Fréttablaðið - 14.10.2009, Side 24
20 14. október 2009 MIÐVIKUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Þarna! Þetta er tréð
sem við munum
skreyta á jólunum!
Mér sýnist
Bjarna
vera dálít-
ið kalt!
Svona Bjarni. Sestu
á sleðann og hlýj-
aðu fótunum þínum
aðeins!
Hann er
með frekar
þunnan
feld greyið!
Kannski af
því þú ert
alltaf að
raka hann?
Hann verður að líta sæmi-
lega út! Það versta sem
ég veit er fólk sem ekki
passar upp á dýrin sín!
Eh...
Hvað er að því
að ég hafi sett eitt
plakat upp
í skápnum okkar?
Sko.
Þetta er
skáp-
urinn
OKKAR!
Það var
þín hug-
mynd að
við mynd-
um deila
skáp, ekki
satt?
Uhm.
„Deila“ þýðir
jafn aðgangur,
ekki satt?
Ekki satt?
EKKI SATT?
Sagðirðu
henni þína
meiningu?
Uhmm já.
Ég lét mig
hverfa á
hundrað kíló-
metra hraða.
Alvitri sfinx, eigandi minn
skilur mig ekki... en þinn?
Ég er í vafa... Hún hefur ekki enn
nefnt nafn þitt.
Þarna er Solla þegar
hún lærði að skríða.
Þarna er Solla þegar
hún lærði að labba.
Þarna er Solla þegar hún
lærði að hjóla á þríhjóli.
Barnæska
þín var frek-
ar slitrótt.
Af hverju
heldurðu
að þau hafi
keypt vídeó-
kameruna?
Næst á dagskrá
á lífsstílsrásinni:
Við tölum við konu
sem á yfir sex
hundruð afkvæmi...
hvernig fer hún að
þessu?
Lækkandi sól, kólnandi veður og veturinn langi fram undan bera alltaf með sér ofurlítinn ævintýrablæ. Langir skuggar
eftirmiðdagsins, stjörnubjartur himinn og
dularfullt tunglsljós sveipar hversdagslega
hluti í borginni okkar dálítið undarlegum
ljóma og hvað þá þegar keyrt er einhvern
spöl út fyrir bæjarmörkin. Fram undan er
útlenska hrekkjavökuhátíðin sem mér finnst
þó í fína lagi að innleiða á Íslandi. Ungir
sem aldnir hafa jú gaman af því að gefa
ímyndunaraflinu lausan tauminn í rökkrinu.
Um þessar mundir er breska dagblaðið The
Guardian að birta afar
skemmtilega greina-
seríu um ævintýri. Hin
klassísku ævintýri hafa
alltaf legið sterklega á
mínu áhugasviði enda
er merkilegt að svona
dimmar, gotneskar og
skelfilegar sögur skuli í raun og veru eiga
erindi við börn. Það gefur augaleið að djúp-
ir Freudískir straumar liggja að baki sagna
um satanískar stjúpmæður, ofbeldisfulla
feður, prinsa sem breytast í litla froska og
prinsessu sem býr með sjö dvergum. Mér
stóð ekkert á sama um daginn þegar ég las
Hans og Grétu fyrir börnin mín því ég hafði
gleymt því hvernig móðirin hræðilega vildi
losna við þau og hvernig nornin fitaði dreng-
inn upp í búri áður en hún ætlaði að fram-
kvæma mannát. Börn láta þó fátt hræða sig
nú til dags. Í fyrravetur teiknaði dóttir mín
teiknimyndasögu í skólanum sem hún sýndi
mér stolt. Sagan hét „Svarthetta“ og þar beit
Svarthetta úlfinn með beittum vampíru-
tönnum til dauða áður en hann skaðaði nokk-
urn mann. „Af hverju skrifaðir þú þetta?“
spurði ég hina ungu Angelu Carter, furðu
lostin. „Rauðhetta var bara svo leiðinleg,“
var svarið.
Gotneskur hryllingur − fyrir börn
NOKKUR ORÐ
Anna Margrét
Björnsson
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Fréttablaðið
stendur upp úr
Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað
landsins með glæsilegt forskot á samkeppnis-
aðila sinn eins og síðasta könnun Capacent
Gallup ótvírætt sýnir. Við erum auðvitað rífandi
stolt af þessum góða árangri og bendum
auglýsendum á að notfæra sér forskot okkar
þegar þeir velja auglýsingamiðil.
Allt sem þú þarft...
34%
74%