN Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri, formaður safnstjórnar og oddviti Rangárþings eystra, tók fyrstu skóflustunguna að viðstaddri stjórn safnsins. Sungið verður til styrktar börnum sem eiga foreldri sem feng- ið hefur heilablóðfall í Salnum í Kópavogi í kvöld klukkan átta og svo á Græna hattinum klukkan níu á fimmtudagskvöld. Á báðum tónleikunum kemur fjöldi tónlistarmanna fram, í Saln- um mun til dæmis KK, Magnús Þór, Baggalútur, Villi nagl- bítur og Þórunn Lárusdóttir söngkona, sem einnig er vernd- ari styrktarsjóðs samtakanna, taka lagið. Á Akureyri eru það Hvanndalsbræður, Magni, Rúnar EFF og Pálmi Gunnarsson sem ætla að taka lagið svo einhverjir séu nefndir. Styrktarsjóðurinn Faðmur-Heilaheill stendur fyrir skemmti- dagskránni. Miðaverð er 2.000 krónur. Nánari upplýsingar má sjá á síðunni heilaheill.is. Styrktartónleikar Heilaheilla SALURINN Annað kvöld verða haldnir tónleikar til styrktar Heilaheill- BJARNI ÞORSTEINSSON Prestur og þjóðlagasafnari á Siglufirði MOSAIK Ástkær sonur okkar og bróðir, Stefán Már Harðarson Múlasíðu 7d, Akureyri, verður jarðsunginn frá Glerárkirkju fimmtudaginn 15. október kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna, reikningsnr. 301-26-545, kt. 630591-1129, s. 588-7555. Bára Waag Rúnarsdóttir Jóhann Helgi Steinarsson Marta Ósk Jóhannsdóttir Almar Ingi Jóhannsson Hörður Guðmundsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Gunnar Jakobsson Lerkilundi 18, Akureyri, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánu- daginn 12. október. Útförin auglýst síðar. Guðrún Helgadóttir börn, tengdabörn og barnabörn. Slysavarnafélagið Landsbjörg fagnaði tíu ára afmæli í byrjun mánaðarins en það varð til við sameiningu Slysa- varnafélags Íslands sem var stofnað árið 1928 og Landsbjargar, landssam- bands björgunarsveita sem var stofn- að árið 1991. Félagið byggir því á gömlum grunni en sameiningin hafði í för með sér mikið hagræði. „Við það færðust allar björgunar- sveitirnar undir einn hatt sem veit- ir betri yfirsýn yfir stefnumótun, þjálfun og rekstur,“ segir Kristinn Ólafsson framkvæmdastjóri félags- ins. Því tilheyra nú 95 björgunar- sveitir í öllum helstu þéttbýliskjörnum landsins. „Þær eru í raun sjálfstæð- ar rekstrareiningar sem sækja þjón- ustu til okkar en við rekum til dæmis björgunarskóla og höfum umsjón með sameiginlegum fjáröflunum,“ segir Kristinn. Innan félagsins eru einnig fimm- tíu slysavarnadeildir en þær vinna bæði að slysavörnum og fjáröflun- um. „Innan þeirra eru svokallað- ar kvennadeildir en konur höfðu einmitt frumkvæði að stofnun Slysavarnafélags Íslands á sínum tíma. Þær voru margar eiginkonur sjó- manna sem höfðu horft á eftir sínum nánustu í vota gröf og vildu leggja sitt af mörkum. Þriðji fóturinn í félaginu er síðan unglingastarfið sem við erum afskaplega stolt af en við rekum fimm- tíu unglingadeildir um allt land. Þar fá þrettán til sextán ára ungmenni að kynnast starfsemi björgunarsveit- anna frá ýmsum hliðum auk þess sem um er að ræða heilbrigðan og góðan félagsskap.“ Allir félagar björgunarsveitanna gefa vinnu sína og segir Kristinn það vekja mikla athygli víða erlendis en þar er fátítt að bæði sjó- og landbjörg- un byggi eingöngu á sjálfboðaliðum. „Svo má ekki gleyma atvinnurekend- um sem margir gefa starfsmönnum sínum í björgunarsveitunum frí þegar til útkalla kemur auk þess sem flestir starfsmennirnir halda launum sínum á meðan.“ Um átján þúsund manns eru skráðir í félagið en um 3.000 eru á svokölluðum útkallalista. Þetta fólk þarf að sækja fjölmörg námskeið og vera í stöðugri þjálfun. „Til að gefa gleggri mynd af starfseminni má nefna að á bak við hverja klukkustund sem við erum í út- kalli liggja tíu klukkustundir í fjáröfl- un og þjálfun og því er ljóst að starf- semin byggir á óhemju duglegu fólki,“ segir Kristinn. Helstu fjáröflunarleiðirnar eru flug- eldasalan fyrir áramót og Neyðar- kall björgunarsveitanna sem er seld- ur í nóvember en auk þess fær félagið styrki frá ríkinu til að reka Slysavarna- skóla sjómanna, sporhunda, björgunar- skólann og ýmis tæki og tól. Haldið var upp á áttatíu ára afmæli Slysavarnafélags Íslands í fyrra og af því tilefni var opnuð sögusýning í Sam- göngusafninu á Skógum sem stendur enn. Um þessar mundir er Saga film síðan að vinna heimildarmynd um fé- lagið. „Um er að ræða þriggja ára verk- efni og eru kvikmyndatökumenn búnir að fylgja okkur eftir í tvö ár. Nú þegar er til mikið efni og verður spennandi að sjá útkomuna.“ vera@frettabladid.is SLYSAVARNAFÉLAGIÐ LANDSBJÖRG: ER TÍU ÁRA Byggir á óhemju duglegu fólki EINSTÖK STARFSEMI Starfsemi félagsins hefur vakið athygli erlendis enda er fátítt að bæði sjó- og landbjörgun byggi eingöngu á sjálfboðaliðum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.