Fréttablaðið - 14.10.2009, Page 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Í dag er miðvikudagurinn 14.
október 2009, 287. dagur ársins.
8.15 13.14 18.11
8.05 12.58 17.51
Sæll Obbi og til hamingju með Nóbelinn. Þetta bréf er nú eins
og hálfgert flöskuskeyti þar sem
ég geri mér litlar vonir um að það
rati í gegnum öldurót heimsins og
í þínar hendur. En við Íslendingar
erum yfirmóta bjartsýnir svo ég
leyfi mér að gæla við þá hugsun
að þetta bréf finni þig í fjöru.
MIG langaði að segja þér að ég
hef einu sinni fengið heila bif-
reið án þess að hafa unnið fyrir
henni. Það var auðsótt mál í eina
tíð á Íslandi. Ég skrifaði bara
upp á pappíra sem skjalfestu að
ég myndi borga þó nokkur dags-
verk á mánuði og meðan ég gerði
svo gat ég rúntað á Skódanum
„mínum“ eins og mig lysti.
ÞESSI raðgreiðsluþjónusta hefur
síðan átt nokkuð undir högg að
sækja í kreppunni en nú blæs
aldeilis byrlega fyrir þeim sem
kunna að meta hana þegar hægt
er að fá friðarverðlaun Nóbels
fyrir fram. Ég veit ekki hvað þér
og Norsurunum í Nóbelsnefnd-
inni fór á milli en ég ímynda mér
að verðlaunin kosti ótal góðverk.
Ég og mínir líkar þurftum að
borga heilmikla vexti með rað-
greiðslunum svo ég rétt vona að
Nóbelselítan hafi haft það í huga
þegar þú verður inntur eftir
góðverkunum.
SÚ staðreynd að búið sé að inn-
leiða raðgreiðsluþjónustuna í
pólitíkina býður upp á ótal mögu-
leika nú þegar góð ráð eru orðin
rándýr. Til að mynda getur Stein-
grímur J. leitað lags og veitt
Ögmundi viðurkenningu fyrir
að veita Icesave-samningunum
brautargengi. Þá verður Ömmi
að vinna fyrir viðurkenningunni
vilji hann ekki verða að óreiðu-
manni, það er að segja ef notast
er við skilgreiningu ömmu Davíðs
Oddssonar.
EN kannski verður þetta ekk-
ert svo voðalega dýrt fyrir þig,
Obbi. Kannski líta Norðmennirn-
ir þannig á að það sé nóg fyrir þig
að vera svona miklu skárri fyrir
heiminn en forveri þinn reyndist
vera. Síðan virðast þeir líka vera
ginnkeyptir fyrir skjótkeypt-
um Nóbel. Sri Chinmoy lést til
dæmis án þess að fá slík verðlaun
þótt hann hefði tileinkað allt sitt
líf baráttu fyrir friði. Lifði hann í
samræmi við það sem hann pred-
ikaði, sem afrek hans á hinum
ýmsu sviðum, bækur hans og upp-
tökur eru til vitnis um. Hann lést
árið 2007, sama ár og Al Gore og
vinnuhópur hans fékk Nóbelinn
fyrir vel heppnað markaðsátak.
Tilboð: Nóbel á
raðgreiðslum
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009.
Hvar er þín auglýsing?
35%
72%